Fréttablaðið - 17.05.2018, Page 12
must
haves
2018/19
International trade fair for
consumer goods. 662
52
-0
02
_T
E_
al
lg
_
Fr
et
ta
bl
ad
id
_M
1_
15
1x
20
0
•
FO
G
R
A
3
9
•
C
M
Y
K
•
tg
: 2
6.
02
.2
01
8
D
U
: 2
6.
04
.2
01
8
Is
la
nd
Á Tendence má upplifa það sem alls ekki má vera án undir
þemunum heimili og gjafavörur. Þar má fi nna allt fyrir bæði
árangursríkt haust- og vetrartímabil sem og komandi upphaf
vor- og sumartímabils 2019.
Allar upplýsingar má fi nna á: tendence.messefrankfurt.com
dimex@dimex.dk
Sími: +45 39 40 11 22
Viðsnúningur er hafinn hjá Högum
eftir erfitt rekstrarár, segir í við
brögðum IFS greiningar við upp
gjöri fjórða ársfjórðungs. Lands
bankinn segir í sínum viðbrögðum
að sala Haga hafi verið yfir vænt
ingum á fjórðungnum og að merki
séu um að „samkeppnin á matvöru
markaði sé að róast“.
Hlutabréf félagsins hækkuðu
um sjö prósent í gær sem rekja má
meðal annars til þess að stjórn
endur telja að hagnaður fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta
muni aukast um 21 prósent á yfir
standandi rekstrarári frá fyrra ári
og muni nema um fimm millj
örðum króna. Til samanburðar
gerði Landsbankinn ráð fyrir að
sá hagnaður yrði 4.548 milljónir
króna. Rekstrarár Haga er frá mars
til febrúar.
Landsbankinn segir að uppgjör
Haga fyrir fjórða ársfjórðung hafi
verið undir væntingum. Aftur á
móti ef litið sé fram hjá einskiptis
kostnaði vegna leigugreiðslna í
Holtagörðum, sem nam 445 millj
ónum króna, hafi uppgjörið verið
yfir spá bankans. „Sala og framlegð
voru yfir spá okkar og launakostn
aður undir því sem við gerðum ráð
fyrir á fjórðungnum.“
Landsbankinn reiknaði með að
tekjurnar myndu dragast saman
um 6,7 prósent en þær drógust
saman um 5 prósent. Spá IFS varð
andi tekjusamdrátt gekk eftir. Verð
hjöðnun er einkum tilkomin vegna
styrkingar íslensku krónunnar,
betri innkaupa og lægra innkaups
verðs. Hagnaður Haga nam 461
milljón á fjórðungnum og var 31%
undir spá Landsbankans og 39 pró
sent undir spá IFS. Skekkjan helgast
fyrst og fremst af einskiptisliðum.
IFS vekur athygli á að Högum hafi
tekist að halda sama framlegðar
hlutfalli á milli ára en það var 24,8%
á rekstrarárinu. – hvj
Viðsnúningur hjá Högum
Finnur
Árnason,
forstjóri Haga.
Fjárfestingarfélagið Íslensk fjárfest
ing, í eigu Arnars Þórissonar og Þóris
Kjartanssonar, hefur sett fasteigna
félagið RR fasteignir, sem á sjö sögu
frægar byggingar í miðbæ Reykja
víkur, í formlegt söluferli. Eignir
félagsins voru metnar á ríflega 2,7
milljarða króna í lok árs 2016.
Þórir, sem er stjórnarformaður RR
fasteigna, segist í samtali við Frétta
blaðið búast við því að söluferlinu
ljúki í sumar. Það er fyrirtækjaráð
gjöf Arion banka sem er ráðgjafi
seljanda í ferlinu.
Umræddar byggingar, sem eru
við Hverfisgötu, Lindargötu og Veg
húsastíg, eru leigðar til hótelfélags
ins RR hótela, sem er auk þess í eigu
Íslenskrar fjárfestingar, en félagið
rekur meðal annars íbúðahótel
undir nafninu Reykjavík Residence.
Alls reka RR hótel 47 íbúðir í sex
húsum og þegar framkvæmdum
við Hverfisgötu 78 lýkur í haust
verða hótelíbúðirnar samtals 63 í
átta húsum.
Þórir segir húsin hafa öll verið
tekin í gegn frá grunni og þeim feng
ið nýtt hlutverk sem hágæðaíbúðir.
„Við höfum samt byggt þau upp í
upprunalegri mynd og lagt áherslu
á að vernda og miðla sögu húsanna.
Að jafnaði er götumyndin vernduð
og í sumum tilfellum sjálf húsin og
því höfum við þurft að vinna náið
með borgaryfirvöldum og húsafrið
unarnefnd. Það er stór þáttur í þessu
að allir séu sáttir,“ nefnir hann.
Á meðal eigna RR fasteigna eru
hús Félags bókagerðarmanna við
Hverfisgötu 21, sem er eitt af elstu
steinsteyptu húsum borgarinnar,
byggt árið 1912, 104 ára gamalt
steinhús við Hverfisgötu 45, 112
ára gamalt hús við Lindargötu 11,
Bókfellshúsið á Hverfisgötu 78 og
Bergshús við Veghúsastíg 9.
