Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Hvernig er hægt að vera annað en him-inlifandi? Við erum öll í skýjunum,“ segir Benedikt Erl-ingsson, leikstjóri myndarinnar Kona fer í stríð sem hefur fengið einróma lof gagnrýn- enda á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Í kvöld verður verðlaunaafhend- ing þar sem mynd Benedikts er til- nefnd og ætlar hann að mæta rólegur til athafnarinnar enda líði honum þegar eins og sigurvegara. „Við, sem stöndum að myndinni, upplifum að við höfum þegar fengið verðlaun með þessum hlýju móttökum,“ segir hann stoltur. Fréttablaðið var ekki eini mið- illinn sem var búinn að ná í skottið á honum því það rigndi inn viðtals- beiðnum, nánast á meðan þetta við- tali stóð yfir. „Ég er búinn að vera í stanslausum viðtölum að tala um myndina og land og þjóð. Það er mikill áhugi á myndinni og  það er gaman að finna að hún virðist ná til fólks af öðru þjóðerni en íslensku.  Ég hlakka svo ofsa- lega til að sýna Íslendingum hana. Fá að upplifa hana hana með íslensk- um áhorfendum því það er fullt af hlutum í henni sem útlendingar skilja ekki en er miðað beint að okkur.“ Halldóra Geirharðsdóttir, aðal- leikkona myndarinnar, hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Benedikt segir að það komi sér ekkert á óvart. „Þetta er hasarmynd. Þetta er hetja að bjarga heiminum og hún þarf að gera ýmislegt erfitt. Halldóra gerir sín eigin áhættuatriði og ég lofa einum dropa af blóði,“ segir hann kíminn. „Þegar maður hefur svona fína leikkonu sem vílar ekkert fyrir sér þá ganga hlutirnir vel. Franskar leik- konur hefðu aldrei látið bjóða sér þetta. Kannski er það þess vegna sem Frakkarnir eru svona hrifnir af þessari mynd og hennar frammistöðu.“ benediktboas@frettabladid.is Líður þegar eins og sigurvegara Kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð, hefur fengið geggjaðar móttökur á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Leikstjórinn segir að sér líði þegar eins og sigurvegara. umsagnir um myndina Kona fer í stríð eða Woman at War var frumsýnd um helgina á Cannes Film Festival við frábærar undirtektir. Gagnrýnendur erlendra miðla, vef- og kvikmyndatímarita keppast nú um að hrósa myndinni. Halldóra Geirharðsdóttir tæklar líkamlega erfitt hlutverk af mikilli sannfæringu. Screendaily Kona fer í stríð mun að öllum líkindum kveðja sér hljóðs á kvik- myndahátíðum um allan heim. Screendaily Kona fer í stríð er frábært dæmi um mynd sem dansar listilega á milli kvikmyndaflokka. Hvort tveggja í senn, grín og drama, með afar sterka meðvitund um hina marglaga baráttu við hnattræna hlýnun. Cineuropa Veftímaritið Cineuropa segir að Benedikt takist að skapa snilldar- lega uppbyggða kvikmynd þar sem þyrildi og kindur mæta aðalsögu- hetjunni á hugsjónavegferð hennar í fullkomnum ramma íslensks landslags. Variety segir myndina takast á við gríðarmikilvæg umræðuefni á mannlegan og djúpstæðan hátt. Halldóra Geirharðsdóttir leikur kórstjóra á fimmtugsaldri, sem ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Njóttu þess að fara í sund / sjósund Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra eyrnaböndum og eyrnatöppum Hannað af háls- nef- og eyrnalæknum Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með rör í eyrum eða viðkvæm eyru. Til í þremur stærðum. S - frá 1. til 3. ára M - frá 4. til 9 ára L - frá 10 ára og eldri ( fullorðnir ) Fæst í apótekum, Sundlaug Kópavogs, Útilíf, Heimkaup og barnavöruverslunum. Pakkinn inniheldur bæði eyrnatappa og eyrnaband. Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Og þú hitar bílinn með fjarstýringu – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 1 27.10.17 14:2 21° Tilfinning BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is ÁLið Kona fer í stríð fjallar um kórstjóra sem ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Benedikt hefur ákveðna skoðun á stóriðju. „Álið er mikilvægur málmur en hann er dýr fyrir náttúruna að framleiða. Öll sóun á áli er eitthvað sem við þurfum að breyta. Við erum að sóa of miklu. Um 85 prósent af orkunni okkar fer í að framleiða það og fyrirtækin borga ekki skatta hingað. Við fáum of lítið af arðinum til baka. Þetta þykir ótrúlegt hér og gerist bara í Afríku og einhverjum nýlendum. Ég vona að við Íslendingar séum komnir lengra en þetta.“ 1 6 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F C 8 -1 4 3 C 1 F C 8 -1 3 0 0 1 F C 8 -1 1 C 4 1 F C 8 -1 0 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.