Feykir - 08.11.2012, Side 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 5
Kolbrún og Halldór eru
matgæðingar vikunnar
Grillmenningin í
hávegum höfð
BLS. 11
Björn Jóhann Björnsson
segir frá blaðamanna-
ferlinum og tilurð
Skagfirskra skemmtisagna
Skemmtileg
vinna og mikið
hlegið
Hilmar Þór Kárason heldur
með Arsenal í enska
Illa farið með
peninginn
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
42
TBL
8. nóvember 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Eyrarlandi 1 530 Hvammstanga
Sími: 451 2230 / 894 0969 Fax: 451 2890
Netfang: bilbu@simnet.is
BÍLA- & BÚVÉLASALAN
Aðstaða netaverkstæðisins mun batna til muna með hinu nýja húsnæði.
Enn rísa byggingar á höfninni
Hafnarsvæðið á Sauðárkróki eflist
Á þriðjudag hófst vinna við að reisa nýtt húsnæði Ísfells
á hafnarsvæðinu á Sauðárkróki en þar mun Ísnet,
netaverkstæði fyrirtækisins, hafa aðstöðu í framtíðinni.
Að sögn Rúnars Kristjánssonar rekstrarstjóra Ísnets
mun verkstæðið, sem bæði verður neta- og víraverkstæði,
verða mjög vel útbúið og má búast við meiri og öflugri
starfsemi í framtíðinni. Hjá Ísnet starfa nú tveir menn en
aðstaða verður fyrir 5-6 manns í nýja húsnæðinu sem
verður um 580 fermetrar að stærð.
Rúnar segir að lengi hafi verið stefnt að byggingu húss-
ins og er áætlað að flutt verði inn í það í mars á næsta ári.
/PF
Núna á föstudaginn verða sérfræðingar allan daginn í
Græjubúð Tengils sem veita ókeypis ráðgjöf um hvernig
þú getur lýst upp skammdegið.
Við erum með frábært úrval af útiljósum
og sérfræðingarnir vaða í hugmyndum
varðandi lýsingu utanhúss.
Að sjálfsögðu verður
afmælisterta á staðnum!
í Tengli föstudaginn 9. nóvember
30 milljóna tap HS
Hollvinir senda Guðbjarti bréf
Hollvinum Heilbrigðisstofnunarinnar
þykir ganga hægt að fá viðbrögð frá
Velferðarráðuneytinu og Velferðar-
ráðherra við fyrirspurnum um þær
knöppu fjárveitingar sem Heilbrigðis-
stofnuninni eru ætlaðar árið 2013.
Samkvæmt skýrslu Capacent frá
sept. 2012 ber HS verulega skarðan hlut
frá borði miðað við sambærilegar
stofnanir. Skýrsluna er hægt að skoða á
heimasíðu sveitarfélagsins. Guðbjartur
Hannesson velferðarráðherra var á
Sauðárkróki í gær og fékk í hendurnar
bréf frá Hollvinum sem þar sem
áhyggjur þeirra út af stöðunni er lýst. Í
bréfinu stendur eftirfarandi: „Hollvinir
Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki
(HS) lýsa áhyggjum sínum yfir rekstri
og rekstrarhorfum HS, ef ekki kemur til
leiðrétting á fjárveitingum. Fyrir liggur
að verulega skert þjónusta verður frá
áramótum (eftir 55 daga). Samkvæmt
upplýsingum frá framkvæmdastjóra
HS er nú þegar 30 milljóna tap á rekstri
þessa árs.
Við förum fram á „Samfélagslegt
réttlæti“ en samkvæmt skýrslum
Capacent, nú síðast frá september 2012,
berum við verulega skarðan hlut frá
borði. Er þá sama hvort litið er til
heilsugæslu, sjúkra- eða hjúkrunar-
rýma.“ /PF