Feykir - 28.06.2012, Blaðsíða 2
2 Feykir 25/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Jón Rúnar Hilmarsson
skólastjóri Grunnskólans
Austan vatna hefur verið
ráðinn í stöðu skólastjóra
við Leik- og grunnskóla
Hvalfjarðarsveitar.
Samkvæmt fundargerð
sveitarstjórnar Hvalfjarð-
arsveitar, frá 26. júní sl., var
það einróma álit Fræðslu-
og skólanefndar að væri
hæfasti umsækjandinn
um stöðu skólastjóra. /BÞ
Hofsós
Fékk skóla-
stjórastöðu í
Hvalfjarðar-
sveit
LEIÐARI
Íslendingar setjast
að kjörborðinu
Næstkomandi laugardag setjast Íslendingar að kjörborðinu
og kjósa sér forseta. Landsmenn hafa ekki farið varhluta af
kosningaherferðum frambjóðenda í fjölmiðlum en þeir hafa
keppst við að vekja athygli á sinni persónu og fyrir hvað þeir
standa, sumir eru óneitanlega meira áberandi en aðrir.
Margir hverjir fyllast eflaust valkvíða því aldrei fyrr hafa jafn
margir frambjóðendur verið í boði. Í Stjórnarskrá Íslands
segir að „sá, sem flest fær atkvæði, ef fleiri en einn eru í kjöri,
er rétt kjörinn forseti.“ Þykir þetta kosningakerfi afar
ófullkomið og löngum verið gagnrýnt enda er það eitt af
þeim atriðum sem hafa verið til endurskoðunar hjá stjórn-
lagaþingi. Samkvæmt tillögum stjórnlagaþings myndu
kjósendur raða frambjóðendum, einum eða fleirum að eigin
vali, í forgangsröð. Sá er best uppfyllir forgangsröðun
kjósenda, eftir nánari ákvæðum í lögum, er rétt kjörinn
forseti en þetta fyrirkomulag hefur verið notað um hundrað
ára skeið víða um heim með góðum árangri.
Allar líkur eru á því að Íslendingar séu nú að kjósa í hinsta
sinn samkvæmt núverandi kosningakerfi og sú staða getur
komið upp að verðandi forseti sitji í embætti í umboði
mikils minnihluta þjóðarinnar, hvorki kjósendum né fram-
bjóðendum til farsældar.
Berglind Þorsteinsdóttir
blaðamaður
Heimildir:
Gunnar Helgi Kristinsson, „Stefnir í merkilegar forsetakosningar“, Mbl.is, Skoðað: 27.6.2012.
„Frumvarp“, Stjórnlagaráð.is. Skoðað: 27.6.2012
Stjórnarskrá Íslands. Snerpa.is. Skoðað: 27.6.2012
Hertz hefur opnað nýtt
umboð á Sauðárkróki í
samstarfi við KS, Kaupfélag
Skagfirðinga, og er það
liður í að efla þjónustunet
bílaleigunnar á landsvísu.
„Á Sauðárkróki verður
boðið uppá gott úrval nýrra
bílaleigubíla, allt frá Yaris til
öflugra Land Cruiser jeppa,“
segir í fréttatilkynningu frá
bílaleigunni.
Hertz bílaleiga rekur nú
11 starfstöðvar víðsvegar um
landið og eykur þannig við
þéttriðið þjónustunet sitt.
Umboðið er staðsett við
þjónustuverkstæði Kaupfél-
agsins í Kjarnanum, Hesteyri
2, þar mun bílaleigan þjón-
usta m.a. fyrirtæki, einstakl-
inga, verkstæði og trygging-
arfélög. „Það er von Hertz að
þessi opnun uppfylli þarfir
viðskiptavina á svæðinu,“
segir loks í tilkynningu. /BÞ
Sauðárkrókur
Veiðifréttir
Hertz bíla-
leiga opnar
Stórlaxar
Hólar í Hjaltadal
Stemmningin góð á
Þórudeginum á Hólum
Stuðningsfólk Þóru
Arnórsdóttur um land allt
tók höndum saman sl.
sunnudag og haldnir voru
ríflega 90 viðburðir á
svokölluðum Þórudegi.
Norðurland vestra var þar
ekki undanskilið því haldin
var grillveisla fyrir utan
Bjórsetrið á Hólum í
Hjaltadal.
Samkvæmt Guðmundi
Birni Eyþórssyni, hjá Bjórsetri
Íslands, var stemmningin góð
á Þórudeginum á Hólum og
áætlar hann að um 25-30
manns hafi komið þar saman,
„sem telst nú bara allgott á
sunnudagseftirmiðdegi þegar
sumarfrí eru byrjuð,“ segir
hann. Það voru Bjarni Kristó-
fer Kristjánsson og Guðrún
Helgadóttir sem sáu um að
skipuleggja Þórudaginn og þar
var boðið upp á pylsur og með
því.
