Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jónu Hrannar Bolladóttur BAkþAnkAR Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Þegar ég ólst upp voru nokkrir meistarar hafðir í hávegum á heimili mínu. Þar var Andrés Björnsson útvarpsstjóri. Þegar hann flutti sína áramótaræðu ríkti dauðaþögn í stofunni. Þá var Kristján Eldjárn forseti sem þjónaði af hógværð og þekkingu. Einnig Sigurbjörn Einarsson biskup, sá orðsins og andans maður. Eins séra Friðrik Friðriksson sem enn í dag er mér stór fyrirmynd í starfi og ég hef hugsað hve stórkostlegt hefði verið að fá að hitta hann. Og svo var það Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur sem var svo mikill sálusorgari og óborganlegur húmoristi að enn lifa af honum sögurnar. Ung heyrði ég hvernig hann hefði sinnt sínum skyldum í Reykjavík í spænsku veikinni. Á þremur vikum hafði hann jarðsung- ið 115 manns og talað persónulega yfir hverri kistu, en heim til hans og frú Áslaugar lá sífelldur straumur syrgjandi fólks. Ég naut þess fyrir nokkru að heyra röddina hans í gömlu útvarpsviðtali, svo hrjúfa og sterka og litríkur persónuleikinn skein í gegn. Mér leið eins og ungl- ingsstúlku að hlusta á „Bíberinn“. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvernig þessir höfðingjar hefðu mætt ágangi fjölmiðla, kommenta- kerfa og Facebook-statusa og í ljósi þess fundist þeir hafa lifað gósen- tíð í samanburði við sálusorgara dagsins í dag. Þess vegna var það dálítið hollt fyrir mig að rekast á orð séra Bjarna þegar hann segir: „Kirkjan hverfur ekki vegna þess að hún byggir á Guði. Hvernig var það í fornöld? Hvernig leit út fyrir kirkjunni í stjórnarbyltingunni frönsku þegar kristindómurinn var opinberlega afnuminn? Eða 1905 þegar kirkja og ríki voru aðskilin í Frakklandi og einn stjórnandinn sagði: „Nú höfum við slökkt ljósin á himninum.“ Þau ljós loga enn. Og þau skulu varpa skærum ljóma, einnig hér á landi.“ Séra Bjarni Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Útskriftarskraut! Finndu okkur á NAMASTE Í NÝJU-DELÍ NÝR WOW ÁFANGASTAÐUR KYNNINGARVERÐ FRÁ 19.999 KR.* WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka. Já, þið lásuð rétt. Við erum á leiðinni til Nýju–Delí, höfuðborgar Indlands. Langþráð, beint flug frá Íslandi til þessa ótrúlega ævintýralands í austri. Að sjálfsögðu í glænýjum Airbus A330neo þotum okkar. Bókaðu núna. 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F C 8 -0 0 7 C 1 F C 7 -F F 4 0 1 F C 7 -F E 0 4 1 F C 7 -F C C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.