Feykir - 28.06.2012, Síða 10
10 Feykir 25/2012
Lummudagar í Skagafirði og Villtir svanir og tófa
Lummudögum lauk í Skagafirði
á sunnudag og heppnuðust þeir
alveg lummandi vel. Veðrið lék við
Skagfirðinga og gesti alla dagana
og nóg um að vera, fólk var duglegt
við að skreyta hús og hýbýli í
sínum litum.
Það voru íbúar Hólmagrundar
sem báru sigur úr bítum í skreytinga-
keppninni í ár og fögnuðu innilega
þegar þeim var afhentur glæsilegur
bikar á sunnudagskvöldið.
Framkvæmd Lummudaga tókst
með miklum ágætum og þrátt
fyrir að margir gestir hafi heimsótt
Skagafjörðinn var líkt og um venjulega
helgi væri að ræða, að sögn Stefáns
Vagns Stefánssonar hjá lögreglunni.
Sigríður Inga Viggósdóttir, fram-
kvæmdastýra Lummudaga, sagðist
í samtali við Feyki vera hæstánægð
með hvernig til tókst og vildi koma á
framfæri þökkum fyrir frábæra helgi.
Allir í gúddí fílíng á VSOT
Tónleikar Villtra svana og tófu voru
haldnir í Bifröst á Sauðárkróki sl.
laugardagkvöld, sem hluti af dag-
skrá Lummudaga. Þuríður Harpa
Sigurðardóttir var á tónleikunum
og sagði hún þá hafa verið einstaka
en þar voru samankomnir ýmsir
tónlistarmenn sem flestir áttu það
sameiginlegt að vera Skagfirðingar.
„Einkennandi var afslappað og
gleðiskotið andrúmsloft, allir í „gúddí
fílíng“ ef svo má að orði komast
sem svo sannarlega smitaðist út til
áhorfenda. Það er alveg hægt að
taka undir orð kynnisins sem taldi
að áhorfendur fengju skemmtun
fyrir allan peninginn,“ segir Þuríður
Harpa.
Fram komu hljómsveitirnar Dætur
satans, Hvítur hestur, Funk That Shit!,
Contalgen Funeral, Stórsveit Pilla
Prakkó, Feðginabandið, Skottuband
Árna Gunn að ógleymdum Gilloni.
„Villtir svanir og tófa lokuðu svo
frábæru kvöldi. Forsprakkanum,
Þórólfi Stefánssyni, má sannarlega
færa þakkir fyrir framtakið sem virðist
vera að festa sig í sessi sem heilmikil
tónlistarveisla, en hann hefur staðið
fyrir þessum samtíningi skagfirskra
tónlistarmanna undanfarin ár, með
dyggri aðstoð frá Guðbrandi Ægi
Ásbjörnssyni,“ segir Þuríður Harpa í
lokin.
Hjalti Árnason var staddur á tón-
leikunum og hér til hliðar má sjá
nokkrar myndir sem hann náði í bland
við aðrar myndir frá Lummudögum
úr forum Feykisfólks. Sigríður Inga
tók þó myndina af Hólmagrundar-
hópnum. /BÞ & ÓAB
Ljómandi lukkaðir Lummudagar