Fréttablaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 16
Brett Gordon, sem er aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir að mótstöðuþjálfun lækni ekki þunglyndi, en að niðurstöðurnar séu áhugaverðar, ekki síst þar sem þessi þjálfun sé aðgengileg, ódýr og hægt sé að stunda hana heima fyrir. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is MAGNESÍUM VÖKVI FRÁ FLORADIX Magnesíum er nauðsynlegt líkamanum. Magnesíum hjálpar til við vöðva og taugaslökun. Bragðgóð steinefnabland sem inniheldur magnesíum úr lífrænum jurtum. Fæst í apotekum, heilsuvörubúðum og heilsuhillum verslana Samkvæmt nýrri rannsókn frá Limerick-háskóla á Írlandi er mótstöðuþjálfun ekki bara líkamlega holl, heldur líka and- lega. Í rannsókninni, sem var birt í ritrýnda geðlækningatímaritinu JAMA Psychiatry, voru teknar saman niðurstöður úr yfir 30 rann- sóknum sem náðu til tæplega tvö þúsund einstaklinga. Samkvæmt rannsókninni er mótstöðuþjálfun, eins og lyftingar og ýmsar aðrar styrktaræfingar, tengd töluverðri rénun á ein- kennum þunglyndis. Þessi þjálfun styrkir líka bein og hjálpar við að fyrirbyggja ýmsa líkamlega kvilla. Brett Gordon, sem er aðalhöf- undur rannsóknarinnar, segir að mótstöðuþjálfun lækni ekki þunglyndi, en að niðurstöðurnar séu áhugaverðar, ekki síst þar sem þessi þjálfun sé aðgengileg, ódýr og hægt sé að stunda hana heima fyrir. Getur stutt við aðra meðferð Gordon og samstarfsmenn hans greindu niðurstöður 33 klínískra rannsókna sem náðu til 1.877 einstaklinga og í þeim öllum voru skoðuð áhrif mótstöðuþjálfunar á einkenni þunglyndis. Niðurstöður allra rannsóknanna voru að það væri fylgni á milli styrktarþjálfunar og rénunar þunglyndiseinkenna eins og geðlægðar, áhugaleysis og lélegs sjálfsálits, alveg óháð aldri, kyni, heilsufari, æfingarútínu eða aukningu á líkamlegum styrk. Hún er því að minnsta kosti góður stuðningur við aðra þunglyndis- meðferð og Gordon segir að svo virðist sem þjálfunin geri meira gagn fyrir andlega líðan eftir því sem þunglyndiseinkennin eru verri. Þar sem rannsóknin var alfarið byggð á niðurstöðum fyrri rann- sókna var samt ekki hægt að svara því hvers vegna mótstöðuþjálfun hefur jákvæð áhrif né sýna orsaka- sambandið. Allar æfingar hjálpa Gordon segir að það sé ekki hægt að nefna neina eina æfingu eða æfingarútínu sem sé best fyrir geðheilsuna og allar gerðir mót- stöðuþjálfunar hjálpi. Hann leggur til að fólk fylgi leiðbeiningunum frá American College of Sports Medicine, sem mæla með því að stunda styrktarþjálfun að minnsta kosti tvo daga í viku og gera átta til tólf endurtekningar á átta til tíu ólíkum styrktaræfingum í hvert sinn. Mótstöðuþjálfun þarf líka ekki að snúast um lyftingar á lóðum. Það er hægt að nota alls kyns teygjubönd og æfingatæki til að stunda hana. Getur verið öflugt vopn Það er ekki nýr sannleikur að lík- amsrækt bæti andlega heilsu og því kemur niðurstaða rannsóknarinnar ekki á óvart. Aðrar rannsóknir hafa gefið til kynna að með því að auka blóðflæði til heilans geti líkams- rækt breytt uppbyggingu og virkni heilans, skapað nýjar heilafrumur og framkallað losun á boðefnum sem bæta skapið. Þó að í þessari rannsókn hafi einungis verið könnuð áhrif styrktaræfinga hafa ýmsar rann- sóknir sýnt fram á að líkamsrækt dragi úr þunglyndiseinkennum og Gordon segir að það sé enginn marktækur munur á áhrifum mót- stöðuþjálfunar og þolþjálfunar á þunglyndiseinkenni. Auðvitað eru margir flóknir þættir sem móta geðheilsu og líkamsrækt ein og sér eyðir ekki þunglyndiseinkennum. Það getur líka verið mjög erfitt fyrir þunglyndan einstakling að finna orkuna og metnaðinn til að hefja líkamsrækt. En Gordon segir að þessi samantekt sýni að mótstöðu- þjálfun geti verið öflugt vopn í baráttunni gegn þunglyndi. Mótstöðuþjálfun dregur úr þunglyndi Ný rannsókn frá írskum háskóla segir að mótstöðuþjálfun minnki einkenni þunglyndis. Hún bætist í hóp fjölda annarra rannsókna sem sýna að líkamsrækt sé mjög holl fyrir andlega heilsu. Æfingar með lóð eru ein tegund mótstöðuþjálfunar sem getur dregið úr einkennum þunglyndis. NORDICPHOTOS/GETTY 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . M A í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 5 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 4 -C 1 C 0 1 F C 4 -C 0 8 4 1 F C 4 -B F 4 8 1 F C 4 -B E 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.