Feykir


Feykir - 05.12.2013, Blaðsíða 6

Feykir - 05.12.2013, Blaðsíða 6
6 Feykir 46/2013 allar mánaðarlega 5000 krónur inn á sérstakan „Húsbílafélags- reikning,“ seldum notuð föt, skart, spáðum í bolla og lófa. Toppurinn og arðbærasta fjáröflunin var flöskusöfnunin ógurlega og viljum við þakka öllum þeim sem styrktu okkur í því. Ferðin stóð yfir í fjórar vikur og var hin ævintýraleg- asta. „Við vorum í glæsikerru Ford E 350 sem fór einstaklega vel með okkur. Við ókum frá New York og alla leið til San Francisco. Fórum í gegnum tólf fylki og ókum 4579 mílur eða 7369km. á fjórum vikum.“ Upphaflega höfðu stelpurnar ætlað fimm í ferðina, en enduðu fjórar, þær Anna Rún Austmar, búsett á Sauðárkróki, stafsmaður Ólafshúss (dóttir Ástu Rósu Agnars), Agnes Skúladóttir, búsett á Sauðár- króki, eigandi Móðins Hár- stofu, (dóttir Skúla Halldórs og Ernu Hauks), Íris Ósk Elevsen, búsett á Sauðárkróki, starfsmaður Ársala (dóttir Bjöddu Hjartar) og Stefanía Fanney Björgvinsdóttir, búsett í Reykjavík, almannatengill (dóttir Möggu Pé og Björgvins Guðmunds). „Þessi hugmynd var búin að blunda í okkur lengi og eitt hressandi laugardagskvöld í janúar árið 2012 var tekin ákvörðun um að byrja bara að safna fyrir ferðinni, nú rétt tæpum 22 mánuðum seinna er hugmyndin orðin að veruleika. Við byrjuðum á því að leggja Létu gamlan draum rætast Í október síðastliðinn tóku fjórar skagfirskar blómarósir sig til og héldu í húsbílaferð um Bandaríkin. Þar með létu þessar æskuvinkonur gamlan draum rætast, eftir að hafa safnað fyrir ferðinni. Eknir voru rúmlega 7000 km á fjórum vikum, með tilheyrandi ævintýrum og hlátri, eins og nærri má geta. Feykir hafði samband við ferðalangana og fékk að heyra aðeins af þessu ævintýri þeirra. Það var margt að sjá og skoða, en hvað skyldi hafa orðið fyrir valinu? „Við vorum aðallega að skoða menningu Bandaríkjamanna, ásamt því að kíkja í þessar helstu borgir og gera okkar besta í að sjá hvað það var sem hvert fylki hafði uppá að bjóða, einkar skemmtilegt og for- vitnilegt að sjá hvað hvert fylki var einstakt.“ Eins og nærri má geta var mikið fjör í ferðinni. „Já það má sko með sanni segja að það hafi aldrei verið leiðinleg stund. Jafnvel þótt svo að það hafi verið mikið um keyrslu, þá fundum við okkur alltaf eitthvað til að hlæja og skemmta okkur yfir, oftar en ekki yfir því hvernig keyrslan var að ganga.“ Aðspurðar hvort engir karlar hafi verið með í för hlæja þær og svara að bragði: „Nei, þetta er sko skvísuferð!“ Engu að síður vilja þær stöllur þakka fjölskyldum sínum fyrir ómetanlegan stuðning og öllum vinum og vandamönn- um sem lögðu sitt fram við að aðstoða þær í að fjármagna ævintýri þeirra. „Og þá meinum við flöskuframlög af hinum ýmsu stærðum. Margt smátt gerir eitt stórt. Einnig viljum við benda þeim á, sem hafa áhuga á að lesa meira um ævintýrið okkar, að við héldum úti bloggi, www. amerikufarar.wordpress.com.“ Skagfirskar skvísur í húsbílaferð um Bandaríkin UMSJÓN Kristín Sigurrós Einarsdóttir Stefanía , Íris Ósk, Agnes og Anna taka við húsbílnum fyrsta daginn Bloggfærsla frá 9. nóvember Já já…. við erum ennþá hérna ;) Eftir Vegas fórum við hálfa leið til Los Angeles og gistum einhverstaðar í eyðimörkinni… en á tjaldsvæði þó. Eftir nótt í auðninni keyrðum við til Los Angeles og plöntuðum drossíunni á tjaldsvæði í Ponoma, úthverfi LA. Við komuna þar hittum við fólk sem spurði okkur hvort við værum á leiðinni á tónleika… Við grunlausar höfðum ekki hugmynd um að í næstu götu væri Rob Zombie búinn að setja upp 3 draugahús og væri með tónleika þar ásamt 2 öðrum hljómsveitum. Uppselt að sjálfsögðu, en það stoppaði ekki 2 skvísur í að reyna að koma sér á staðinn… eftir brölt yfir grindverk og rölt um hesthús komu þær að baksviðinu og fengu upplýsingar um að hliðið væri mjöööög langt í burtu. Það var snarlega hætt við og farið til baka á tjaldsvæðið. Sunnudagur í miðborg Los Angeles… Byrjuðum á að taka hop on/ hop off rútu þar sem við áttum lífið að leysa á vegna mikils vinds á hraðbrautinni… vorum í toplausri rútu. Röltum um LA og tékkuðum á stjörnunum, bæði þessum á götunni og þessum sem eru úr vaxi og borðuðum svo á Hooters!! Sáum einnig rauða dregilinn þar sem verið var að frumsýna myndina Deliveriman. Fórum heim á tjaldsvæði og skelltum okkur í heitan pott og létum líða úr okkur þreytu dagsins.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.