Feykir - 10.05.2012, Page 4
4 Feykir 18/2012
Nú er sumartími kominn á dagatalið og
vonandi fer náttúrufarið að verða sem
fyrst í fullum samhljómi við það. Alltaf
er eitthvað að gerast í heiminum og líka
þessu litla horni af honum sem Ísland
er. Um tíma virtust víst sumir halda að
landið okkar litla væri sjálft höfuðból
veraldar og stórasta land í heimi, en í
ljós kom að hér hafði bara verið komið
upp enn einni kauphöll Kölska.
Fyrir hennar tilverknað og hans fór um-
skiptingarúlletta glóruleysisins af stað með
þeim afleiðingum að það ranga var skilgreint
rétt. Kerfiseftirlit samtryggingar um svínarí sá
svo um að þjóna sjálfu sér og engu öðru og því
fór sem fór.
Þeir sem engar byrðar báru
bjuggu hér við mestan auð.
Þjóðarhjartað hjuggu og skáru,
hirtu af fólki daglegt brauð.
Sátu að nægta breiðum borðum,
blésu að hverri eiturglóð.
Settu allt úr sæmdarskorðum,
sviku bæði land og þjóð !
Þannig hefur líklega staðan verið þegar Enginn
Allrason orti eftirfarandi ástandsvísu, trúlega
einmitt um það leyti þegar Hrunadansinn hófst
og kauphöll fjandans sökk í eigið soradíki :
Verri eins og vitað er,
votta flestra þankar,
eru þjófum öllum hér,
yfirvöld og bankar !
Um síðustu áramót mátti segja í ljósi atburða
hérlendis:
Þrýst var á og þokað málum
þar sem Jón var höfuðfórnin.
Í þann gjörning gekk á nálum
Grákollu og Skalla stjórnin !
En þó að manni eða mönnum sé fórnað í
pólitískum hráskinnaleik er það ekkert nýtt,
hvorki á Fróni né annarsstaðar í þessum heimi.
Það er líka algengt, ekki síst í pólitík, að fylgja
þeim leiðarorðum að heiðra beri skálkinn svo
hann skaði ekki. Þess vegna ganga trúlega svo
margir um orðum prýddir. Það eru því flestir
þannig lagað með skálkaorður, en slíku
dinglumdangli hlýtur að fylgja nokkuð
takmarkaður heiður, svo ekki sé meira sagt :
Yfir markið oft er skotið,
ýmis viðmið teygð og skekkt.
Það hefur margur hundur hlotið
heiður út á fylgispekt !
Og svo er það fífldirfskan sem fylgir mörgum
og tekur stundum svo afgerandi völdin í
hugsanagangi manna að glóra fyrirfinnst
engin.
Ósyndir með ákefð stóra,
ýmsir fjarri hjálpartaug,
steypa sér í stuði óra
stöðugt út í djúpa laug !
En svo eru líka til, sem betur fer, ýmis dæmi
atburðarásar sem sýna dómgreind í lagi. Dæmi
þar sem róleg yfirvegun hefur ráðin og metur
aðstæður þannig að best sé að halda kyrru fyrir,
að bíða færis og sýna þolinmæði, en ana ekki
áfram í ófæru.
Eitt sinn gerði ofsabyl,
engir vegi greindu.
Ekki gekk þá allt í vil
eins og margir reyndu.
Sat í þrauta þvarginu
þá sem foli heftur,
einn í bíl á bjarginu,
Baldi hríðartepptur !
En heim komst kappinn á heilum vagni –
vegna þess að dómgreindin réði.
Oft eru minningar liðinna ára drjúgt veganesti
okkar mannanna. Það er mörgum hughreysting
og efling í núinu, að horfa til baka og rifja upp
ánægju og sigurstundir fyrri ára og segja eins
og fjallakappinn hans Tómasar „Sjáið tindinn.
Þarna fór ég !” Ánægjulegt er í því sambandi að
sjá fallegar birtingarmyndir gamalla atburða,
eiginlega sama hversu oft þær bera fyrir augu.
Um slíkt mætti kveða :
Í blöðunum oft er opnuð sýn
á atburði er forðum glöddu.
Og víst er hún alltaf flott og fín
fermingarmyndin af Döddu !
Og sí og æ virðist eitthvað vera að gerast sem
krefst skjótra viðbragða, krefst þess að til staðar
séu á örlagastundum einstaklingar sem geta
tekið þannig á málum af snarræði og dug, að
það skilji á milli lífs og dauða. En það getur
hinsvegar oft tekið á að skilja þar á milli.
Aflraun marga ári sára
ýmsir knáir heyja sér.
Fús til bjargar Kári Kára
kaus í á að fleygja sér !
Hetjur hversdagslífsins eru víða á ferð og það
ber að þakka. Vonandi verður sumarið 2012
hlýlegra og heillabetra fyrir mannlífið í landinu
en sumar síðasta árs. Og sú er óskin efst í huga
mínum, að þjóðin megi styrkjast að einingu og
halda fullu sjálfstæði sínu um ókomna tíð.