Þórir segir forsvarsmenn félags
ins fremur líta á það sem fasteigna
þróunarfélag heldur en hefðbundið
fasteignafélag sem eigi stórt safn
eigna með langtímaleigusamninga,
líkt og til dæmis stóru fasteigna
félögin sem skráð eru á markað. „Við
vinnum frekar í því að þróa og búa
til flott fasteignasöfn og setja þau
síðan í hendurnar á einhverjum sem
er reiðubúinn til þess að reka þau.
Við höfum byggt upp flott safn með
þekktum eignum í miðborginni og
er nú komið að þeim tímapunkti að
við viljum selja það.“
RR hótel var skipt upp í tvö
félög um áramótin 2016 og 2017.
Annars vegar rekstrarfélagið RR
hótel ehf. sem heldur utan um
rekstur hótelíbúðanna og hins
vegar fasteignafélagið RR fasteignir
ehf. sem á eignirnar sem leigðar eru
til RR hótela en að sögn Þóris var
skiptingin fyrsta skrefið í að gera
fasteignafélag hótelsins hæft til sölu.
Þórir segir fasteignasafnið geta
verið góða og skemmtilega viðbót
í eignasöfn fasteignafélaga og fleiri
fasteignaeigenda, enda sé um að
ræða þekktar eignir með mikla sögu
sem hafi auk þess allar verið teknar
í gegn. „Þar að auki er þetta íbúða
hótel þannig að ef allt færi á verri
veg í hótelbransanum eftir einhvern
árafjölda væri hægt að breyta hlut
verki þess og nýta íbúðirnar. Hótel
verður hins vegar alltaf hótel.“
Samkvæmt ársskýrslu Íslenskrar
fjárfestingar voru RR hótel rekin
með um 97 prósenta herbergja
nýtingu í fyrra. Framkvæmdum
við Lindargötu 11 og Veghúsastíg
9a lauk á árinu og bættust þá tutt
ugu hótelíbúðir við eignasafnið.
Jafnframt hófust framkvæmdir við
Hverfisgötu 78 en þar er verið að
byggja nýtt hús á baklóð ásamt því
að núverandi hús verður endur
bætt. Gerir fjárfestingafélagið ráð
fyrir áframhaldandi vexti hjá RR
hótelum á þessu ári.
Hagnaður Íslenskrar fjárfestingar
nam 336 milljónum króna á síðasta
ári og dróst saman um 369 milljón
ir frá fyrra ári. Í ársskýrslunni segir
að helstu skýringarnar séu þær að
rekstur stærstu dótturfélaganna
hafi verið undir væntingum auk
þess sem nokkur þróunarverkefni
séu „enn að sanna sig“ og skili því
tapi í samstæðunni. Forsvarsmenn
félagsins búast þó við miklum
hagnaði á næstu árum vegna fast
eignaverkefna sem eru í söluferli.
kristinningi@frettabladid.is
Sögufrægar fasteignir RR hótela til sölu
Fasteignafélag RR hótela, sem á sögufrægar eignir í miðbæ Reykjavíkur, hefur verið sett í söluferli. Eignirnar hafa verið teknar í gegn og
þeim fengið nýtt hlutverk sem hótelíbúðir. Búist er við að söluferlinu ljúki í sumar. Eignirnar voru metnar á 2,7 milljarða í lok árs 2016.
Dótturfélag Íslenskrar fjárfestingar keypti húsið við Hverfisgötu 21, eitt af
elstu steinsteyptu húsunum í Reykjavík, haustið 2012. FRéttablaðið/SteFÁn
Við vinnum frekar í
því að þróa og búa
til flott fasteignasöfn og setja
þau síðan í hendurnar á
einhverjum sem er reiðu-
búinn til þess að
reka þau.
Þórir Kjartansson,
framkvæmda-
stjóri Íslenskrar
fjárfestingar
Álver Norðuráls á Grundartanga
skilaði hagnaði upp á 29 millj
ónir dala, sem jafngildir ríflega 3
milljörðum króna, á síðasta ári
samkvæmt nýbirtum ársreikningi
félagsins. Til samanburðar tapaði
álverið 21,2 milljónum dala árið
2016 en það var versta afkoma
í tuttugu ára sögu fyrirtækisins.
Rekstrartekjur Norðuráls, sem
er í eigu kanadíska álfyrirtækisins
Century Aluminum, námu 658
milljónum dala, 68,6 milljörðum
króna, í fyrra og jukust um tæplega
28 prósent á milli ára. Þá hækkaði
rekstrarkostnaður um 23 prósent og
var 553 milljónir dala.
Hagnaður álversins fyrir skatta
og fjármagnsliði nam 65 milljón
um dala í fyrra samanborið við 26
milljónir árið 2016. Eigið fé félags
ins var jákvætt um 404 milljónir í
lok síðasta árs borið saman við 375
milljónir á sama tíma árið á undan
og var eiginfjárhlutfallið um sextíu
prósent. – kij
Álver Norðuráls hagnast
um þrjá milljarða króna
Ragnar
Guðmundsson,
forstjóri
norðuráls.
markaðurinn
1 7 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
D
-5
D
1
C
1
F
C
D
-5
B
E
0
1
F
C
D
-5
A
A
4
1
F
C
D
-5
9
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K