Feykir - 16.08.2012, Page 2
2 Feykir 30/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Afreks minnst að 75 árum liðnum
Synt yfir Hrútafjörð
Þann 24. ágúst nk. eru liðin
75 ár frá því þessi þrjú ung-
menni þreyttu sundið yfir
Hrútafjörð og af því tilefni ætla
afkomendur og fjölskyldur
sundfólksins að koma saman á
Borðeyri og heiðra minningu
þeirra laugardaginn 25. ágúst.
„Það er von okkar að þetta
verði ánægjuleg samverustund
afkomenda Ástu, Baldurs og
Huldu, enda eigum við það öll
sameiginlegt að í hvert skipti
sem við keyrum Hrútafjörðinn
segjum við: „Mamma/pabbi,
amma/afi synti fyrst yfir
Hrútafjörð!!!“ segir Steinunn
Hjartardóttir, afkomandi Ástu
Jónsdóttur.
Athöfn hefst kl. 13 á tangan-
Aðstoðarbeiðni barst til
björgunarsveita um kl.
21:30 sl. mánudagskvöld
til að aðstoða jeppa sem
sat fastur uppi á hálendi.
Tveir bílar, annar frá Skag-
firðingasveit á Sauðárkróki og
annar frá Flugbjörgunar-
sveitinni í Varmahlíð, með átta
mönnum innanborðs brugð-
ust við aðstoðarbeiðninni og
voru komnir að Hofsjökli,
skammt frá Ingólfsskála, um
miðnætti þar sem jeppinn sat
fastur á kafi í sandbleytu.
Samkvæmt Haraldi Ingólfs-
syni formanni Skagfirðinga-
sveitar var vandasamt fyrir
björgunarsveitarmennina að
komast að jeppanum þar sem
hann sat fastur og þurfti að vaða
út í til að ná honum upp. Aðgerð-
in tók á bilinu 2-3 klukkustundir
og voru þeir komnir til byggða
um kl. 5 um morguninn.
Að sögn Haraldar er mikil
bleyta uppi á hálendi vegna
hita sl. daga og þar að leiðandi
miklir vatnavextir í ám.
Miklar hættur geta skapast
þar um þessar mundir og
biðlar hann til fólks að fara þar
um með gát og að fara ekki út
í jökulsárnar. /BÞ
Hættur á hálendinu
Sátu fastir í sandbleytu
um á Borðeyri þar sem komið
verður fyrir skildi sem segir frá
þessu merkisafreki. Næst
verður farið í Tangarhúsið þar
sem sundfólkinu frænka
verður minnst með orðum og
myndum, ásamt því að afhenta
Minjasafninu á Borðeyri inn-
rammað skjal um afrekið.
Þá geta þeir sem hafa áhuga
endurtekið afrekið og synt yfir,
þeir eru þó vinsamlegast
beðnir um að láta vita tíman-
lega, sama gildir um þátttöku á
mótinu, fyrir 21. ágúst í net-
föngin: steinunn@hnv.is (af-
komendur Ástu), nannasigga@
simnet.is (afk. Baldurs) og
laxmadur@hive.is (afk.
Huldu). /BÞ
„Síðastliðinn þriðjudag syntu yfir Hrútafjörð frá Gilsstöðum
til Borðeyrar Baldur Pálsson 27 ára, Ásta Snæbjörnsson
20 ára og Hulda Pétursdóttir 16 ára, öll frá Borðeyri.
Vegalengdin er um 1100 metrar og synti Hulda hana á 23
mínútum og var um 6 mínútum á undan hinum. Sjávarhiti
var 8 stig. Ekki er kunnugt um að áður hafi verið synt yfir
Hrútafjörð,“ segir í frétt í Morgunblaðinu 27. ágúst 1937.
Þessi tignarlegi Fálki var að spóka sig í veðurblíðunni sl.
sunnudag skammt frá Hjaltastöðum í Blönduhlíð,
Skagafirði og lét ekki á sig fá þótt blaðamaður Feykis
myndaði hann í bak og fyrir.
Sést hafði til Fálkans í vikunni áður og því ekki ólíklegt að
hann hafi gert sig heimakominn á þessum slóðum, enda örugg-
lega nóg af girnilegum músum á stangli úti á ökrunum í
Blönduhlíðinni. /BÞ
Skagafjörður
Tignarlegur fálki
Hjónin Bjarnhildur Hrönn
Níelsdóttir frá Skagaströnd
og Friðrik Kristinsson frá
Sauðárkróki hafa setið föst
með ættleiddar dætur sínar
í kólumbísku borginni
Medellin frá því í desember,
eins og hefur greint frá áður
í Feyki. Ferðin sem átti að
taka sex til átta vikur er
orðin að átta mánuðum og
nú er útlit fyrir fjögurra til
fimm mánaða bið til
viðbótar.