„Það er nú ávallt góð
stemmning þegar fólk tekur sig
saman hér heima að Hólum og
grillar fyrir utan Bjórsetrið, tala
nú ekki um af heimabjórinn
Vesturfari er tengdur í dæl-
urnar,“ segir Guðmundur í
lokin. /BÞ
frh. Sveitarfélögin áttu þegar í
miklu samstarfi sem hefur
auðveldað samrunan til muna
og ferlið hefur því ekki verið
eins flókið og ætla mætti. Sumt
segir Skúli þegar vera komið til
framkvæmda og annað er í
vinnslu. „Unnið hefur verið að
því að breyta fyrirkomulagi
skólamála og mun sú breyting
taka gildi frá og með næsta
skóla ári, þ.e. í haust. Nú verður
börnum í 1.- 4. bekk kennt á
Borðeyri en börn í eldri
bekkjum fara í skóla á
Laugarbakka, en áður skiptist
það við 1.-7. bekk, og er það
helsta breytingin,“ útskýrir
Skúli. „Einnig hafa verið gerðar
breytingar á skólastjórn en leik-
og grunnskólinn hefur verið
færður undir forræði leikskóla-
stjóra Leikskólans Ásgarðs á
Hvammstanga, Guðrúnar Láru
Magnúsdóttur. Ráðinn hefur
verið aðstoðarskólastjóri, Þór-
unn H. Þorvaldsdóttir, og mun
hennar meginstarfstöð vera á
Borðeyri,“ segir Skúli.
„Hvað stjórnsýslu varðar
hefur vinnuhópur verið að
yfirfara reglugerðir, samþykktir
og gjaldskrár í vetur og skoða
hvað þurfi að samræma, því
starfi lýkur í haust,“ segir Skúli
og bætir við að einnig hafa
ráðgjafar frá KPMG verið að
gera úttekt á stjórnsýslunni og
munu þeir jafnframt skila
skýrslu sinni í haust. /BÞ
Veiðin byrjaði í Víðidalsá og
Fitjá sl. sunnudag og
seinni part sama dag var
búið að landa níu löxum en
samkvæmt heimasíðu
Lax-á var þetta allt stórlax,
á bilinu 80-93 sm.
Það var Veiðiklúbbur
Roundtable Íslands sem
voru við veiðar. „Flestir hafa
veiðst á litlar flugur 12-16
enda lítið vatn og aðstæður
frekar erfiðar sól og hiti.
Fiskurinn er vel dreifður og
eru komnir fiskar upp um
alla á,“ segir á heimasíðu
Lax-á. /BÞ
Húnaþing vestra : framhald af forsíðu
Samruninn hefur
gengið liðlega fyrir sig
Hvammstangi
Hefur gefið tæpar
28 milljónir króna
til tækjakaupa
Aðalfundur Hollvinasamtaka
Heilbrigðisstofnunar
Hvammstanga var haldinn
þann 19. júní síðastliðinn.
Þar kom fram að samtökin
hafa gefið samtals tæpar 28
millj. kr. til tækjakaupa fyrir
Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands Hvammstanga, frá
stofnun samtakana árið 2006,
þar af á sl. starfsári voru keypt
tæki fyrir um 1,5 millj. kr.
Á haustmánuðum var enn-
fremur tekin sú ákvörðun að
hollvinasamtökin kæmu að
kaupum á nýju bjöllukerfi fyrir
hjúkrunar og sjúkradeild og
voru lagðar alls 3,5 milljónir til
þess verkefnis á þessu ári, en
Velferðarráðuneytið fjármagn-
aði hinn hlutann.
Alls kostaði bjöllukerfið
uppkomið um 8 milljónir
króna. /BÞ
Skagfirðingur sigrar
ljóðasamkeppni
Menning
Í tilefni af vorhátíð í
sveitarfélaginu Árborg efndi
Sunnlenska bókakaffið til
ljóðasamkeppni þar sem
yrkisefnið var Selfoss og var
það Skagfirðingur Kristján
Runólfsson sem bar þar sigur
úr býtum.
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Sunnlenska bókakaff-
inu var það samdóma álit dóm-
nefndarinnar í því áliti að besta
ljóðið væri Selfossljóð Æskuláps
sem hér fylgir.
„Höfundar skiluðu ljóðum
sínum inn undir dulnefni og
bakvið nafnið Æskulápur leynd-
ist hagyrðingurinn Kristján
Runólfsson í Hveragerði,“ segir í
fréttatilkynningu.
Ljóð Kristjáns má sjá hér til
hliðar. /BÞ
Selfoss
Hér er fögur byggð við brúna,
á bökkum fljóts sem ásýnd hefur,
frjósemd hinna fornu túna,
farsælt mannlíf af sér gefur.
Áin sem um eilífð streymir,
ætíð vökvar rós á bakka,
okkar framtíð áfram teymir,
öll er byggðin henni að þakka.