Feykir - 16.05.2012, Qupperneq 12
HELGARTILBOÐ
Cheerios
518gr 579,-
Jacob‘s tekex 79,-
Doritos flögur
blár/orange 179,-
Cocoa puffs
625gr 669,-
Homeblest
300gr 219,-
Royal búðingur
súkkul./karam. 179,-
Kjúklingur heill
frosin 679,-kg
Frón mjólkurkex
Gróft/fínt 400gr 329,-
Síríus konsum
200gr 219,-
Kindahakk frosið
699,-kg
River hrísgrjón
1kg 199,-
Merrild kaffi
500gr 829,-
BYRJAR Á FÖSTUDAG
Tilboð gilda meðan birgðir endast
Fp saltstangir 99,-
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is
19
TBL
16. maÍ 2012 32. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Sveitasæla hjá nemendum
Varmahlíðarskóli
Nú er sauðburður hafinn en þá er hver
vinnandi hönd verðmæt í sveitum
landsins. Sveitadagar er framlag
Varmahlíðarskóla til samfélagsins og
njóta allir góðs af. Nemendur skólans
eyddu fimm dögum í síðustu viku við
störf í sveit, einhverjir heima hjá sér og
aðrir hjá vinum, vandamönnum eða
einhverjum þeim sem þeir kjósa að
vera hjá, segir Ágúst Ólason
skólastjóri Varmahlíðaskóla í samtali
við Feyki.
„Markmiðin með þeim eru m.a. að
efla vitund nemenda fyrir náttúrunni
og þeim breytingum sem vorið ber með
sér, að kynna fjölbreytileika nærsam-
félagsins fyrir nemendum, að kynna
búskaparhætti og heimabyggð fyrir
nemendum. Einnig að laga skólahaldið
að óskum og þörfum heimabyggðar í
sveit og að kynna verknám fyrir
nemendum,“ segir Ágúst.
Samkvæmt Ágústi er áralöng hefð
fyrir sveitadögum í Varmahlíðarskóla
þó þeir hafi ekki ávallt verið eins
útfærðir. Upphaflega komu þeir til
sögunnar með samstarfi fjögurra skóla
um heimabyggðarverkefni. Skólarnir
voru Varmalandsskóli í Borgarfirði,
Húnavallaskóli, Grunnskólinn á Lauga-
bakka í Miðfirði og Varmahlíðarskóli.
Nú var ákveðið að þetta væru fimm
dagar og að allir nemendur skólans
tækju þátt. „Gengið er út frá að þetta fari
fram á skólatímanum en sumir
nemendur taka mun meiri þátt, t.d.
með því að vaka yfir sauðburði,“ segir
Ágúst en nemendur eru allir með
skólaverkefni með sér, ólík eftir aldri,
sem þeir vinna að með umsjón foreldra
og eða annarra forráðamanna þessa
daga. „Einhverjir kanna búskaparhætti,
jarðveg, sáningu og grastegundir,
veðurfar, fuglalíf og örnefni svo eitthvað
sé nefnt. Auk þessa rita allir nemendur
skólans dagbók fyrir hvern dag,“ segir
hann.
Mikil ánægja ríkir með þetta fyrir-
komulag og segir Ágúst að foreldrar séu
afar hlynntir þessum þætti í
skólastarfinu, sem er mjög mikilvægt til
að þetta gangi upp. /BÞ