Feykir


Feykir - 14.06.2012, Blaðsíða 12

Feykir - 14.06.2012, Blaðsíða 12
AfsláttArdAgAr 20% Afsláttur Af skóm og fAtnAði fimmtudAg, föstudAg og lAugArdAg Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 23 TBL 14. júní 2012 32. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Unga fólkið hefur nóg að gera í góða veðrinu Kraftmiklir krakkar Það færist líf og fjör í bæinn með hækkandi sól enda hefur unga fólkið nóg að starfa. Blaðamaður fór rúnt um Krókinn sl. þriðjudag og festi nokkra fulltrúa yngri kynslóðarinnar á filmu. Starfsemi Sumar-TÍM er komið á fullt og Vinnuskólinn tekinn til við að fegra bæinn. Fyrst var farið á Nafirnar en þar áði einn krakkahópurinn í Reiðskóla Ingimars Pálssonar efst í Grjótklaufinni. /PF Fótbolti er alltaf skemmtilegur og hjólhestaspyrnur má ekki skemma með óþarfa markvörslu. Ingimar Pálsson ásamt reiðskólakrökkum æja í Grjótklaufinni. Þessar stúlkur stilltu sér upp fyrir myndatökumann. Vinirnir Hákon og Sævar Örn voru á heimleið eftir skemmtilega sundferð. Matthías og Gunnar voru á leið í fótbolta enda veðrið til þess. Eftir góða vinnutörn er gott að taka smá hlé fyrir þá næstu. Þessum krökkum finnst æðislega gaman í Sumar-TÍM.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.