Feykir - 20.09.2012, Blaðsíða 8
8 Feykir 35/2012
gerast listamaður svarar hún
því til að sjálf listsköpunin
sé ekki val. „Ég er á þeirri
skoðun að listin komi innan
frá, það er bara spurning um
hvenær maður ákveði að
taka listsköpunina alvarlega
og starfa við það. Ég ákvað
að það að vera listamaður
væri mikilvægt fyrir mig til
að skilja heiminn og það gaf
mér ákveðið samhengi til að
geta virkilega rannsakað hann
og gagnrýnt og á sama tíma
skapað eitthvað fallegt með
höndunum, sem ég get deilt
með öðrum,“ segir Melody.
Melody hefur sérhæft
sig í innsetningum þar sem
hún skapar umhverfi t.d.
í leikhúsum, galleríum og
öðrum auðum rýmum. Hún
notast við fjölmarga þætti við
innsetningar sínar, t.d. hljóð,
myrkur, ljós, margmiðlun
og skúlptúra með áherslu á
upplifun skynfæranna. Saman
skapa þessir þættir nýja veröld
til að finna okkur í og sökkva
okkur inní. „Til að skilja sjálf
okkur og samband okkar
við umhverfið og heiminn
verðum við sífellt að kanna
nýja staði og storka sjálfum
okkur, þannig lærum við og
þroskumst. Með því lærum við
með hvaða hætti eiginleikar
okkar móta hugmyndaheim
okkar og umhverfi og öfugt,“
útskýrir Melody.
Þessi atriði segir hún veita
sér innblástur; lífsbarátta og
framþróun fólks og hvernig
samfélag okkar bregst við um-
hverfinu eða beinu áreiti, hvort
sem um er að ræða pólitík,
landfræðileg-, náttúruleg- og
samfélagslegáhrif eða sam-
skipti við okkar nánustu. „Við
getum varpað fram þeirri
spurningu: Hvernig mótumst
við af nánasta umhverfi okkar,
og með hvaða hætti hefur
samfélagið sem við höfum
skapað áhrif á heiminn. Í
framhaldi má spyrja hvernig
það bergmálar til baka, hvernig
heimurinn hefur áhrif á okkur
og samfélag okkar.“
Á spennandi
tímapunkti
Melody var að skipuleggja
ferð til Íslands til að vinna
í listsköpun sinni þegar
hún rakst á auglýsingu eftir
framkvæmdastjóra við Nes
listamiðstöð. „Ég sótti um
starfið og fékk það. Flutningur-
inn var ekki mikið mál þar
sem ég var þegar að vinna
útfrá bæði Íslandi og Ástralíu.
Að flytja hingað var því tilvalin
VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir
Margt spennandi framundan hjá Nes listamiðstöð
- rætt við framkvæmdastjóra Nes
Melody Woodnutt tók við stjórnartaumunum í Nes Listamiðstöð í mars síðastliðnum
og hefur metnaðarfull áform um að gera miðstöðina að suðupunkti menningar og lista.
Í samtali við blaðamann Feykis segir hún m.a. frá því þegar hún sá snjó í fyrsta sinn við
komuna til Skagastrandar. „Ég hafði aldrei á ævinni séð almennilegan snjó. Ég er alin upp
í regnskógi og við norðurströnd Queensland í Ástralíu þar sem ég var vön hita og raka,
ströndum og milljónum manna í stórborgum. Fyrir mér var Skagaströnd einstök – eins
og Narnia,“ segir Melody með bros á vör.
Suðupunktur menningar og
lista á Norðurlandi vestra
Melody kom fyrst til Íslands
árið 2010 þegar hún dvaldi við
listamiðstöðina. Hún segist
hafa kolfallið fyrir landinu, og
Skagaströnd, svo hún snéri
aftur nokkrum mánuðum
síðar. Í bæði skiptin dvaldi hún
í um þriggja mánaða skeið.
„Ég hafði mjög rómantíska
sýn á Ísland sem er mjög
sérkennilegur og skrýtinn
staður - algjör andstæða við
Ástralíu,“ segir Melody og
heldur áfram: „Ég hef búið í
Melbourne, Brisbane, Dublin
og fleiri stórborgum víða um
heim og á nokkrum smærri
stöðum en ekki áður á jafn
smáum bæ og Skagaströnd,“
útskýrir Melody en hún
fluttist til Skagastrandar eftir
sex ára búsetu í Brisbane í
Ástralíu í mars síðastliðnum.
„Í fyrstu leitaði ég að stað
til að heimsækja sem væri
á endimörkum heimsins,
stað sem væri afskekktur og
einangraður. Þá fann ég Nes á
netinu og varð alveg heilluð og
harðákveðin í að koma hingað,
sem ég gerði árið 2010. Ég varð
heilluð af tónlistinni og hvernig
þetta litla land gæti búið yfir
svo mikilli sköpunargleði og
fegurð,“ segir Melody með
hrifningu í röddinni.
Melody hefur eytt undan-
förnum 10 árum á faraldsfæti
til að kanna heiminn og
kynnast nýjum samfélögum
og menningarheimum. Út
af þessari ferðaþrá og ástríðu
fyrir listum segir hún kannski
enga furðu að hún skuli vera
niður komin í alþjóðlegu lista-
mannasetri hinum megin
á hnettinum. Aðspurð um
hvenær hún hafi ákveðið að