Fréttablaðið - 17.05.2018, Qupperneq 2
Veður
Vaxandi suðaustanátt í dag, víða 13-
18 m/s og talsverð rigning sunnan-
og vestanlands síðdegis. Heldur
hægari vindur og þurrt á Norður- og
Austurlandi fram á kvöld.
sjá síðu 26
Kynntu áform um samgöngumál og fleira
Það verður ekki annað sagt en að þeir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, hafi
verið einbeittir þegar þeir kynntu í gær áform um samgöngumál, fjármögnunarmöguleika og aðkomu ríkisins að þeim. Fréttablaðið/ Sigtryggur ari
Stöndum saman og kaupum álfinn – fyrir unga fólkið
10x10 DBL Kubbur
SÁÁ – til betra lífs
samfélag Áskoranir tugþúsunda
einstaklinga til RÚV um að snið
ganga Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva kom til umræðu
á fundi stjórnar RÚV í fyrradag og
hefur verið sett á dagskrá næsta
fundar stjórnarinnar sem verður
í júní. Þá verður rætt um gengi
Íslands í keppninni og mögulegar
breytingar á fyrirkomulagi við val á
framlagi Íslands í framtíðinni.
„Það er útvarpsstjóri sem tekur
ákvörðun um þetta og gerir það
væntanlega í samráði við stjórn
RÚV,“ segir Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra, aðspurð um
ákvörðunarvald um mögulega snið
göngu Íslands.
Skiptar skoðanir eru innan
stjórnarinnar um hvort stjórnin hafi
einhverja aðkomu að málinu.
Þeir stjórnarmenn sem blaðið
ræddi við telja að ákvörðunin
varði dagskrá RÚV og komi þann
ig ekki formlega á borð stjórnar,
nema til staðfestingar á ákvörðun
útvarpsstjóra. Aðrir viðmælendur
telja málið tengt dagskrárvaldi,
sem stjórnin komi ekki nálægt og
útvarpsstjóra beri að taka ákvörðun
að höfðu samráði við dagskrárstjóra.
Öllum ber þó saman um að ákvörð
unina eigi að taka innan RÚV og án
afskipta ráðherra eða ríkisstjórnar.
Þegar blaðið fór í prentun höfðu
yfir tuttugu þúsund skrifað undir
fyrrgreinda áskorun til RÚV á
vefnum change.org en í áskorun
inni er vísað til mannréttindabrota
og ofbeldis Ísraelsmanna gagn
vart palestínsku þjóðinni. Eins og
kunnugt er verður keppnin haldin í
Ísrael að ári en sigurstigin til Ísraels
í keppninni síðastliðinn laugardag
höfðu vart verið talin þegar fregnir
bárust af mesta mannfalli á Gaza frá
árinu 2014 er ísraelski herinn drap
sextíu palestínska mótmælendur.
Þúsundir særðust í aðgerðum hers
ins sem hafa verið fordæmdar víða
um heim.
„Þetta hefur verið rætt innan dag
skrárstjórnar og að sjálfsögðu erum
við að skoða málið,“ segir Skarp
héðinn Guðmundsson, dagskrár
stjóri sjónvarps. Hann segir þó
að ákvörðunar sé ekki að vænta á
næstu dögum og líklega ekki fyrr
en í haust, í aðdraganda þess frests
sem stöðvarnar hafa til að tilkynna
þátttöku.
Skarphéðinn segir að haft verði
samráð við norrænu sjónvarps
stöðvarnar áður en ákvörðun verð
ur tekin um þátttöku. Aðspurður
segist hann ekki hafa heyrt af
sambærilegri umræðu eða undir
skriftasöfnunum í nágrannaríkj
unum. Ekki náðist í útvarpsstjóra
við vinnslu fréttarinnar.
adalheidur@frettabladid.is
Stjórn RÚV ræðir
áskorun vegna Ísraels
Áskoranir tugþúsunda um sniðgöngu Eurovision til umræðu í stjórn RÚV. Ekki
liggur fyrir á hvers borði ákvörðunin endar. Dagskrárstjóri RÚV segir að haft
verði samráð við norrænu stöðvarnar áður en ákvörðun verður tekin.
Hin ísraelska Netta fagnar úrslitum í Eurovision um helgina. FrEttablaðið/EPa
Það er útvarpsstjóri
sem tekur ákvörðun
um þetta og gerir það
væntan lega í
samráði við
RÚV.
Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og
menningarmála-
ráðherra
Dómsmál Héraðsdómur Reykja
víkur hefur tekið til greina kröfu
Atla Helgasonar um endurheimt
lögmannsréttinda hans. Þetta stað
festir Helgi Magnús Gunnarsson
vararíkissaksóknari, en embætti
ríkis saksóknara varðist kröfu Atla
fyrir héraðsdómi. Helgi segir ekki
liggja fyrir hvort niðurstaða héraðs
dóms verði kærð til Landsréttar.
Atli var dæmdur í sextán ára fang
elsi árið 2001 fyrir að hafa orðið
Einari Erni Birgissyni að bana og var
þá einnig sviptur málflutningsrétt
indum. Fyrir rúmum tveimur árum
hlaut Atli uppreist æru en óflekkað
mannorð er meðal skilyrða þess að
hafa málflutningsréttindi. Í kjöl
farið lagði Atli fram kröfu til Héraðs
dóms Reykjavíkur um endurheimt
lögmannsréttinda sinna en féll frá
þeirri kröfu eftir að Lögmanna
félagið lagðist gegn henni í formlegri
umsögn til héraðsdóms.
Í ársgömlum dómi Hæstaréttar í
máli Róberts Downey Hreiðarssonar
um endurheimt lögmannsréttinda
hans, var því slegið föstu að í þeim
tilvikum sem Lögmannafélagið
komi ekki að sviptingu réttinda,
sé óþarft að leita umsagnar félags
ins um endurheimt þeirra. Í kjölfar
dómsins lagði Atli sína kröfu fram að
nýju og mun álits Lögmannafélags
ins ekki hafa verið aflað um kröfuna,
sem samþykkt var í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. – ósk
Atli Helga fær
réttindi á ný
atli Helgason var dæmdur í 16 ára
fangelsi fyrir að myrða Einar Örn
birgisson. Fréttablaðið/HEiða
lögreglumál Starfsmenn í Flug
stöð Leifs Eiríkssonar kölluðu til
lögreglu síðla gærdags þegar taska
var skilin eftir í suðurbyggingu, á
svæði þar sem ferðamenn á leið til
Bretlands og Bandaríkjanna fara.
Taskan var tekin í snefilathugun og
niðurstaðan var rauð. Það bendir til
að það kunni að vera sprengjusnefil
agnir í töskunni. Guðjón Helgason,
upplýsingafulltrúi Isavia, segir að þá
hafi lögregla verið kölluð til og bað
hún um aðra snefilathugun.
„Hún er gerð og kemur út græn,
sem þýðir að ekki séu vísbendingar
um sprengjuagnir. Fólk var beðið
um að færa sig frá töskunni en það
fór enginn af svæðinu og atburður
inn hafði engin áhrif á flugferðir,“
segir Guðjón.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær
var greint frá því að flugstöðin hafi
verið rýmd en Guðjón segir það vera
rangt. – jhh
Taska í Leifsstöð
olli áhyggjum
1 7 . m a í 2 0 1 8 f I m m T u D a g u r2 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
D
-3
A
8
C
1
F
C
D
-3
9
5
0
1
F
C
D
-3
8
1
4
1
F
C
D
-3
6
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K