Feykir


Feykir - 18.04.2013, Page 22

Feykir - 18.04.2013, Page 22
22 Feykir 15/2013 dagskráin sett inn á allra næstu dögum. Fjöldi viðburða alla daga Aðspurður um hvort það séu einhverjir viðburðir sem standa uppúr í ár svaraði Sigfús að erfitt sé að nefna eitthvað eitt. „En á Forsælunni, vikunni á undan Sæluviku, ber líklega hæst stórtónleika í Menningarhúsinu Miðgarði þar sem fjöldi skagfirskra listamanna kemur fram, auk sérstaks gests sem er Eyþór Ingi Eurovision-stjarna. Á Forsælunni verða einnig tónleikar kvennakórsins Sóldísar á síðasta vetrardag og Skagfirska kammerkórsins á sumardaginn fyrsta, auk þess sem stórsýning hestamanna, Tekið til kostanna, verður í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Fleiri viðburði má nefna sem of langt mál er að telja upp hér,“ sagði hann. „Í Sæluvikunni sjálfri er af nógu að taka og má þar nefna Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks en það sýnir að þessu sinni verkið „Tifar tímans hjól“ í leikgerð og leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar sem er jafnframt höfundur sögu ásamt Árna Gunnarssyni. Öll tónlist í verkinu er eftir Geirmund Valtýsson sveiflukóng Skagfirðinga. Þá verða Sæluvikutónleikar Karlakórsins Heimis, Rökkur- kórsins og skólakórs Árskóla í Menningarhúsinu Miðgarði en gestir þar verður Sellóhljóm- sveit St. Pétursborgar frá Rússlandi. Að tónleikum loknum verður dansleikur þar sem Hvanndalsbræður leika fyrir dansi,“ sagði Sigfús og hélt áfram: „Einnig má nefna myndlistarsýningu Myndlistarfélagsins Sólons í Gúttó, kvikmyndasýningar í Sauðárkróksbíó, kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju þar sem kór kirkjunnar og Sverrir Bergmann Magnússon syngja en ræðumaður kvöldsins er Jón Kristjánsson fyrrverandi ráðherra. Sýning á ljósmyndum Kristjáns C. Magnússonar verslunarmanns verður opnuð í Safnahúsinu en þar er að finna ljósmyndir sem teknar voru á Króknum á árunum 1930-1965 og veita einstaka sýn í samfél- agið á þeim tíma. Viðamikil menningardagskrá verður einnig í Sauðárkróksbakarí, jafnt á Forsælu sem í Sæluviku. Fjöldi annarra viðburða verður alla dagana og ljóst að engum þarf að leiðast. Frekar má búast við að valkvíði muni hrjá einhverja þessa daga,“ bætti hann við. Ýmsar nýjungar á dagskránni í ár Þá sagði Sigfús af ýmsu að taka af viðburðum sem hafa ekki verið á Sæluvikudagskránni áður og vert er að kynna sér nánar. Má þar nefna sjónvarpsmyndina „Sjómannslíf “ eftir Árna Gunnarsson sem verður frum- sýnd í Litla-Skógi, Aðalgötu 26, seinni helgina í Sæluviku en þar verður auk þess viðamikil dagskrá með lifandi tónlist og sýningu á stuttmyndum kvikmyndagerðarnema við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. „Benedikt Lafleur verður einnig með fjölda viðburða í Gallerí Lafleur á Aðalgötunni og Hús frítímans stendur fyrir ljóða- og smásögu- og ljósmyndakeppni. Annars er langbest að vísa í Sæluvikudagskrána því annars er hætt við að eitthvað gleymist sem er ófyrirgefanlegt að nefna ekki,“ sagði hann. Sigfús sagði Sæluviku Skag- firðinga vera eina samfellda hátíð sem setur svip á héraðið ár hvert og auðgar líf okkar svo um munar. „Hátíð sem þessi er ekki hrist fram úr erminni á einni kvöldstund eða svo heldur er það gríðarlegur fjöldi fólks sem hefur lagt á sig ómælda vinnu við undirbúning þeirra fjölmörgu viðburða sem verða í boði. Fyrir það ber að þakka um leið og Skagfirðingum og öðrum gestum á Sæluviku er óskað ánægjulegrar skemmtunar,“ sagði Sigfús í lokin. Sæluvikan, lista- og menningarhátíð Skagfirðinga, verður formlega sett sunnudaginn 28. apríl nk. og stendur yfir til 5. maí. Að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar, verkefnisstjóra hjá Svf. Skagafirði, hefur það gengið nokkuð vel að setja saman dagskrá Sæluvikunnar, enda segir hann það vera gamla sögu og nýja að maður sé manns gaman í Skagafirði. „Þótt vorverkin séu farin að herja á bændur og búalið í þéttbýli sem dreifbýli þá gefa menn sér samt tíma til að skemmta sér og öðrum. Sæluvikan byggir á sterkum grunni sem ein elsta lista- og menningarhátíð landsins og menn horfa gjarnan til þessa árstíma þegar viðburðir eru undirbúnir þótt listviðburðir eða skemmtanir séu reyndar haldin árið um kring hér í Skagafirði og af svo miklum þrótti að sumum þykir jafnvel nóg um,“ sagði Sigfús. Þegar Feykir ræddi við hann (þann 12. apríl) var verið að leggja lokahönd á Sæluvikudagskrána og búa hana til prentunar. Næst á dagskrá var að dreifa henni á öll heimili í Skagafirði í aðdraganda hátíðarinnar þannig að ekkert á að fara fram hjá íbúum héraðsins. En fyrir þá sem geta ekki beðið eftir að fá dagskrána heim til sín er einnig rétt að geta þess að Sæluvika Skagfirðinga er á Facebook og þar verður Spjallað við Sigfús Inga um Sæluviku Skagfirðinga Samfelld hátíð sem setur svip á héraðið VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir Sigfús Ingi Sigfússon er spenntur fyrir Sæluvikunni sem hefst formlega 28. apríl. Meistaradeild Norðurlands – KS deildin Bjarni Jónasar tók töltið með glæsibrag Í síðustu viku var keppt í tölti í KS-deildinni á Sauðárkróki. Bjarni Jónasson sigraði með nokkrum yfirburðum á Randalín frá Efri-Rauðalæk með einkunnina 8,22 en á hæla hans kom Mette Mannseth og Trymbill frá Stóra-Ási með einkunnina 7,61. Stemningin var gríðarlega góð í Svaðastaðahöllinni þetta kvöld og fengu áhorfendur mikið fyrir pen- inginn eins og svo oft áður. Að mati Stefáns Reynissonar hjá Meistaradeildinni var hér líklega á ferðinni sterkasta töltmót sem farið hefur fram í höllinni til þessa. A-úrslit Bjarni Jónasson 8,22 Mette Mannseth 7,61 Ísólfur Líndal Þórisson 7,61 Teitur Árnason 7,56 Hekla Katarína Kristinsd. 7,50 Ísólfur Líndal Þórisson leiðir sem fyrr keppnina með 27,5 stig en Bjarni Jónasson veitir honum harða keppni með 22 stig. Þann 24. apríl, síðasta vetrardag, verður síðasta keppni vetrarins þegar slak- taumatölt og skeið fer fram. Nánari upplýsinga er hægt að leita á hestaumfjöllun Feyki. is. /PF

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.