Feykir - 05.07.2012, Qupperneq 2
2 Feykir 26/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
María Ómarsdóttir og Erna
Hreinsdóttir sendu erindi til
sveitarstjórnar Skaga-
strandar þar sem þær
beina þeirri hugmynd að
aflétta gæludýrabanni af
einhverjum íbúðum í eigu
sveitarfélagsins með það í
huga að fólk vilji fremur
flytja til staðarins ef slíkur
búsetuvalkostur sé til
staðar.
Sveitarstjórn ræddi erindið
á síðasta fundi sínum og
þakkaði bréfriturum áhuga
þeirra og góðan hug en taldi
ekki fært að verða við
erindinu þar sem rök gegn
gæludýrahaldi í íbúðum
sveitarfélagsins hefðu ekki
breyst og mismunun sem af
slíku leiddi myndu leiða til
þess að regla um bann við
gæludýrahaldi verði í raun
óvirk. /PF
Skagaströnd
Vilja aflétta
gæludýra-
banni
LEIÐARI
Sigurvegarar
Ísland hefur löngum alið af sér sigurvegara þótt þeir vinni
ekki alltaf né lendi í fyrsta sæti. Þetta höfum við séð í
íþróttum þegar við fögnum þeim sem ná að komast í úrslit
eða vinna sig upp í þriðja sæti á Ólympíuleikum nú eða
lenda í öðru sæti í Júróvisjón. Stjórnmálamenn kunna
þennan leik líka þar sem allir vinna og þetta fengum við að
heyra eftir forsetakosningarnar. Þótt Ólafur Ragnar hafi
staðið uppi sem ótvíræður sigurvegari með rúm helming
greiddra atkvæða voru samt stuðningsmenn Þóru glaðir og
sögðu að hún væri sigurvegari kosninganna. Það er svipað
og segja að Ítalir væru sigurvegarar EM í fótbolta ef þeir
hefðu náð að skora tvö mörk eða svo. En árangur Þóru var
samt glæsilegur þó hún sé ekki sigurvegari kosninganna að
mínu mati né nokkurt hinna. Mér sýndist flestir
frambjóðendurnir vera ánægðir með sitt nema þá helst
Hannes sem líklega hefur verið full lengi í burtu frá löndum
sínum á landinu bláa og skilur þá ekki til fulls því þó þeir
heimti „nýtt Ísland“ er ekki endilega víst að þeir vilji „nýtt
Ísland“ þegar tækifærin bjóðast.
Páll Friðriksson
ritstjóri
3.deid karla
Stig í sarp
Skagaströnd
Bátur strandar
Björgunarsveitin Strönd var
kölluð út sl. mánudag
vegna báts sem strandað
hafði norðan við Höfðann á
móts við bæinn Réttarholt.
Einn var um borð í bátnum
og var hann lítillega meiddur á
hendi en að öðru leiti í lagi. Var
farið á léttabátnum Aðalbjörgu
og maðurinn sóttur og honum
ekið á sjúkrahúsið á Blönduósi
þar sem gert var að sárum
hans.
Á vef Björgunarsveitarinnar
Strandar segir að báturinn sem
er rétt tæplega 8 tonna
plastbátur virðist við fyrstu sýn
hafa sloppið við skemmdir og
var ekki mjög fastur þar sem
hann lá. Nánast háfjara var
þegar óhappið átti sér stað og
losnaði báturinn um leið og fór
að falla að aftur. Aðalbjörgin
dró bátinn út fyrir mestu
grynningarnar og þar tók
Húnabjörg hann í tog og dró
hann til hafnar.
/PF
Vinir Gunnars Heiðars
Bjarnasonar hafa stofnað
styrktarreikning fyrir hann
og fjölskyldu hans en hann
greindist með sykursýki
þegar hann var 5 ára
gamall. Gunnar Heiðar er
fæddur árið 1985 og býr á
Sólvöllum í Skagafirði.
Árið 2009 fór Gunnar að
missa sjón og fór í kjölfarið í 11
skurðaðgerðir á augum. Lík-
aminn hafnaði aðgerðunum
vegna sjálfsofnæmis sem varð
til þess að í febrúar 2011 var
Gunnar orðinn alveg blindur. Í
kjölfarið fór nýrnastarfsemin að
skerðast og er Gunnar nú á
biðlista fyrir nýrna- og
brisígræðslu í Svíþjóð. Gunnar
þarf að fara í blóðskilun annan
hvern dag sem einungis er hægt
að framkvæma í Reykjavík. Þar
af leiðandi þarf hann að dvelja
langdvölum á sjúkrahúsi og
halda til í Reykjavík ásamt
móður sinni sem er hans stoð
og stytta. Þessu fylgir mikill
kostnaður ásamt vinnuskerð-
ingu fjölskyldunnar.
