Feykir


Feykir - 16.08.2012, Page 10

Feykir - 16.08.2012, Page 10
10 Feykir 30/2012 Saga & kirkja samtvinnuð Hátíðarhöld í Skagafirði Árleg Hólahátíð og Sögudagur á Sturlungaslóð voru haldin hátíðleg sl. helgi en að þessu sinni voru haldnir sameiginlegir dagskrárliðir, enda tengjast bæði viðfangsefnin órjúfanlegum böndum. Á Hólahátíð gafst tækifæri til að taka þátt í helgihaldi, fræðsludagskrá og farið í gönguferðir og kynnst gömlum þjóðleiðum sem pílagrímar fóru á leið sinni heim að Hólum til taka þátt í helgihaldi. Hápunktur hátíðarinnar var svo biskupsvígsla frú Solveigar Láru Guðmundsdóttir (sjá bls. 9). Ragnheiður Þórsdóttir vefari, sýndi bæði í máli og verki, miðaldavefnað og hvernig ofið var röggvarfeld við kljásteinsvefstað á vefstól sem settur hefur verið upp í Auðunarstofu. Á laugardaginn hélt Björn Vigfússon sögukennari við MA fyrirlestur í Hóladómkirkju og Laufey Guðmunds- dóttir söng. Sigríður Sigurðardóttir forstöðukona Byggða- safns Skagfirðinga kynnti skilti sem Sturlungahópurinn setti nýverið upp við Víðines í Hjaltadal. Á sama tíma léku börnin sér að miðaldarsið, með hornum, sverðum og skjöldum. Um kvöldið var haldið Ásbirningablót í tilvonandi Kakalaskála í Kringlumýri í Blönduhlíð. Um er að ræða fyrsta viðburðinn sem haldinn er í húsakynnum skálans sem Sigurður Hansen hefur unnið að en hann hefur þegar gert umfangsmikið útilistaverk þar sem Haugs- nesbardagi er sviðsettur á Haugsnesgrundum. Kakala- skáli var fullsetinn og ríkti mikil gleði á meðal gesta í hinum nýja skála. Boðið var upp á girnilegan mat að miðaldarvísu, að hætti Hótel Varmahlíðar. Þar voru fjölmörg skemmtiatriði þar sem Kristín Halla Bergsdóttir mundaði fiðluna og hafði orð á einstökum hljómburði í salnum. Siggi á Ökrum og Jói í Stapa fóru með stemmur en Jói á jafnframt ófá handtökin í smíði Kakalaskálans. Sigurður Sigurðarson kvað stemmu eftir Jóa í Stapa sem var tileinkuð deginum. Agnar Gunnarsson sá um veislustjórn eins og honum einum er lagið og stofnaði við tilefnið Kakalakórinn, sem samanstóð af viðstöddum Heimismönnum og tekið var Undir bláhimni við tilefnið. Kjartan Sigurjónsson organista skipaði Agnar sem stjórnanda Kakalakórisins. /BÞ

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.