Feykir


Feykir - 18.04.2013, Page 6

Feykir - 18.04.2013, Page 6
6 Feykir 15/2013 FRAMSÓKNARFLOKKUR FRAMBJÓÐENDUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS SKRIFA Atvinna er velferð Atvinna Öflugt atvinnulíf er forsenda þess að Ísland verði áfram eftirsótt til búsetu og heim- sókna. Efling atvinnulífsins verður best tryggð með samtali og samvinnu stjórnvalda og þeirra sem eiga og reka stór og smá fyrirtæki. Möguleikar Íslands eru nánast óþrjótandi ef samstarf þessara aðila er með eðlilegum hætti. Það er tómt mál að tala um öflugt velferðarkerfi eða annað sem kostar samfélagið fjármuni ef enginn er til staðar að búa þá fjármuni til. Fjármunir þeir sem þarf til að reka samfélagið verða fyrst og fremst til í öflugu atvinnulífi. Tækifæri til að efla fjárfestingu, skapa atvinnu og búa til verðmæti fyrir íslenskt samfélag verðum við að nálgast fordómalaust, hvort sem þau teljast lítil eða stór, allt verður að skoða. Heimilin Það að leiðrétta verðtryggð fasteignalán sem stökkbreyttust í fjármálahruninu er forsenda þess að heimilin geti aftur orðið virkur þátttakandi í efnahagslífi landsins. Það er hægt að gera með samningum, með því að skattleggja þá fjármuni sem t.d. vogunarsjóðir vilja fara með úr landi, með því að skattleggja hagnað fjármálastofnana o.s.frv. Þetta er hægt ef viljinn er fyrir hendi. En það þarf að grípa til fleiri aðgerða en leiðréttingar. Við lögðum fram frumvarp á alþingi þar sem m.a. er lagt til að þak t.d. 4% verði sett á verðtrygginguna sem þýðir að fari verðbólgan umfram það sé áhættan lánveitandans og að opinberir aðilar hætti að tengja gjaldahækkanir við vísitölu. Það er óeðlilegt að hækkun á bensíni eða áfengi hækki húsnæðislánin. Byggðamál Framsóknarflokkurinn vill að fulltrúar ríkisvalds og sveitar- félaga móti í sameiningu stefnu í byggðamálum sem m.a. byggir á norskri hugmynda- fræði. Landinu verði skipt upp í ákveðin dreifbýlissvæði og á þeim grunni lagðar til almenn- ar byggðajafnréttisaðgerðir. Þessar aðgerðir byggja á því að t.d. skattar, gjöld á einstaklinga og fyrirtæki, afborgunarbyrgði námslána, barnabætur, orku- kostnaður o.fl. er hagstæðara eftir því sem lengra er komið frá þéttbýlli svæðum. Reynsla Norðmanna sýnir að með bættri umgjörð og almennum byggðaaðgerðum er mögulegt að nýta þau fjölmörgu sóknarfæri sem landsbyggðin býður uppá. Almennar byggðaaðgerðir efla ekki einungis dreifbýl svæði landsins heldur fær ríkissjóður og þjóðin öll þetta margfalt til baka í aukinni verðmætasköpun og gjaldeyristekjum. Þá leggj- um við til að komið verði á fót sérstökum jöfnunarsjóði raf- orku sem fjármagnaður yrði með 0,10 kr. skattlagningu á hverja kWst. Fjármagnið yrði síðan notað til að niðurgreiða flutning og dreifingu á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis í dreifbýli og á köldum svæðum. Heilbrigðismál Heilbrigðismál eru einn mikil- vægasti þátturinn í grunnþjón- ustu landsmanna. Þar skiptir engu hvar á landinu við búum. Öllum má vera ljóst að ekki verður meira skorið niður í heilbrigðismálum. Mikilvægt er að þjónustuþörf á hverju svæði sé skilgreind í samstarfi við notendur þjónustunnar og að tryggt sé fjármagn til þeirrar þjónustu. Slíkt samstarf þarf að komast á sem allra fyrst. Húsnæði og tæki Landsspítalans verður að bæta en núverandi hugmyndir verður að endur- skoða og leita hagkvæmari og fljótlegri lausna. Evrópusambandið Framsóknarflokkurinn vill hætta viðræðum við Evrópu- sambandið og að þær verði ekki hafnar að nýju nema að undan- genginni þjóðaratkvæða- greiðslu. X-B er nei við ESB. Gunnar Bragi Sveinsson 1. sæti Framsóknarflokks Ásmundur Einar Daðason 2. sæti Framsóknarflokks Elsa Lára Arnardóttir 3. sæti Framsóknarflokks Jóhanna M. Sigmundsdóttir 4. sæti Framsóknarflokks

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.