Feykir - 04.10.2012, Blaðsíða 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 10
Hjörtur Geirmundsson
er í Rabb-a-babbi
Missir helst ekki
af Spurninga-
bombunni
BLS. 11
Opnuviðtal Feykis er við
Hjördísi Ósk Óskarsdóttur
Heimsleikarnir
eru draumur
allra Crossfittara
Hestar og menn í
Laufskálarétt
Réttað í
rjómablíðu
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
37
TBL
4. október 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Aðgerðir í Skagafirði vegna óveðurs
Umfangsmiklar leitir að baki
Mikið átak var í gangi í Skagafirði sl. laugardag við að
hjálpa bændum að ljúka leitum. Að sögn Vernharðs
Guðnasonar slökkviliðstjóra og formanns
Almannavarnanefndar Skagafjarðar tóku alls 25 manns
þátt í aðgerðunum, frá björgunarsveitum og AS, auk 15
bænda og annarra hjálpfúsra. Nutu þeir aðstoðar þyrlu
Landhelgisgæslunnar sem flaug um fjörðinn í eina og
hálfa klukkustund. Sjá nánar á bls. 3 /BÞ
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
Jíha!
GoPro er leiðandi merki í heiminum
á sviði myndavéla sem nota má
við alls konar íþróttir eða jaðarsport
og í raun allt sem mönnum
dettur í hug að gera.
Haldið af stað í háloftin í þurlu Landhelgisgæslunnar. Mynd: Ari Sigurðsson
Aftur á byrjunarreit
Dómarinn hunsaði tilmæli æðra dómstigs
Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir
og Friðrik Kristinsson upplifuðu
mikil vonbrigði í gær þegar
dómarinn í máli þeirra hundsaði
dóm æðra dómstigs og gaf út
sama dóm og hann gerði í byrjun
júní, og samþykkti ekki
ættleiðinguna.
Hjónin hafa verið í Kólumbíu síðan
í desember á síðasta ári að reyna að
komast heim til Íslands með tvær
ættleiddar dætur sínar.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir okkur og
alla sem koma að málinu,“ sögðu
Bjarnhildur og Friðrik á samskipta-
vefnum Facebook í gær en mál þeirra
er algjört einsdæmi í Kólumbíu.
Bjarnhildi og Friðriki var tjáð að ef
dómarinn myndi ekki gefa út dóminn
eins og æðra dómstigið hafði fyrir-
skipað hann til að gera þá myndi hann
vera rekinn. Þann 6. september gaf
dómarinn út opinbera tilkynningu þar
sem hann sagðist ætla að dæma þeim í
vil en tveim vikum síðar gekk hann á
bak orða sinna og gaf út sama dóminn.
„Við vonum bara að hann verði látinn
fara svo hann geti ekki kvalið fleiri
fjölskyldur,“ sögðu hjónin.
Nú óttast Bjarnhildur og Friðrik að
þau séu komin aftur á byrjunarreit eftir
tæplega 10 mánaða veru í Kólumbíu
sem er erfiður biti fyrir þau að kyngja,
en þau eru staðráðin í að gefast ekki
upp. „Helga og Birna eiga hvergi
annars staðar heima heldur en hjá
okkur og það vita það allir foreldra að
þeir myndu aldrei skilja börnin sín eftir
í ókunnugu landi til að alast upp á
stofnun,“ sögðu þau í lokin. /BÞ