Þeir sem vilja leggja Gunnari
og fjölskyldu hans lið geta lagt
inn á reikning nr. 0310-13-
300785, kt: 160785-3579.
Það voru bekkjasystur
Gunnars þær Sara Katrín og
Edda Hlíf sem hrintu söfn-
uninni af stað. „Hann var með
okkur í bekk alla okkar grunn-
skólagöngu í Varmahlíð og því
ákváðum við að stofna reikning
til þess að hægt sé að styðja við
bakið á fjölskyldunni í þessum
erfiðleikum.“ /PF
Drangeyjarmenn spiluðu á
Leiknisvelli sl. laugardag
gegn hinu umdeilda liði
Afríku en úrslit leiksins
urðu 1-1. Afríka er í neðsta
sæti deildarinnar en með
sigri hefði Drangey komist í
annað sæti B-riðils.
Stefán Hafsteinsson
skoraði mark Drangeyjar en
því miður náðu Drang-
eyjarmenn ekki að halda
markinu hreinu því Afríka
jafnaði leikinn og þannig
urðu lokatölur. Á Tindastóll.
is segir að þetta hafi verið
skelfilegur leikur hjá
Drangeyjarmönnum, sem
hafa verið að spila flottan
bolta í sumar. Slæm úrslit hjá
strákunum sem eru þó
ennþá í þriðja sæti deild-
arinnar. /PF
Skagafjörður
Safnað fyrir Gunnar
Hámenning í sveitinni
Chalumeaux tríóið í
Hofsstaðakirkju
Chalumeaux tríóið ásamt
sópransöngkonunni
Margréti Bóasdóttur heldur
tónleika í Hofsstaðakirkju í
Skagafirði föstudagskvöldið
6. júlí 2012 kl. 21.00.
Efnisskráin sem er tæplega
klukkustundar löng saman-
stendur af verkum eftir Pál
Ísólfsson, Karl Ottó Runólfs-
son, Wolfgang Amadeus
Mozart og fleiri höfunda.
Chalumeaux trióið er
klarínettutríó sem skipað er
klarínettuleikurunum Sigurði
Ingva Snorrasyni, Kjartani
Óskarssyni og Ármanni Helga-
syni sem allir hafa tengst
Sinfóníuhljómsveit Íslands um
áratuga skeið. Chalumeaux er
heiti hljóðfæris sem er for-
móðir klarínettunnar en tónar
klarínettuhljóðfæranna eru
mjög keimlík tónum kirkju-
orgelsins.
Heimafólk og gestir eru
hvattir til að njóta fagurra tóna
í þessari einstöku íslensku
kirkju á fögrum stað í Skaga-
firði. Aðgangur að tónleikun-
um er ókeypis. /PF
Rennur út 11. júlí
Umsóknarfrestur í Húnasjóð
Húnasjóð stofnuðu hjónin
Ásgeir Magnússon og Unnur
Ásmundsdóttir til þess að
minnast starfs Alþýðuskóla
Húnvetninga, sem Ásgeir
stofnaði og rak á Hvamms-
tanga árin 1913-1920.
Tilgangur sjóðsins er að
stuðla að endurmenntun og
fagmenntun í Húnaþingi
vestra.
Á heimasíðu Húnaþings
vestra segir að samkvæmt
skipulagsskrá fyrir Húnasjóð
sem samþykkt var á fundi
sveitarstjórnar þann 12. október
2000 skal sveitarsjóður leggja
sjóðnum árlega til fé skv.
fjárhagsáætlun hverju sinni.
Árlegu framlagi Húnaþings
vestra ásamt hálfum vöxtum
höfuðstóls skal úthluta í styrki á
ári hverju.
Skriflegar umsóknir um
styrk vegna ársins 2012 ásamt
lýsingu á námi skulu berast
skrifstofu Húnaþings vestra,
Hvammstangabraut 5 á
Hvammstanga á þar til gerðum
eyðublöðum í síðasta lagi 11. júlí
nk.
Umsóknareyðublöð má
nálgast á skrifstofu sveitarfél-
agsins eða á heimasíðunni www.
hunathing.is undir liðnum
eyðublöð. /PF
Veðrið um helgina
Væta í
kortunum
Það er talsverð væta í
kortunum.
Samkvæmt veðurspá
Veðurstofu Íslands þykknar
upp á föstudaginn og síðan er
gert ráð fyrir sæmilega hlýju
veðri en rigningu um helgina
en á mánudag lækkar hitinn
um leið og snýst í norðanátt.