Feykir - 12.07.2012, Qupperneq 1
fff
BLS. 7
BLS. 4
Jón Geirmundsson varð
Landsmótsmeistari í þolreið
Sigraði þrátt
fyrir að villast
BLS. 5
Helga Hinriks og Páll
Sigurður á Hvammstanga
eru matgæðingar vikunnar
Sushi og nauta-
kjöt í Guinness
Erla Ísafold Sigurðardóttir
mundar áskorendapennann
frá Blönduósi
Tími til að
vakna?
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
27
TBL
12. júlí 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Lið Tindastóls er nú í fimmta sæti í 1. deildinni í knattspyrnu
Fullt af mörkum hjá Stólunum
Meistaraflokkslið karla hjá Tindastóli hefur staðið sig
framar vonum í 1. deildinni í sumar en liðið er í fimmta sæti
deildarinnar að loknum níu umferðum.
Fyrsta deildin er reyndar hnífjöfn og spennandi og það
skilja aðeins þrjú stig að Tindastól og lið BÍ/Bolungarvíkur
sem vermir 11. sætið. Stólarnir hafa hins vegar glatt augað og
boðið stuðningsmönnum sínum upp á fínan fótbolta og hafa
erlendir leikmenn liðsins verið að blómstra. Leikmenn
Tindastóls hafa gert 19 mörk í deildinni og hefur ekkert lið
gert fleiri mörk. Þá hafa verið gerð að meðaltali 4 mörk í þeim
níu leikjum sem Stólarnir hafa spilað í sumar.
Fimm erlendir leikmenn eru í liði Tindastóls, einn frá Haítí
og fjórir Englendingar, þar af þrír bræður; Sebastian, Dominic
og Theodor Furness. Theo og Ben Everson eru markahæstir í 1.
deild með 6 mörk hvor. Miðjumaðurinn Dominic var valinn
leikmaður 9. umferðar hjá Fótbolti.net á dögunum. /Sjá bls. 3
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
Jíha!
GoPro er leiðandi merki í heiminum
á sviði myndavéla sem nota má
við alls konar íþróttir eða jaðarsport
og í raun allt sem mönnum
dettur í hug að gera.
Frábært úrval af minnismerkjum!
Fagmennska - Gæði - Gott verð
Steinsmiðja Akureyrar Glerárgötu 36 Akureyri
Sími 466 2800 sala@minnismerki.is www.minnismerki.is
Ástand túna misjafnt á milli svæða
Norðurland vestra
Útlit er fyrir betri heyuppskeru í
Skagafirði þetta sumarið en í fyrra
samkvæmt Eiríki Loftssyni ráðunauti
hjá Leiðbeiningarmiðstöðinni í
Skagafirði. „Það sem af er hefur
uppskeran verið þokkaleg og eru það
ný tún og mýrlendi sem hafa verið að
koma best út,“ segir Eiríkur en það
eru fyrst og fremst kúabændur sem
hafa verið í heybúskap.
Ólíkt og í fyrra þá segir Eiríkur
hlýindin í sumar hafa gert gæfumun-
inn. „Túnin eru auðvitað í misjöfnu
ásigkomulagi, meira hefur rignt til fjalla
en þurrara er í útsveitum, t.d. út á Skaga,
Fljótum, Viðvíkursveit og Hegranesi,
en útlitið er almennt þokkalegt,“ segir
Eiríkur.
Ekki er sömu söguna að segja úr
Húnaþingi en þar hefur jafnvel rignt
minna en í Skagafirði. Samkvæmt Eiríki
hefur jarðvegurinn mikið að segja, t.d. í
Hrútafirði er hann mjög þunnur en þar
er ástandið sérlega slæmt. Rúv.is greindi
frá því að miklir þurrkar valda bændum
í Húnaþingi áhyggjum en þar hefur lítil
grasspretta verið og sláttur því ekki
kominn á fullt, eins og annars væri á
þessum árstíma. Að sögn Gunnars Rík-
harðssonar, framkvæmdastjóra Bún-
aðarsambands Húnaþings og Stranda,
eru tún víða orðin brún og ljót. Stór
hluti Hrútafjarðar sé einn gulur fláki yfir
að líta. Gunnar segir að á sumum
bæjum er stærsti hluti túnanna illa
farinn vegna þurrkanna og útlit því ekki
gott með heyfeng þar í ár. Þrátt fyrir að
vor síðustu ára hafi verið óvenju þurr
hafi ástandið aldrei verið svo slæmt,
segir Gunnar. Nokkrar áhyggjur eru því
af heyforða á svæðinu fyrir næsta vetur
vegna þessa. /BÞ
Tindastólsmenn fagna
fræknum sigri