Fréttablaðið - 17.05.2018, Page 22
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
Rafmagnstjakkar
Kynningarverð:
282.897 kr. m/vsk
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
30
ára
2018
1 7 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R22 S p o R T ∙ F R É T T a B L a ð I ð
sport
HanDBoLTI Það er skammt stórra
högga á milli hjá Bjarka Má Elís-
syni og félögum hans hjá Füchse
Berlin næstu daga. Liðið á leik gegn
Hannover-Burgdorf í þýsku efstu
deildinni í handbolta karla í kvöld,
en liðið er í harðri baráttu við
Rhein-Neckar Löwen og Flensburg
um þýska meistaratitilinn. Þá anda
Magdeburg, Kiel og Hannover-Burg-
dorf ofan í hálsmálið á Füchse Berlin
í baráttunni um sæti í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð.
Á laugardaginn kemur mætir
Füchse Berlin svo Göppingen í
undan úrslitum EHF-keppninnar, en
Bjarki Már og samherjar hans eiga
harma að hefna frá síðasta ári þar
sem Göppingen lagði Füchse Berlin
að velli í úrslitaleik keppninnar.
Bjarki Már segist hóflega bjart-
sýnn á það að lið hans verði þýskur
meistari, en stefnan sé sett á að klára
síðustu fjóra leiki deildarkeppninn-
ar með sóma og sjá hverju það skilar.
„Bæði Rhein-Neckar Löwen og
Flensburg eiga frekar þægilega
leikjadagskrá eftir og ég býst nú
ekki við því að þau misstígi sig á
lokasprettinum,“ sagði Bjarki Már
í samtali við Fréttablaðið.
„Ég hugsa að Rhein-Neckar
Löwen klári þetta og verði meist-
arar, en við ætlum að sjálfsögðu að
setja pressu á þau með því að hafa
betur í þeim leikjum sem eftir eru.
Ef við vinnum Hannover-Burgdorf
þá erum við í góðri stöðu hvað
varðar Meistaradeildarsæti. Mig
hefur dreymt um það síðan ég var
lítill strákur að leika í þeirri keppni
og það væri gaman ef sá draumur
yrði að veruleika,“ sagði Bjarki Már.
„Það er hins vegar ekki klárt hvort
Þýskaland fær tvö eða þrjú sæti í
Meistaradeildinni á næstu leiktíð,
þar sem forráðamenn þýsku deildar-
keppninnar og Meistaradeildarinn-
ar eiga í deilum þessa stundina um
leikdaga og sjónvarpsréttindi. Við
getum hins vegar lítið gert í því og
það eina sem við getum gert er að
hafna eins ofarlega og mögulegt er.“
Bjarki Már kveðst spenntur fyrir
úrslitahelgi EHF-bikarsins.
„Það hefur verið þétt dagskrá
undanfarið og það heldur áfram.
Strax eftir leikinn gegn Hannover-
Burgdorf þá höldum við til Magde-
burg og freistum þess að sækja EHF-
bikarinn,“ sagði Bjarki Már.
„Við mætum Göppingen í undan-
úrslitum sem hafði af okkur þennan
titil í fyrra með því að vinna okkur
í úrslitaleik. Við ætlum klárlega að
fara alla leið að þessu sinni. Ef við
myndum vinna EHF-bikarinn og
tryggja okkur sæti í Meistaradeild
Evrópu getum við mjög vel við unað
að mínu mati. Það væri hins vegar
enn betra ef við næðum að landa
þeim stóra, það er þýska meistara-
titlinum,“ sagði Bjarki Már.“
hjorvaro@frettabladid.is
Draumur að spila í
Meistaradeildinni
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson og félagar hans hjá Füchse Berlin standa
í ströngu þessa dagana. Liðið er í toppbaráttu þýsku efstu deildarinnar í hand-
bolta karla og leikur svo í undanúrslitum EHF-keppninnar á laugardaginn.
Bikarinn til Madrídar
Einlægur fögnuður Atlético Madrid vann 0-3 sigur á Marseille í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Lyon í gær. Antoine Griezmann skoraði tvö marka
Atlético og Gabi eitt. Fernando Torre vann sinn fyrsta og síðasta titil með Atlético, en hann er á förum frá félaginu eftir tímabilið. Nordicphotos/Getty
Þriðji dansinn
hjá ÍBV og FH
HanDBoLTI ÍBV og FH mætast í
þriðja sinn í úrslitum um Íslands-
meistaratitilinn í handbolta karla í
kvöld. Leikurinn fer fram í Eyjum og
hefst klukkan 18.30.
ÍBV vann fyrsta leikinn, 32-26,
en FH svaraði fyrir sig með þriggja
marka sigri í öðrum leiknum, 28-25,
í Kaplakrika í fyrradag.
Tapið á þriðjudaginn var það
fyrsta hjá ÍBV í úrslitakeppninni í
ár. Eyjamenn sópuðu ÍR og Haukum
úr leik í 8-liða og undanúrslitunum.
ÍBV varð deildarmeistari og er
með heimavallarréttinn í úrslitaein-
víginu. Það er því ljóst að FH þarf að
vinna a.m.k. einn leik í Eyjum til að
verða Íslandsmeistari í fyrsta sinn
síðan 2011. Eyjamenn urðu meist-
arar í fyrsta og eina sinn 2014. – iþs
eyjamaðurinn theodór sigurbjörns-
son reynir skot að marki Fh í öðrum
leik liðanna. Fréttablaðið/erNir
bjarki Már og félagar standa í ströngu þessa dagana. Nordicphotos/aFp
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
D
-7
F
A
C
1
F
C
D
-7
E
7
0
1
F
C
D
-7
D
3
4
1
F
C
D
-7
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K