Feykir - 20.09.2012, Qupperneq 15
35/2012 Feykir 15
Feykir spyr...
Hefur þú
farið í
stóðréttir?
[ spurt í Kántrýbæ
Skagaströnd ]
ÁSTRÓS VILLA
VILHELMSDÓTTIR
-Já, ég hef farið í Laufskálarétt.
Í hugsa að ég fari ekki í ár,
kannski bara á ballið.
MAGNÚS ÖRN STEFÁNSSON
-Eru þetta ekki stóðréttir hér í
Kántrýbæ – mannstóð.
ÁSA ÓSK ÁSGEIRSDÓTTIR
-Já, ég fór í Laufskálarétt fyrir
mörgum árum. Ég reikna ekki
með því að fara í ár.
TROSTAN AGNARSSON
-Já, ég hef farið í Laufskálarétt.
Ég ætla ekki í ár.
( KROSSGÁTA FEYKIS ) palli@feykir.is
Fe
yk
ile
g
a
f
lo
tt
a
af
þr
e
yi
ng
ar
ho
rn
ið
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina á skilið lag
að eigin vali í réttunum!
Spakmæli vikunnar
Manni getur misheppnast mörgum
sinnum, en hann er ekki misheppnaður
fyrr en hann fer að kenna öðrum um.
– John Burroughs
Sudoku
Þegar Brynbrá Hjálmborg fór í forsetaframboð
stólaði hún á stuðning minnihlutahópa. En
svo bregðast krosstré sem önnur, meirihluti
minnihlutans vildi meira en minna.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Ótrúlegt
(en kannski satt)
Bílflautur eru til margs nýtilegar eins og t.d. við mótmæli.
Háværar bílflautur, seldust upp í verslun einni í Reykjavík
í apríl 2008 en kaupendur vildu láta í sér heyra í
mótmælaaðgerðum sem stóðu þá yfir við Alþingishúsið.
En það sem ótrúlegt og þessu alveg óskylt þá hljóma flautur
flestra amerískra bíla í tóninum F.
Verðlaunakrossgáta
Sendið lausnarorðið á palli@feykir.is. Vinningar eru strigaprent
allt að hálfum fermetra að stærð hjá Nýprenti og leikhúsferð
fyrir 4 á haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks.