Fréttablaðið - 17.05.2018, Síða 27
Leik-
konan
Meghan
Markle
verður
prinsessa
þegar hún
giftist
Harry
prins á
laugardag.
Heimsbyggðin bíður nú í ofvæni eftir því að sjá brúðarkjól leikkonunnar
Meghan Markle þegar hún
gengur inn kirkjugólfið í kapellu
heilags Georgs í Windsor til að
gefast Harry prins á laugardaginn
kemur. Meghan þykir sterkur
persónuleiki og nokkuð víst að
kjóllinn verði alveg eftir hennar
höfði og sérdeilis glæsilegur.
Harry prins veit svo hvað hann
syngur þegar kemur að tískuviti og
konunglegum elegans, eins og sást
þegar hann dró rómantískan trú-
lofunarhringinn á fingur Meghan
í nóvember. Sá fagri gull- og dem-
antshringur er að stórum hluta
hugmynd Harrys og ber vitni um
hefðbundið enskt skart sem er í
senn nútímalegt og sígilt. Stóri
demanturinn í miðjunni er frá
Botsvana í Afríku en landið á sér-
stakan stað í hjarta hins konung-
lega pars. Minni demantarnir
tveir eru svo fengnir úr gamalli
brjóstnælu Díönu prinsessu
sálugu, móður Harrys.
Beðið eftir Meghan
Hægt er að nota ólífuolíu til að pússa
skó ef enginn skóáburður er til á
heimilinu.
Ólífuolía er til margra hluta nytsamleg. Hún er ekki aðeins góð í matargerð
og frábær í salöt. Það er líka hægt
að nota ólífuolíu til að pússa skó
og fríska þannig vel upp á þá ef
það er ekki til neinn skóáburður
á heimilinu. Ólífuolían mýkir
leðrið og hreinsar burt óhreinindi
á augabragði. Nokkrir dropar af
ólífuolíu eru settir í mjúkan klút
eða í pappír sem síðan er strokið
yfir skóna svo þeir fái fallegan
gljáa.
Einnig er hægt að nota kókos-
olíu því hún gerir sama gagn og
þótt ótrúlegt megi virðast er ágætt
að grípa til þess ráðs að nota vara-
salva ef skóáburðurinn er búinn.
Ólífuolía
á skóna
Norðmenn vilja ekki helíumblöðrur
á þjóðhátíðardaginn.
Norðmenn halda þjóð-hátíðardag sinn hátíðlegan í dag, 17. maí. Þá er til siðs
að börnin fái blöðrur rétt eins og
við þekkjum á okkar eigin þjóð-
hátíðardegi, 17. júní. Mörg sveitar-
félög í Noregi hafa þó ákveðið
að selja ekki helíumblöðrur að
þessu sinni þar sem lítið er eftir
af því í heiminum en ekki síður
vegna þess plastúrgangs sem þær
skilja eftir sig. Plastið dreifist um
jörðina þegar blöðrurnar springa
í loftinu.
Varað hefur verið við ofnotkun
á helíum frá árinu 2010. Helíum
er verðmætara fyrir heiminn en
barnsgleði í stutta stund, segir á
vefmiðlinum forskning.no.
Helíum er mikilvægt á sjúkra-
húsum þar sem það er notað sem
kælivökvi í segulómunartækjum.
Vísindamenn nota helíum á
rannsóknarstofum en einnig er
það notað við gerð geimflauga og
í súrefnistönkum kafara. Helíum
er mjög mikilvægt í alls kyns
störfum og þess vegna finnst fólki
rétt að spara það í partíum.
Vilja banna
helíumblöðrur
Set yourself Koko dairy free
Set yourself Koko dairy free
Morgunkorn án mjólkur!
Hvernig er það?
Eins og morgunkorn með mjólk,
Bara betra!
Koko virkar í allt sem þú myndir
nota venjulega mjólk í , alveg satt!
Koko er mild á bragðið og líkist
mjólk meira en önnur jurtamjólk.
Prófaðu hana á morgunmatinn,
í pönnukökur, þeytinga,
heitt kakó, ka, sósur og súpur.
Hvað sem hugurinn girnist,
Koko virkar.
Koko kókosdrykkur - bragðgóða jurtamjólkin sem virkar í allt!
Fæst í Nettó, Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðinni, Heilsuhúsinu og Kjörbúðinni
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 1 7 . m a í 2 0 1 8
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
D
-5
8
2
C
1
F
C
D
-5
6
F
0
1
F
C
D
-5
5
B
4
1
F
C
D
-5
4
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K