Feykir - 26.07.2012, Page 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 9
Níundi kafli í ferðasögu
Kristrúnar Kristjánsdóttur
Með penna
í farteskinu
BLS. 9
Hildur og Hrund eru verk-
efnisstjórar Elds í Húnaþingi
Mikið fjör
í Húnaþingi
Páll Sigurður Björnsson
tjáir sig um tón-lystina
Sextíu og sjötíu
tímabilið í
uppáhaldi
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
29
TBL
26. júlí 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Bíða eftir að eldur kvikni í Húnaþingi
Knáir knattspyrnudrengir á Hvammstanga
Þeir voru áhugasamir fótboltadrengirnir á Hvammstanga
þegar blaðamaður ræddi við þá sl. mánudag í norðan-
nepjunni. En þeir létu veðrið ekki á sig fá og skutu af kappi
á markið svo nóg var að gera fyrir markmanninn. Allir
ætluðu þeir að fara á Eld í Húnaþingi og svöruðu spurningu
vikunnar um það efni sem sjá má á bls. 11. Á myndinni eru
fremst Björn Gabríel og Emil Óli, þá Draupnir, Ólafur og
Stefán. Fyrir aftan þá stendur Benjamín þjálfari. /PF
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
Jíha!
GoPro er leiðandi merki í heiminum
á sviði myndavéla sem nota má
við alls konar íþróttir eða jaðarsport
og í raun allt sem mönnum
dettur í hug að gera.
Frábært úrval af minnismerkjum!
Fagmennska - Gæði - Gott verð
Steinsmiðja Akureyrar Glerárgötu 36 Akureyri
Sími 466 2800 sala@minnismerki.is www.minnismerki.is
Rannsóknir á fornleifum í Málmey
Norðurland vestra
Starfsmenn Fornleifadeildar
Byggðasafns Skagfirðinga og
Byggðasögu Skagafjarðar unnu að
rannsóknum á búsetuminjum í
Málmey 25. júní og aftur
dagana 10. og 11. júlí.
Markmið rannsóknarinnar var að
mæla upp sýnilegar minjar á yfirborði
eyjunnar og aldursgreina valdar minjar
með borkjörnum og könnunar-
skurðum. Einnig var ætlunin að kanna
hvort hægt væri að staðfesta þar forna
kirkju og kirkjugarð.
Á vef Byggðasafns Skagfirðinga
segir að rannsóknirnar hafi leitt í ljós að
í eynni væru margar fornar minjar,
bæði garðlög og tóftir. „Ljóst er að
eyjan hefur verið byggð þegar á 10. öld
og voru vísbendingar um töluverðar
byggðaleifar áður en gjóskan mikla úr
Heklu féll 1104. Bæjarstæðið virðist í
fyrstu hafa legið austanvert á eynni en
það hefur verið flutt , þegar á 11. öld,
ofar þar sem bærinn stóð allt þar til
eyjan fór í eyði“.
Umfangsmesta rannsóknin fór
fram við bæjarstæðið þar sem grafnir
voru þrír könnunarskurðir en grafið var
í garðlag sem liggur í boga suðaustan
undir bæjarhólnum sunnanverðum.
Grunsemdir voru um að þar kynni að
vera kirkjugarðsveggur en heimild eru
um kirkju í Málmey í Auðunarmáldaga
frá 1318.
Engar grafir komu þó fram í skurð-
unum og bíða þær staðfestingar, en
umfangsmeiri uppgraftar mun vera
þörf til að fá úr því skorið. /PF