Bjarnhildur og Friðrik
áfrýjuðu máli sínu til næsta
dómsstigs og sagði Bjarnhildur
í samtali við Rúv að það hefur
samþykkt að taka mál þeirra
fyrir og er búist við að sú bið
geti tekið fjóra til fimm mánuði
til viðbótar. Dvölin í Kólumbíu
er orðin mjög fjárhagslega
erfið fyrir hjónin sem hafa
verið tekjulaus frá því í mars.
„Þau hafa selt bílinn, fellihýsið
og mótorhjól til þess að fjár-
magna dvölina úti því þau
segja ekki koma til greina að
gefast upp heldur ætla þau sér
að komast heim með dæturn-
ar,“ segir á Rúv.is.
Margir vilja leggja litlu
fjölskyldunni lið með ýmsum
hætti, t.d. kemur fram á styrkt-
arsíðu hjónanna að fjáröfl-
unarborð verður til styrkar á
Kántrýdögum á Skagaströnd
en þeir sem vilja bætast í
hópinn, leggja eitthvað til eða
aðstoða geta haft samband í s.
868-4925. Þá verður Reykja-
víkurmaraþon þreytt um
næstu helgi og ætlar hópur
fólks, vinir og fjölskyldumeð-
limir, að hlaupa maraþonið og
safna áheitum fyrir fjölskyld-
una (sjá hlaupastyrkur.is). /BÞ
Fjáraflanir á Kántrýdögum og Reykjavíkurmaraþoni
Fjölskyldan enn
föst í Kólumbíu
Hvammstangi
Sumar-
slátrun
tekið vel
Norðlenskir bændur tóku
vel boði Sláturhúss KVH á
Hvammstanga um að hefja
sumarslátrun viku fyrr en
venjulega. Mbl.is greinir
frá þessu.
Á mánudag var slátrað
þar 530 lömbum og verður
kjötið sent ófrosið til
Bandaríkjanna til að lengja
sölutímann í verslunum
Whole Foods.
Magnús Freyr Jónsson,
framkvæmdastjóri slátur-
hússins, segir hafa rennt blint
í sjóinn í samtali við Mbl en
undirtektir verið vonum
framar. Ætlunin var að slátra
500 lömbum að þessu sinni
og skilaði það sér og aðeins
meira til. /BÞ
Dreifnám á Hvammstanga
hefst miðvikudaginn 22.
ágúst en að sögn Þorkels
Þorsteinssonar aðstoðar-
skólameistara FNV hefja 16
nemendur nám að þessu
sinni.
Rakel Runólfsdóttir hefur
verið ráðin umsjónarmaður
dreifnámsins og að sög Þorkels
býður skólinn hana velkomna
til starfa. Kennt verður um
fjarfundabúnað í kennslu-
aðstöðu á neðri hæð sam-
komuhússins á Hvammstanga.
Nemendur munu sækja
námslotur til Sauðárkróks sem
verða tímasettar í tengslum við
viðburði á vegum nemenda-
félagsins. /BÞ
Húnaþing vestra
Dreifnám hefst 22. ágúst
Menning
Barrokk-
smiðja
hlýtur styrk
Barokksmiðja Hólastiftis -
Barokkhátíð á Hólum hlaut
250 þús.kr. styrk úr
Samfélagssjóði Lands-
bankans sl. þriðjudag.
Alls voru veittir tuttugu
styrkir; fimm að upphæð 1
milljón króna hver, fimm að
fjárhæð 500 þúsund krónur
og tíu að fjárhæð 250 þúsund
krónur.
Samkvæmt heimasíðu
bankans bárust tæplega 500
umsóknir bárust um sam-
félagsstyrki að þessu sinni.
/BÞ
Jóhann Björn Sigurbjörns-
son, spretthlaupari úr
Tindastól/UMSS mun
keppa með sameiginlegu
liði Íslendinga og Dana á
Norðurlandamóti 19 ára og
yngri í frjálsíþróttum fer
fram í Vaxjö í Svíþjóð
helgina 18. - 19. ágúst nk.
Samkvæmt heimasíðu
UMSS hafa Íslendingar og
Danir áður sent sameiginlegt
lið til mótsins en að þessu sinni
eru 16 Íslendingar í liðinu og
voru þeir valdir á grundvelli
strangra lágmarka sem sett
voru.
Jóhann Björn mun hlaupa
100m og verður einnig í
boðhlaupssveitum í 4x100m
og 4x400m boðhlaupum.
„Jóhann Björn hefur tekið
miklum framförum í sumar og
um síðustu helgi hljóp hann
100m á 11,05sek, og er kominn
í allra fremstu röð sprett-
hlaupara hér á landi,“ segir á
heimasíðunni. /BÞ
Frjálsar íþróttir
Tekið miklum fram-
förum í sumar