Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 8
AÐALFUNDUR Sögufélags verður haldinn fimmtudaginn 31. maí kl. 18-19 í Fundarsal Þjóðskjalasafns Íslands Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf • Sögukvöld kl. 19:30-22 með kynningum á nýju efni í Sögu – Tímariti Sögufélags Stjórnin Octavia Limo G-Tec Sjálfskiptur Listaverð: 3.550.000 kr. Afsláttur: -360.000 kr. Verð frá: 3.190.000 kr. ŠKODA Superb Limo Ambition Listaverð: 5.060.000 kr. Afsláttur: -480.000 kr. Verð frá: 4.580.000 kr. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is Nú bjóðum við takmarkað magn valdra bíla frá ŠKODA á frábæru tilboðsverði. Stundum þarf maður ekki að hugsa sig tvisvar um – gríptu þetta einstaka tækifæri og náðu þér í nýjan ŠKODA á snilldarverði. Hlökkum til að sjá þig! 5 á ra á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H E K LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d Šumarverð ŠKODA ŠKODA Á SNILLDARLEGU SUMARTILBOÐI! Kíktu á hekla.is/skodasu mar og sjáðu öll sumartilboðin ! PALESTÍNA Útfarir Palestínumanna sem féllu fyrir kúlum Ísraelshers í fyrradag fóru flestar fram í gær. Minnst tveir til viðbótar féllu í gær í áframhaldandi mótmælum. Minnst 58 palestínskir mótmæl- endur féllu í mótmælum á Gaza- ströndinni í fyrradag og um 2.700 særðust. Meðal hinna látnu voru átta börn yngri en sextán ára, þar af eitt átta mánaða að aldri. Fólkið hafði komið saman við öryggisgirðinguna við landamæri Ísraels og kveikt í dekkjum, kastað grjóti, lausamunum og smásprengjum yfir girðinguna. Því var svarað með byssukúlum úr rifflum ísraelskra hermanna. Viðbrögð Ísraelsmanna hafa verið harðlega gagnrýnd af alþjóðasam- félaginu en Sameinuðu þjóðirnar (SÞ), Bretar, Frakkar og Rússar eru meðal þeirra sem fordæmt hafa aðgerðirnar. Ísraelar hafa borið því við að þeir hafi verið að svara mót- mælendum í sömu mynt. Bandaríkin hafa stutt sjálfsvarnarrétt Ísraela. Mótmæli hafa verið daglegt brauð á Gaza frá lokum marsmánaðar en síðan þá hafa 109 Palestínumenn hið minnsta fallið og áætlað er að um 12 þúsund hafi særst. Mótmælin náðu hámarki í fyrradag en þá var sendi- ráð Bandaríkjanna í Ísrael formlega flutt frá höfuðborginni Tel Avív til Rannsakað af stríðsglæpadómstólnum Jerúsalem. Borgin helga hefur lengi verið bitbein þjóðanna tveggja og telja Palestínumenn að tilfærslan styrki tilkall Ísraela til hennar. Málið var rætt í Öryggisráði SÞ í gær en fulltrúi Kúveits lagði fram drög að yfirlýsingu sem kvað á um yfirlýsingu um reiði og sorg vegna dauða Palestínumannanna. Þar var einnig kveðið á um sjálfstæða rann- sókn á atvikinu og að aðildarríki SÞ virtu ályktun Öryggisráðsins um að setja ekki upp sendiskrifstofur í Jerú- salem. Bandaríkin beittu neitunar- valdi sínu þegar greidd voru atkvæði um tillöguna. Dagurinn í gær markaði 70 ára afmæli Nakba, eða katastrófunnar, en 15. maí 1948 neyddust hundruð þúsunda Palestínumanna til að yfir- gefa heimili sín vegna hins nýstofn- aða Ísraels. „Ég skal tala alveg hreint út. Þegar Palestínumenn tala um réttinn til að snúa aftur, þá meina þeir í raun eyðingu Ísraels,“ sagði Danny Danon, fastafulltrúi Ísraels hjá SÞ, þegar málið var rætt í Öryggisráðinu. Riyad Mansour, sendiherra Palestínu við SÞ, sakaði Ísraela á móti um stríðs- glæpi. „Síðustu átta vikur höfum við grát- beðið ykkur um að koma í veg fyrir fjöldamorð Ísraela á Palestínumönn- um. Gæti verið að ekki hafi verið hlustað á okkur og aðvaranir ekki teknar alvarlega?“ sagði Mansour. Fatou Bensouda, aðalsaksóknari Alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins í Haag, sendi AFP-fréttastofunni yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hún hefði atvikið til rannsóknar. „Starfsfólk mitt fylgist náið með vendingum stöðunnar og kannar hvort heimild sé til saksóknar vegna mögulegra brota sem falla innan lögsögu dómstólsins,“ segir í yfir- lýsingunni. Hún bætti því við að ofbeldinu yrði að linna og hvatti stríðandi aðila til að láta af aðgerðum sem gætu haft frekari dauðsföll í för með sér. Þá brýndi Bensouda fyrir Ísraels- mönnum að gæta hófs í aðgerðum sínum og að láta af gegndarlausri valdbeitingu sinni. joli@frettabladid.is Riyad Mansour sendiherra Palestínu hjá SÞ, ofarlega á myndinni, og Danny Danon, fastafulltrúi Ísraels, tókust á fyrir Öryggisráðinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Um tólf þúsund hafa særst í mótmælum á Gazaströndinni frá mars- lokum. Öryggisráðið fundaði í gær vegna mannfallsins á sunnu- dag. Aðalsaksóknari stríðsglæpadómstólsins fylgist náið með málum. 1 6 . m A Í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U R8 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A Ð I Ð 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 8 -2 7 F C 1 F C 8 -2 6 C 0 1 F C 8 -2 5 8 4 1 F C 8 -2 4 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.