Enginn beri ok um háls,
alla sundrung gröfum.
Ísland verði áfram frjáls
eyja í norðurhöfum.
Rúnar Kristjánsson
Hugarspuni í Hörpubyrjun
FRÁ LESENDUM RÚNAR KRISTJÁNSSON SKRIFAR
Smá í Feyki ::
Síminn er 455 7171
smá
AUGLÝSINGAR
Óska eftir íbúð
Óska eftir þriggja herbergja íbúð sem fyrst eða fyrir 1. júní.
Skilvísum greiðslum heitið.
Beata 857-0067 / Óli 845-7053
Karlakór Sauðárkróks árið 1981. Efsta röð frá vinstri: Gísli Pétursson, Ingimar Pálsson, Vigfús
Hauksson, Kári Sveinsson, Jón Gunnlaugsson, Bragi Hrólfsson og Gísli Kristjánsson. Mið röð frá
vinstri: Björn Jóhannsson, Sverrir Svavarsson, Magnús Sigfússon, Björgvin Magnússon, Pétur
Pétursson, Þórhallur Þorvaldsson, Valgeir Þorvaldsson og Guðmundur Ó. Guðmundsson. Neðsta
röð frá vinstri: Ingimar Jóhannsson, Sigurður Hansen, Jóhann Már Jóhannsson, Hilmar Sverrisson
söngstjóri, Stefán Gíslason undirleikari, Hjörleifur Sturlaugsson, Jósep Sigfússon og Árni Gunnarsson.
Leiðrétting
Eitt nafn vantaði
Í umfjöllun um Karlakór Sauðárkróks, sem birt var í síðasta
tölublaði, urðu þau leiðu mistök að nafn eins kórfélaga, Hjörleifs
Sturlaugssonar, vantaði í myndatexta og því var ákveðið að birta
myndina á ný.
Auglýsing um
grenndarkynningar
vegna hitaveitupípu á
Blönduósi
Bæjarstjórn Blönduósbæjar samþykkti á fundi sínum
8.maí 2012 að grenndarkynna vegna framkvæmda við
hitaveitupípu innan þéttbýlisins á Blönduósi í samræmi
við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hitaveitupípan
er niðurgrafinn og liggur samhliða núverandi lögn frá
Reykjum að Blönduósbrú og þaðan meðfram götum og
um raskað land. Hluti lagnarinnar er innan deiliskipulags
íbúðabyggðar við Skúlabraut, Smárabraut og Sunnubraut
og verður samhliða grenndarkynnt breyting á því
deiliskipulagi.
Grenndarkynningargögn, uppdrættir með greinargerð,
verða til sýnis hjá byggingarfulltrúanum á bæjarskrifstofu
Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33 - 540 Blönduósi og á
heimasíðunni www.blonduos.is frá 12. maí 2012 til
11. júní 2012. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta er hér með gefinn kostur á að gera
athugasemdir við grenndarkynningarnar
á skrifstofu Blönduósbæjar fyrir 11.júní
2012 og skulu þær vera skriflegar.
Bæjarstjóri Blönduósbæjar
Blönduósbær
Framkvæmdastjóri
Þekkingarseturs á Blönduósi
Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Heimilis-
iðnaðarsafnið ses.,Textílsetur Íslands ses.,
Laxasetur Íslands ehf., Háskólinn á Hólum,
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra,
Landsvirkjun og Farskólinn – Miðstöð
símenntunar á Norðurlandi vestra hafa stofn-
að Þekkingarsetur sem hefur það að mark-
miði að stuðla að aukinni þekkingu og fjöl-
breytni atvinnulífs í Austur-Húnavatnssýslu
með fræðslustarfi, eflingu háskólamennt-
unar, vísindarannsóknum og nýsköpun á
sviðiTextíls, Hafís/ Strandmenningar og Lax-
fiska.
Óskað er eftir starfsmanni í 50% starf fram-
kvæmdastjóra setursins. Starfið er staðsett á
Blönduósi.
Helstu verkefni:
daglegur rekstur setursins og samræming
sta fseminnar
hafa frumkvæði að stefnumótun í samráði
við stjórn
samskipti við stjórn og samstarfsaðila
skipulagning og stjórnun viðburða á
vegum þekkingarsetursins
afla fjármagns til reksturs og verkefna se-
tursins
tengiliður/fulltrúi setursins vegna þróunar
rannsóknarverkefna tengd áhersluþáttum
setursins
samskipti við fyrirtæki og stofnanir á
starfssvæði setursins
Hæfnikröfur:
reynsla af stjórnun og rekstri
framhaldsmenntun á háskólastigi æskileg
ríkir samstarfshæfileikar og hæfni til að
leiða saman ólíka hópa fólks
góð tungumálakunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2012.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
arnar@blonduos.is