Feykir - 16.08.2012, Blaðsíða 4
4 Feykir 30/2012
Smá í Feyki ::
Síminn er 455 7171
smáAUGLÝSING
Til sölu lóðin Furulundi 7, Varmahlíð í Skagafirði
Gatnagerðargjöld eru greidd. Rafmagn, vatn og klóaklögn eru komin og
tengd. Með lóðinni fylgir stórt hjólhýsi og lítið bjálkahús sem er snyrting og
geymsla. Tilboð óskast.
Eigendur hafa venjubundinn rétt til að taka eða hafna tilboðum sem berast.
Upplýsingar fást í síma 453-8031 eða 845-5499
( ÁSKORENDAPENNINN )
Brynjar Elefsen er brottfluttur Skagfirðingur
Talar vel um
Skagafjörð
Í næsta mánuði eru liðin 12 ár
frá því að undirritaður gerðist
„brottfluttur skagfirðingur“.
Fyrst var leiðinni heitið á
suðurströnd Frakklands til
Aix en Provence í nokkra
mánuði áður en sest var að í
höfuðborginni þar sem maður
hefur dvalist síðan. Óhætt er
að segja að þessi tími hafi
liðið hratt en maður huggar sig
við það að heilmikið hefur jú
gerst í millitíðinni, þannig að
sennilegast hefur þetta liðið
hægar en maður heldur!
Ég hef tamið mér að tala vel
um Skagafjörð og halda heiðri
hans á lofti við hvert einasta
tækifæri sem gefst. Frúin er
löngu búin að gefast upp á
þessu en ég tel að málstaðurinn
sé verðugur. Sem dæmi þá er
alltaf gott veður í Skagafirði,
þar kemur t.d. ekki þoka heldur
hitamistur, þar er aldrei rok
heldur hafgola og svo má lengi
telja. Annað sem legg mikla
áherslu á að halda til haga er
þegar maður er spurður hvort
maður sé „Sauðkræklingur“.
Ég svara yfirleitt á þessa leið:
„Nei, og ertu til í að fallbeygja
orðið krókur fyrir mig og segja
mér hvar kræklingur kemur
þar við sögu“. Yfirleitt verður
spyrillinn kjánalegur en mun
héðan í frá tala réttilega um
„Sauðkrækinga“.
Þegar hugsað er til baka
þá er í raun ótrúlegt hvað
Skagafjörðurinn hefur verið
nálægt manni hérna í c.a. 290
km. fjarlægð. Ég byrjaði að
vinna í árslok 2000 á lagernum
hjá Wurth. Af 10 strákum sem
voru að vinna þar þá vorum við
9 úr Skagafirðinum og þessi
eini, sem var það ekki, átti þá
og á enn, konu frá Sauðárkrók.
Það var því ekki að ósekju
sem Wurth var þá kallað „Litla
Skagfirðingabúðin“. Síðan fór
ég að vinna hjá Fossberg , sem
stofnað var af Skagfirðingi árið
1927 og er annar eiganda þess
í dag ættaður frá Skagafirði.
Síðastliðin 5 ár hef ég starfað
hjá Heklu bílaumboði og þar er
vart þverfóta fyrir Skagfirðingum
enda hefur markaðshlutdeild
Heklu á Norðvesturlandi verið
mjög góð í gegnum tíðina.
Ég hef stundum gantast með að
það eru allir úr Skagafirðinum
og þeir sem eru það ekki.... .þeir
vilja vera það!
- - - - -
Ég skora á Ágúst Inga
Ágústsson frænda minn í
Óðinsvé að taka við pennanum
og óska honum um leið til
hamingju með þrítugsafmælið
um daginn.
Afhjúpun minnisvarða
um Hrafna-Flóka
Minnisvarði um Hrafna-
Flóka landnámsmann var
afhjúpaður í Fljótum sl.
laugardag. Minnisvarðinn
stuðlabergsdrangur
er staðsettur skammt
frá Siglufjarðarvegi í
landi Ysta-Mós. Það
var innanríkisráðherra
Ögmundur Jónasson sem
afhjúpaði minnisvarðann
en hönnuður hans
var Guðbrandur Ægir
Ásbjörnsson.
Áhugahópur um framfarir
í Fljótum stóð fyrir fram-
kvæmdinni. Það var Herdís
Sæmundardóttir sem hafði
orð fyrir þeim sem að
framkvæmdinni stóðu. Hún
ávarpaði allmarga gesti sem
mættu á staðinn og lýsti því í
upphafi hvernig unga fólkinu
í stórfjölskyldunni á Ysta-Mói
var sögð sagan af Hrafna-Flóka
hér fyrrum. Flóki bjó á Ysta-
Mói en þó ekki lengi því hann
trassaði að afla vetrarforða
og fénaður hans féll úr hor
fyrsta veturinn. Kennileiti
í Fljótum Flókadalur og
Flókasteinar hafa þó orðið til
þess að minning hans hefur
lifað góðu lífi í sveitinni og
vera kann að sú staðreynd að
hann gaf landinu nafnið Ísland
hafi haldið minningu hans
meira á lofti en sumra annarra
landnámsmanna.
Frásögn af sögu Hrafna-
Flóka hefur verið komið fyrir
við minnisvarðann og er texti á
íslensku og ensku. Eftir að
Ögmundur Jónasson hafði
afhjúpað minnisvarðann og
Skagafjörður
lýst ánægju með framkvæmd-
ina og verk hönnuðarins var
haldið í félagsheimilið Ketilás.
Þar flutti innanríkisráðherra
ræðu og fjallaði um Hrafna-
Flóka í fortíð og nútíð. Einnig
flutti Hjalti Pálsson ritstjóri
erindi og fjallaði um mannlíf í
Fljótum á fyrri tíð og sagði m.a.
frá forfeðrum sínum sem
ýmsar sögur hafa varðveist af.
Guðrún Halldórsdóttir
þakkaði fyrir að íbúum í
Fljótum hefði í raun verið
færður landnámsmaðurinn. Þá
flutti Herdís þakkir þeim
fjölmörgu aðilum sem höfðu
komið að framkvæmdinni
með einum eða öðrum hætti.
En styrktaraðilar voru Alþingi
Íslendinga, Menningarsjóður
Norðurlands vestra, Menn-
ingarsjóður- og styrktarsjóður
Norvikur og Kaupfélag Skag-
firðinga. /ÖÞ
Texti um Hrafna-Flóka og sögu hans við minnisvarðann.
Herdís Sæmundardóttir, Ögmundur Jónasson og Guðbrandur Ægir.
Það er víðsýnt af Móshöfðanum þar sem minnismerkið er og talsvert af fólki var mætt af þessu tilefni. Myndir ÖÞ: