Fréttablaðið - 15.05.2018, Síða 16
Brett Gordon, sem
er aðalhöfundur
rannsóknarinnar, segir
að mótstöðuþjálfun
lækni ekki þunglyndi, en
að niðurstöðurnar séu
áhugaverðar, ekki síst
þar sem þessi þjálfun sé
aðgengileg, ódýr og hægt
sé að stunda hana heima
fyrir.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
MAGNESÍUM VÖKVI FRÁ FLORADIX
Magnesíum er nauðsynlegt líkamanum.
Magnesíum hjálpar til við vöðva
og taugaslökun.
Bragðgóð steinefnabland sem inniheldur
magnesíum úr lífrænum jurtum.
Fæst í apotekum, heilsuvörubúðum og
heilsuhillum verslana
Samkvæmt nýrri rannsókn frá Limerick-háskóla á Írlandi er mótstöðuþjálfun ekki bara
líkamlega holl, heldur líka and-
lega. Í rannsókninni, sem var birt
í ritrýnda geðlækningatímaritinu
JAMA Psychiatry, voru teknar
saman niðurstöður úr yfir 30 rann-
sóknum sem náðu til tæplega tvö
þúsund einstaklinga.
Samkvæmt rannsókninni er
mótstöðuþjálfun, eins og lyftingar
og ýmsar aðrar styrktaræfingar,
tengd töluverðri rénun á ein-
kennum þunglyndis. Þessi þjálfun
styrkir líka bein og hjálpar við að
fyrirbyggja ýmsa líkamlega kvilla.
Brett Gordon, sem er aðalhöf-
undur rannsóknarinnar, segir
að mótstöðuþjálfun lækni ekki
þunglyndi, en að niðurstöðurnar
séu áhugaverðar, ekki síst þar sem
þessi þjálfun sé aðgengileg, ódýr
og hægt sé að stunda hana heima
fyrir.
Getur stutt við aðra meðferð
Gordon og samstarfsmenn hans
greindu niðurstöður 33 klínískra
rannsókna sem náðu til 1.877
einstaklinga og í þeim öllum voru
skoðuð áhrif mótstöðuþjálfunar á
einkenni þunglyndis. Niðurstöður
allra rannsóknanna voru að það
væri fylgni á milli styrktarþjálfunar
og rénunar þunglyndiseinkenna
eins og geðlægðar, áhugaleysis og
lélegs sjálfsálits, alveg óháð aldri,
kyni, heilsufari, æfingarútínu eða
aukningu á líkamlegum styrk.
Hún er því að minnsta kosti góður
stuðningur við aðra þunglyndis-
meðferð og Gordon segir að svo
virðist sem þjálfunin geri meira
gagn fyrir andlega líðan eftir því
sem þunglyndiseinkennin eru
verri.
Þar sem rannsóknin var alfarið
byggð á niðurstöðum fyrri rann-
sókna var samt ekki hægt að svara
því hvers vegna mótstöðuþjálfun
hefur jákvæð áhrif né sýna orsaka-
sambandið.
Allar æfingar hjálpa
Gordon segir að það sé ekki hægt
að nefna neina eina æfingu eða
æfingarútínu sem sé best fyrir
geðheilsuna og allar gerðir mót-
stöðuþjálfunar hjálpi. Hann leggur
til að fólk fylgi leiðbeiningunum
frá American College of Sports
Medicine, sem mæla með því að
stunda styrktarþjálfun að minnsta
kosti tvo daga í viku og gera átta
til tólf endurtekningar á átta til tíu
ólíkum styrktaræfingum í hvert
sinn.
Mótstöðuþjálfun þarf líka ekki
að snúast um lyftingar á lóðum.
Það er hægt að nota alls kyns
teygjubönd og æfingatæki til að
stunda hana.
Getur verið öflugt vopn
Það er ekki nýr sannleikur að lík-
amsrækt bæti andlega heilsu og því
kemur niðurstaða rannsóknarinnar
ekki á óvart. Aðrar rannsóknir hafa
gefið til kynna að með því að auka
blóðflæði til heilans geti líkams-
rækt breytt uppbyggingu og virkni
heilans, skapað nýjar heilafrumur
og framkallað losun á boðefnum
sem bæta skapið.
Þó að í þessari rannsókn hafi
einungis verið könnuð áhrif
styrktaræfinga hafa ýmsar rann-
sóknir sýnt fram á að líkamsrækt
dragi úr þunglyndiseinkennum
og Gordon segir að það sé enginn
marktækur munur á áhrifum mót-
stöðuþjálfunar og þolþjálfunar á
þunglyndiseinkenni.
Auðvitað eru margir flóknir
þættir sem móta geðheilsu og
líkamsrækt ein og sér eyðir ekki
þunglyndiseinkennum. Það
getur líka verið mjög erfitt fyrir
þunglyndan einstakling að finna
orkuna og metnaðinn til að hefja
líkamsrækt. En Gordon segir að
þessi samantekt sýni að mótstöðu-
þjálfun geti verið öflugt vopn í
baráttunni gegn þunglyndi.
Mótstöðuþjálfun
dregur úr þunglyndi
Ný rannsókn frá írskum háskóla segir að mótstöðuþjálfun minnki einkenni þunglyndis. Hún
bætist í hóp fjölda annarra rannsókna sem sýna að líkamsrækt sé mjög holl fyrir andlega heilsu.
Æfingar með lóð eru ein tegund mótstöðuþjálfunar sem getur dregið úr einkennum þunglyndis. NORDICPHOTOS/GETTY
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . M A í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-C
1
C
0
1
F
C
4
-C
0
8
4
1
F
C
4
-B
F
4
8
1
F
C
4
-B
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K