Feykir - 20.09.2012, Side 6
6 Feykir 35/2012
Stóðréttir í Víðidalstungurétt
Hlakkar til að sjá hrossin
eftir sumardvöl á heiðinni
Víðidalstungurétt fer fram
þann 6. október nk. og er
það mikið tilhlökkunarefni
fyrir þá sem hana sækja ár
hvert. Feykir ræddi við
Kristínu Guðmundsdóttur
frá Miðhópi en hún hefur
umsjón með að koma
hrossastóðinu af Víðidals-
tunguheiði og niður í
Víðidalstungurétt og má því
segja að hún sé fjalldrottn-
ing Víðdælinga.
„Eitt af því sem fylgir
haustinu eru stóðréttir en því
fylgir alltaf tilhlökkun að sjá
hrossin eftir sumardvöl á
heiðinni,“ segir Kristín en um
500 fullorðin hross munu
koma niður af heiðinni. „Hér í
Víðidalnum er stóðréttin alltaf
fyrsta laugardag í október og
er stóðinu smalað saman
daginn áður, sem í ár er
föstudagurinn 5. október,“
útskýrir Kristín og heldur
áfram: „Gangnamenn fara frá
Hrappstöðum og smala nyrsta
hluta heiðarinnar. Komið er
með stóðið niður að Kolugili
seinni part dags og er stoppað
þar um stund. Í skemmunni á
Kolugili eru seldar veitingar
og þar er lagið tekið. Að því
loknu er stóðið rekið í hólf
skammt frá réttinni og geymt
þar til morguns.“ Kristín
vekur athygli á því að í
kaffiskúrnum við réttina er
hægt að fá kjötsúpu á
sanngjörnu verði frá kl. 17.
Á laugardeginum segir
Kristín að stóðið verður rekið
til réttar kl. 10 og hefjast þá
réttarstörf. Ýmislegt er í boði
við réttina, t.d. kaffiveitingar,
uppboð á hrossum, happa-
drætti og sölutjald. „Og að
sjálfsögðu er réttarball í Víði-
hlíð um kvöldið. Öllum er
velkomið að taka þátt í þessari
hátíð með okkur,“ segir hún
að endingu. /BÞ
Laufskálaréttir
Skagfirsk gleði og gaman
Þrátt fyrir ótíð og ýmsar
hrakfarir hjá sauðfjár-
bændum í Skagafirði
undanfarið halda hrossa-
bændur í fyrrum Hóla- og
Viðvíkurhreppi áætlun hvað
Laufskálaréttir varða. Heyrst
hafði að til stæði að flýta
smölun í Kolbeinsdal vegna
hagleysu en því neitar
Halldór Steingrímsson
fjallskilastjóri og segir að sú
saga sé ekki frá fjallskila-
nefndinni komin. Sauðfé
hraktist eitthvað í dalnum í
hretinu um daginn og hafa
bændur staðið í stórræðum
við að bjarga því en hrossin
stóðu veðrið af sér og hafi
það gott.
Halldór segir að búist sé við
fjölda gesta sem ætli sér að taka
þátt í rekstri stóðsins til réttar
og eru allir velkomnir að
gleðjast með bændum á
þessum degi. Það eina sem fólk
þarf að gera er að vera mætt
með reiðhestinn sinn við
Laufskálarétt eða við hesthúsið
Ástungu klukkan 10 á laugar-
dagsmorguninn en þaðan er
riðið upp í Kolbeinsdal. Réttar-
störf hefjast svo klukkan eitt.
Að sögn Halldórs hefur réttar-
stemningin breyst nokkuð í
gegnum árin og man hann eftir
því þegar komu aðeins nokkrir
í réttina, einhverjir af Króknum
og kannski líka að sunnan.
Líklega væru komin rúm 30 ár
síðan fólk fór að fjölmenna að
einhverju ráði í réttina og
kannski 20 ár síðan farið var að
skipuleggja allt stússið í kring.
–Það eru komin liðlega 30 ár
síðan Hestamannafélagið Stíg-
andi stóð fyrir stórdansleikjum
í Miðgarði til að reyna að koma
fólki saman og jafnvel hafa
einhverjar tekjur af því. Svo tók
upprekstrarfélagið við að halda
böllin en þau voru svo færð í
Reiðhöllina eftir að hún reis
vegna þess hversu fjölmennt
var orðið, segir Halldór og
minnist þess þegar hvað
fjölmennast var í Miðgarði þá
fór fólkið inn um aðaldyrnar
en fylgdi svo straumnum út
bakdyramegin. –En það var
líka gaman og stemningin góð
utan við dyrnar og margir
eignuðust góða vini og gerðu
jafnvel verslun og ég man vel
eftir því að menn handsöluðu
hrossaverslun á tröppunum.
Halldór segir að slík kaup séu
mun fátíðari í réttinni nú en
tíðkaðist áður en eitthvað sé
um þau samt, þó ekki eins og
þau hestakaup sem forfeður
okkar stunduðu. Nú er fólk
búið að skoða hrossin í Feng
áður en falast sé eftir þeim og
hefur það frekar samband
daginn eftir réttirnar núorðið
og er það velkomið.
Stórsýning og dansleikur
Laufskálaréttarhelgin er meira
en göngur og réttir því á
föstudagskvöldið verður stór-
sýning og skagfirsk gleði í
reiðhöllinni Svaðastöðum þar
sem saman koma miklir gæð-
ingar og knapar og keppa í
ýmsum greinum. Hefur mikil
stemning ávallt einkennt þetta
kvöld og ekki við öðru að búast
en svo verði einnig nú.
Á laugardagskvöldinu verð-
ur svo hið landsfræga Lauf-
skálaréttarball þar sem hljóm-
sveitin Von ásamt stórskotaliði
söngvara þeim Siggu Beinteins,
Ingó veðurguði, Jógvan
Hansen og Vigni Snæ munu
koma fram og leiða fólkið inn í
nóttina. /PF
Fjöldi fólks hefur ætíð tekið þátt í stóðsmöluninni í Kolbeinsdal.
Snemma beygist Krókurinn.
Hestar og menn í Laufskálarétt.
Líf og fjör í Víðidalstungurétt.