Feykir


Feykir - 13.09.2012, Blaðsíða 10

Feykir - 13.09.2012, Blaðsíða 10
10 Feykir 34/2012 Stafnsrétt Lömbin vel þokkaleg Eins og víðast hvar á landinu var réttað í Stafnsrétt í Svartárdal um síðustu helgi í ágætis veðri. Það var ekki eins gott dagana þar á undan þar sem gangnafólk hreppti leiðindaveður á Eyvindarstaðarheiðinni og virtist vera sama í hvaða átt var farið að sögn eins þeirra. Á leiðinni að Hofsjökli fékk gangnafólkið vindinn í fangið sem gerði leitir erfiðar en það sem gerði gæfumuninn var að flogið var yfir svæðið áður en göngur hófust svo vitað var hvar kindurnar héldu sig. Náðust þær allar fyrir utan eina sem ekki fannst. Þrátt fyrir norðan garg og úrkomu smalaðist þokkalega af heiðinni og var það mat manna að lömbin hafi komið vel þokkaleg til byggða. /PF Það er jafnan mikið rætt og spekulerað í réttunum en ekki er vitað hvað þessum herramönnum fór á milli í Stafnsrétt um síðustu helgi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.