Fréttablaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 27
Leik- konan Meghan Markle verður prinsessa þegar hún giftist Harry prins á laugardag. Heimsbyggðin bíður nú í ofvæni eftir því að sjá brúðarkjól leikkonunnar Meghan Markle þegar hún gengur inn kirkjugólfið í kapellu heilags Georgs í Windsor til að gefast Harry prins á laugardaginn kemur. Meghan þykir sterkur persónuleiki og nokkuð víst að kjóllinn verði alveg eftir hennar höfði og sérdeilis glæsilegur. Harry prins veit svo hvað hann syngur þegar kemur að tískuviti og konunglegum elegans, eins og sást þegar hann dró rómantískan trú- lofunarhringinn á fingur Meghan í nóvember. Sá fagri gull- og dem- antshringur er að stórum hluta hugmynd Harrys og ber vitni um hefðbundið enskt skart sem er í senn nútímalegt og sígilt. Stóri demanturinn í miðjunni er frá Botsvana í Afríku en landið á sér- stakan stað í hjarta hins konung- lega pars. Minni demantarnir tveir eru svo fengnir úr gamalli brjóstnælu Díönu prinsessu sálugu, móður Harrys. Beðið eftir Meghan Hægt er að nota ólífuolíu til að pússa skó ef enginn skóáburður er til á heimilinu. Ólífuolía er til margra hluta nytsamleg. Hún er ekki aðeins góð í matargerð og frábær í salöt. Það er líka hægt að nota ólífuolíu til að pússa skó og fríska þannig vel upp á þá ef það er ekki til neinn skóáburður á heimilinu. Ólífuolían mýkir leðrið og hreinsar burt óhreinindi á augabragði. Nokkrir dropar af ólífuolíu eru settir í mjúkan klút eða í pappír sem síðan er strokið yfir skóna svo þeir fái fallegan gljáa. Einnig er hægt að nota kókos- olíu því hún gerir sama gagn og þótt ótrúlegt megi virðast er ágætt að grípa til þess ráðs að nota vara- salva ef skóáburðurinn er búinn. Ólífuolía á skóna Norðmenn vilja ekki helíumblöðrur á þjóðhátíðardaginn. Norðmenn halda þjóð-hátíðardag sinn hátíðlegan í dag, 17. maí. Þá er til siðs að börnin fái blöðrur rétt eins og við þekkjum á okkar eigin þjóð- hátíðardegi, 17. júní. Mörg sveitar- félög í Noregi hafa þó ákveðið að selja ekki helíumblöðrur að þessu sinni þar sem lítið er eftir af því í heiminum en ekki síður vegna þess plastúrgangs sem þær skilja eftir sig. Plastið dreifist um jörðina þegar blöðrurnar springa í loftinu. Varað hefur verið við ofnotkun á helíum frá árinu 2010. Helíum er verðmætara fyrir heiminn en barnsgleði í stutta stund, segir á vefmiðlinum forskning.no. Helíum er mikilvægt á sjúkra- húsum þar sem það er notað sem kælivökvi í segulómunartækjum. Vísindamenn nota helíum á rannsóknarstofum en einnig er það notað við gerð geimflauga og í súrefnistönkum kafara. Helíum er mjög mikilvægt í alls kyns störfum og þess vegna finnst fólki rétt að spara það í partíum. Vilja banna helíumblöðrur Set yourself Koko dairy free Set yourself Koko dairy free Morgunkorn án mjólkur! Hvernig er það? Eins og morgunkorn með mjólk, Bara betra! Koko virkar í allt sem þú myndir nota venjulega mjólk í , alveg satt! Koko er mild á bragðið og líkist mjólk meira en önnur jurtamjólk. Prófaðu hana á morgunmatinn, í pönnukökur, þeytinga, heitt kakó, ka, sósur og súpur. Hvað sem hugurinn girnist, Koko virkar. Koko kókosdrykkur - bragðgóða jurtamjólkin sem virkar í allt! Fæst í Nettó, Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðinni, Heilsuhúsinu og Kjörbúðinni FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 1 7 . m a í 2 0 1 8 1 7 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :0 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F C D -5 8 2 C 1 F C D -5 6 F 0 1 F C D -5 5 B 4 1 F C D -5 4 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.