Feykir - 05.07.2012, Side 4
4 Feykir 26/2012
Þann 27. júní síðastliðinn
komu heim til Hóla galvaskir
„ungir sveinar“ sem voru að
fagna þeim merka áfanga að
liðin eru sextíu ár frá útskrift
þeirra frá Bændaskólanum á
Hólum í Hjaltadal en það
mun hafa verið árið 1952.
Nutu þeir, ásamt mökum,
velgjörða Ferðaþjónustunnar
á Hólum.
Valgerður B. Stefánsdóttir
rekstrarstjóri Ferðaþjónust-
unnar fannst merkileg hversu
mörg ár væru liðin og hversu
margir komu á Hóla til þess að
taka þátt í endurfundunum.
„Menn og makar gistu hjá
okkur í tvær nætur og borðuðu
góðan mat og skoðuðu svæði
og rifjuðu upp gamlar
minningar um veru sína hér.
Sveinarnir buðu í kvöldverð
nýja rektornum á Hólum henni
Erlu Björk Örnólfsdóttur og
óskuðu henni heilla í nýju
starfi. Skemmst er frá því að
segja að allir fóru þeir glaðir og
ánægðir heim eftir yndislega
dvöl á Hólum og þökkuðu fyrir
sig með virktum“, sagði Val-
gerður. /PF
Góð mæting var við endurfundi Hólanemanna.
( ÁSKORENDAPENNINN ) berglindth@feykir.is
Indriði Þór Einarsson er brottfluttur Skagfirðingur
Ómetanleg lífsgæði
Ég get ekki verið annað
en sammála síðasta
pistlahöfundi um að
fjarlægðin geri fjöllin blá
[í 23. tbl.innsk. blm.].
Nú höfum við fjölskyldan
búið erlendis í nokkur ár
og erum farin að velta því
fyrir okkur hvert stefnan
verður tekin þegar við
komum heim aftur.
Þá kemur oft upp sú
spurning hvort við ættum að
flytja til höfuðborgarinnar,
þar sem við höfum eytt
nokkrum góðum árum við
nám og störf, eða norður í
land á gamlar heimaslóðir.
Í þessum vangaveltum fer
maður að hugsa hversu
frábært það var sem barn
og unglingur að alast upp á
stað eins og Króknum. Það
eru mikil forréttindi falin í
því að alast upp við það
frelsi og áhyggjuleysi sem
mér finnst einkenna minn
uppvöxt á Króknum. Þegar
maður hugsar til baka eru
það einmitt þessir þættir
sem lita æskuminningarnar.
Að hjóla eða hlaupa á
fótboltaæfingu og kæla sig í
Sauðánni á leiðinni heim á
góðviðrisdögum. Að skreppa
niður í fjöru að veiða þegar
manni datt í hug. Að koma
við í smávegis spjall og
hressingu hjá ömmu og afa.
Að fara í 5 mínútna bíltúr
og vera kominn út í sveit.
Að renna sér á snjóþotu
eða sleða í Grænuklaufinni
heilu og hálfu dagana.
Að eyða hluta úr sumrinu
í sumarbústaðnum með
ömmu og afa í ævintýralega
fallegu umhverfi. Allt eru
þetta ógleymanlegar
minningar sem ég myndi
sannarlega óska börnunum
mínum í þeirra uppvexti.
Í einfaldleikanum,
nálægðinni við náttúruna
og samverunni með
fjölskyldu og vinum eru falin
ómetanleg lífsgæði sem
maður kann sífellt betur að
meta eftir því sem árunum
fjölgar. Búandi í erlendri
stórborg eru þetta líka
hlutir sem maður að vissu
leyti fer á mis við. Kannski
er það þess vegna sem
hugurinn leitar sífellt meira
á æskuslóðirnar í Skagafirði
þegar maður hugsar heim
til Íslands.
Hvort við endum í Reykjavík,
Kópavogi, á Króknum
eða einhversstaðar allt
annarsstaðar verður svo
bara að koma í ljós.
- - - - -
Sá sem tekur við pennanum
er Brynjar Elefsen.
Útskriftarafmæli Hólasveina
Hittust eftir 60 ár
Erla Björk, rektor Hólaskóla, þáði velgjörðir af gömlu útskriftarnemunum.
5 silfur og 2 brons
til UMSS
MÍ 11-14 ára í frjálsíþróttum
Gunnar Freyr Þórarinsson (13)
varð í 3. sæti í kúluvarpi.
/Tindastóll
Fríða með þrenn verðlaun.
Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum, fyrir 11-14 ára,
fór fram í Reykjavík um
síðustu helgi.
Keppendur voru 268, þar af
10 Skagfirðingar, sem stóðu sig
vel að venju. Uppskeran í verð-
launum talin, var 5 silfur og 2
brons.
Þau sem verðlaun hlutu voru:
Fríða Ísabel Friðriksdóttir (14)
varð í 2. sæti í 80m grindahlaupi
og langstökki, og í 3. sæti í
hástökki.
Ari Óskar Víkingsson (11) varð í
2. sæti í 60m og 800m hlaupum.
Vala Rún Stefánsdóttir (13) varð
í 2. sæti í kúluvarpi.
Styrkir til náms
Íþróttalýðháskólar í Danmörku
Ungmennafélags Íslands
styrkir ungt fólk til náms í
Lýðháskólum í Danmörku, líkt
og undanfarin ár, en UMFÍ
hefur gert samning við tíu
skóla víðs vegar í Danmörku
og er styrkurinn háður því að
sótt sé um viðkomandi skóla.
Samkvæmt heimasíðu
UMSS er umsóknarfrestur fyrir
styrk á haustsmisseri til 15. ágúst
og senda skal umsóknina á
netfangið sabina@umfi.is. Fyrir
nám á vorönn skal sækja um
fyrir 1. september.
Nánari upplýsingar um skól-
ana er að finna á heimasíðu
UMFÍ . Frekari upplýsingar fást
á Þjónustumiðstöð UMFÍ Sig-
túni 42 í síma 568-2929. /BÞ
Hafðu samband
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is
...allir með!