Fréttablaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 22
Við létum drauminn rætast og opnuðum í desember 2015. Það hefur gengið
ótrúlega vel. Þessi ár höfum við
stigið okkar fyrstu skref í eigin
rekstri og það er einstaklega
skemmtilegt og lærdómsríkt
ferli,“ segir Kristjana um draum
þeirra Einars sem hefur blómstr-
að og dafnað allar götur síðan.
Saman eiga þau fjögurra ára
dóttur og því geta dagarnir verið
heilmikið púsluspil, eins og
gengur.
„Vinnudagarnir geta verið
langir og strangir en við njótum
þess láns að fá ómetanlegan
stuðning frá fjölskyldu og vinum.
Án þeirra gætum við ekki unnið
jafn vel að VON. Það er krefjandi
og gefandi á sama tíma, alls ekki
fyrir alla, en blóð, sviti og tár er
lífsstíll,“ segir Kristjana hlátur-
mild.
Kokteilar, stemning
og íslensk matargerð
Kvöldseðill VONAR saman-
stendur af minni og stærri réttum;
dýrindis kjöt-, fisk-, grænmetis- og
veganréttum og gómsætum eftir-
réttum.
„Við bjóðum upp á eitthvað
fyrir alla og leggjum mikið upp úr
árstíðabundinni íslenskri matar-
gerð, hvort sem það er grænmeti
eða sjávarafurðir. Fiskinn fáum
við glænýjan beint úr næsta húsi,
eða frá Hafinu sem stendur við
höfnina,“ útskýrir Kristjana. VON
býður einnig úrval léttra rétta sem
er tilvalið að deila og þriggja rétta
samsettan matseðil.
Á VON er indælt að tylla sér inn
og eiga notalega kvöldstund yfir
mat og drykk.
„VON á alltaf vel við; í góðum
félagsskap, með ástinni, fyrir
tónleika eða leikhús. Á barnum
er freistandi úrval kokteila og
hægt að panta okkar vinsæla hús-
kokteil beint af krana sem vakið
hefur mikla lukku. Við lögum líka
okkar eigið dásamlega súrsæta
límonaði, bökum okkar eigið
brauð á hverjum morgni og mat-
reiðum allan mat frá grunni af
mikilli ástríðu,“ segir Kristjana.
Í hádeginu á þriðjudögum til
föstudags er „happy hour“ af
völdum drykkjum á VON þar sem
framreiddir eru réttir dagsins á
sanngjörnu verði, og á laugar-
dögum er fjölskyldubrönsinn
vinsæli og einnig er hægt að
gæða sér á fiski dagsins, vöfflum,
límonaði og mímósu, svo fátt sé
upptalið. Lokað er á sunnudögum
og mánudögum, en í júní, júlí og
ágúst verður opið á sunnudags-
kvöldum.
„Okkur er kært að byggja
upp heilbrigt og jákvætt vinnu-
umhverfi til lengdar, bæði fyrir
okkur sjálf og starfsfólkið. Við
erum fjölskyldurekinn staður og
því er mikilvægt að allir fái hvíld
inn á milli til að sinna fjölskyld-
unni og öðrum áhugamálum,“
segir Kristjana.
Gott að lifa og starfa
í Hafnarfirði
Kristjana er uppalinn Hafn-
firðingur og segist aldrei hafa
upplifað Hafnarfjörð eins og nú.
„Bærinn hefur breyst mikið
undanfarin ár og það er
yndislegt að fylgjast með iðandi
mannlífi og lifandi starfi hér alla
daga. Ný kaffi- og veitingahús
gæða bæinn miklu lífi og Bæjar-
bíó heldur sannarlega áfram að
toppa sig. Hafnfirðingar og gestir
þeirra kunna svo sannarlega að
meta fjölbreytni í þjónustu og
verslun í þessum fagra bæ. Svo
er náttúrlega alkunna að Hafn-
firðingar eru hresst og skemmti-
legt fólk heim að sækja,“ segir
Kristjana og hlær.
Kristjana og Einar eru virk á
samfélagsmiðlum og hægt að
fylgjast með daglegu amstri á
bak við tjöldin á vonmathus á
Instagram og Facebook.
VON mathús og bar er á Strand-
götu 75. Sjá vonmathus.is. Sími 583
6000. Netfang: info@vonmathus.is.
Það er VON í Hafnarfirði
Veitingaparið Kristjana Þura Bergþórsdóttir og Einar Hjaltason reka veitingahúsið VON mathús og
bar við höfnina í Hafnarfirði. Þar er eldað af mikilli ástríðu og veittur húskokteill af krana.
Veitingaparið Kristjana Þura Bergþórsdóttir og Einar
Hjaltason á VON mathúsi og bar.
VON er rómað fyrir ljúffengan mat úr fersku hráefni og
matarupplifanir sem gleðja alla sem unna góðum mat.
VON mathús og bar er glæsilega innréttað og hægt að láta fara einkar vel um
sig yfir gómsætri, íslenskri matargerð, dýrindis kokteilum og góðri þjónustu.
Fyrsta víkingahátíðin í Hafnar-firði var haldin á Víðistaða-túni árið 1995 og þetta er
fjórða hátíðin sem verður haldin
þar,“ segir Hafsteinn sem hefur
veitt Rimmugýgi forstöðu frá
upphafi. „Þetta er eiginlega svona
endurvakning á fyrstu hátíðinni,“
bætir Haukur við en hann er svo-
kallaður búðastjóri. „Jóhannes
á Fjörukránni hefur staðið að
hátíðinni undanfarin ár en hefur
ákveðið að draga sig út úr þessu
hátíðahaldi og þar sem Rimmu-
gýgur hefur verið þátttakandi
í Víkingahátíð í Hafnarfirði frá
upphafi fannst okkur viðeigandi
að snúa aftur til upphafsins.“
Þeir segja að þessi hátíð verði
í grunninn eins og hátíðin við
Fjörukrána. „Það verða veitingar
til sölu og bardagasýningar, hand-
verk, markaður og víkingaskóli
barnanna eins og verið hefur,“
segir Hafsteinn,“ en við rukkum
ekki aðgangseyri, sem er kannski
ein helsta breytingin.“ Haukur
segir enn fremur að það sé að
mörgu leyti betra að vera á grasi.
„Á túninu erum við miklu nær
náttúrunni og þeim heimi sem við
viljum búa til. En gallinn er sá að
við erum ekki jafn miðsvæðis og
þegar við erum í hjarta Hafnar-
fjarðar. Við efumst samt ekkert
um að fólk muni finna okkur því
Víðistaðakirkja er mjög auðvelt
kennileiti,“ segir Haukur.
Stofnfélagar í Rimmugýgi voru
sjö en í félagi eru nú um 200
félagar, þar af hundrað og fimmtíu
sem eru virkir í starfinu. „Við erum
héðan og þaðan,“ segir Hafsteinn.
„Mest af höfuðborgarsvæðinu
þó að þó nokkrir félagar búi úti á
landi eða erlendis. Á sumrin förum
við milli hátíða, bæði hér á landi
og erlendis með tjaldbúðirnar
okkar og búnaðinn en á veturna
æfum við bardaga og bogfimi og
sinnum handverki.“ Haukur bætir
við að félagið geri ákveðnar kröfur
um að búnaður og fatnaður fylgi
settum reglum. „Félagar þurfa
helst að sauma sinn eigin búning
og við höfum mjög flinkar sauma-
konur og saumamenn sem eru
mjög dugleg að hjálpa öðrum að
búa til sinn eigin útbúnað, hvort
sem er fatnað, tjöld, skó, hanska
og svo ýmsa muni sem við þurfum
eins og eldunaráhöld og þess
háttar.“
Rimmugýgur er með félags-
heimili og lögheimili í Hafnarfirði.
„Hafnarfjarðarbær hefur staðið
þétt við bakið á okkur undanfarin
ár,“ segir Hafsteinn og Haukur
bætir við: „Við finnum mikla
velvild meðal bæjarbúa sem hafa
verið duglegir að sækja hátíðina
og vonumst til að sjá sem flesta á
Víðistaðatúni í júní.“
Víkingahátíðin stendur frá
14.-17. júní og er opin frá 13-19 alla
dagana. Hún er haldin við Víði-
staðakirkju þar sem eru bílastæði
en einnig stoppar vagn númer eitt
skammt frá. Aðgangur er ókeypis.
Víkingahátíð á Víðistaðatúni
Víkingahátíð hefur verið haldin í Hafnarfirði í hartnær tvo áratugi, oftast kringum 17. júní.
Víkingafélagið Rimmugýgur hefur tekið við hátíðinni sem í ár verður haldin á Víðistaðatúni.
Hafsteinn Pétursson og Haukur Hallsteinsson eru félagar í Rimmugýgi.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Tjöld og allur búnaður félagsmanna í
Rimmugýgi er handgerður af félags
mönnum en hægt verður að kynna
sér handverk víkinga nánar á Víði
staðatúni 14. 17. júní.
MYND/ÞORsTEiNN R. iNGólfssON
Á Víkinga
hátíð má reyna
sig í ýmsum
íþróttum,
meðal annars
eggjakasti.
MYND/
ÞORsTEiNN R.
iNGólfssON
Bogfimi er
eitt af því
fjölmarga sem
verður í boði
á hátíðinni.
Hér má sjá
Elínu Reynis
dóttur spenna
bogann.
MYND/
ÞORsTEiNN R.
iNGólfssON
6 KYNNiNGARBlAÐ 1 5 . M A í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RHAfNARfjöRÐuR
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
4
-A
E
0
0
1
F
C
4
-A
C
C
4
1
F
C
4
-A
B
8
8
1
F
C
4
-A
A
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K