Fréttablaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 44
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildarmynda er fyrir löngu orðin fastur liður um hvítasunnuhelgina og mikilvægur hluti af menn-ingarlífinu. Hátíðin hefur
nú verið haldin í tólf ár og hefur á
þeim tíma vaxið jafnt og þétt en
það eru kvikmyndagerðarkon-
urnar Helga Rakel Rafnsdóttir og
Kristín Andrea Þórðardóttir sem
bera hitann og þungann af skipu-
lagningu og utanumhaldi í ár. Helga
Rakel segir að dagskráin sé sérstak-
lega glæsileg í ár en þó svo að hún sé
löngu frágengin sé enn í mörg horn
að líta. „Við erum að ferja hundrað
og fimmtíu manns til Patreksfjarðar
auk allra hinna gestanna sem koma
til bæjarins til þess að njóta hátíðar-
innar.“
Grasrót sem smitar
Aðspurð hvers vegna sé verið að
halda heimildarmyndahátíð á Pat-
reksfirði en ekki til að mynda í
Reykjavík segir Helga Rakel að það
komi til af tvennu. „Í fyrsta lagi þá er
Skjaldborgarbíó á Patreksfirði. Þetta
er ótrúlega fallegt bíó sem Lions-
menn hafa staðið vörð um í gegnum
árin. Fyrstu níu árin sem hátíðin
var haldin var eingöngu hægt að
sýna myndir af filmu í húsinu með
gamalli vél sem alveg svínvirkaði. En
núna hafa Lionsmenn safnað fyrir
alveg rosalega góðu PCB-sýningar-
kerfi og hafa verið með reglulegar
bíósýningar í húsinu.
Í öðru lagi þá var það þannig að
upphafsmenn hátíðarinnar dvöldu
talsvert á Patreksfirði á þeim tíma
og þeim fannst svo alveg fáránlegt
að nota þetta hús ekki til þess að
gera eitthvað stórkostlegt og það
má svo sannarlega segja að þeim
hafi tekist það enda er alltaf alveg
rosalega gaman á Skjaldborg.“
Helga Rakel segir að það sé svo
auðvitað ekki síður mikilvægt hvað
Skjaldborg er mikilvægur vettvang-
ur fyrir heimildarmyndagerðar-
fólk á Íslandi. „Hluti af því hversu
hátíðin er öflug er að hún er haldin á
Patreksfirði vegna þess að það er svo
gott að komast í burtu og vera með
allan fókus á heimildarmyndir, hitta
aðra heimildarmyndagerðarmenn
og hafa gaman. Þetta er svona míní-
samfélag í þrjá daga og fólk tengist
sterkum böndum og líka hátíðinni
og staðnum. Þetta leynir sér ekki,
því að sama fólkið sækir hátíðina ár
eftir ár. Það eru líka margir sem eru
alltaf á leiðinni og þegar þeir loksins
drífa sig þá láta þeir sig aldrei vanta
eftir það,“ segir Helga Rakel og
gleðst yfir vinsældum hátíðarinnar.
Hún bendir jafnframt á að sum-
arið í íslenskri kvikmyndagerð sé
svo sannarlega ekki einvörðungu
í leiknum kvikmyndum. „Í heim-
ildarmyndagerðinni er líka ákveð-
in grasrót sem síðan smitast inn
í leiknu myndirnar sem horfa til
heimildarmyndanna varðandi
t.d. bæði efni og efnistök. Þannig
að heimildarmyndagerðin er um
margt leiðandi afl sem er sérstak-
lega gaman að fylgjast með."
Vinnur gegn einsleitni
Helga Rakel segir að á dagskránni
í ár séu fjölmargar spennandi
myndir sem sé vissulega erfitt að
gera upp á milli. „Opnunarmyndin
í ár heitir UseLess og er eftir Rakel
Garðarsdóttur og Ágústu M. Ólafs-
dóttur. Þar skerpa þær á því hvað
við erum að fara illa með jörðina
með neyslu á mat og klæðum en
hún sýnir okkur líka hversu auð-
velt getur verið að breyta þessu
með því að hægja aðeins á. Þetta er
mynd með mikilvægt erindi og því
settum við hana sem opnunarmynd.
Þarna er vissulega verið að hvetja til
ákveðinnar byltingar og það er líka
byltingarþema í fleiri myndum. Þar
má nefna myndir eins og Bráðum
verður bylting! eftir Hjálmtý Heið-
dal og Sigurð Skúlason sem segir frá
því þegar íslenskir stúdentar tóku
sendiráð Íslands í Stokkhólmi til
þess að mótmæla bágum kjörum.
Svo er það líka Litla Moskva, eftir
Grím Hákonarson sem fjallar um
Neskaupstað og allt húllumhæið í
kringum pólitíkina þar.“
Aðspurð hvort þessar myndir séu
vísbending um að það sé eðli heim-
ildarmynda að vera gagnrýnar og
róttækar þá tekur Helga Rakel ekki
fyrir það. „Já, og þá jafnvel bæði
í efni og efnistökum. Heimildar-
myndir beina ljósinu oft að hlutum
sem annars er ekki fjallað um og
þetta er svo stórt mengi. Það eru
þarna sögulegar myndir, viðtals-
myndir, ljóðrænar myndir. Þannig
er til að mynda líka ákveðið ömmu-
þema á hátíðinni í ár enda erum við
með tvær stuttar og persónulegar
ömmumyndir auk þess sem Harpa
Fönn er að kynna kvikmyndina
Amma dreki. En svo má líka nefna
myndina Söngur Kanemu eftir
Önnu Þóru Steinþórsdóttur. Hún
segir frá því þegar dóttir Önnu Þóru
fór til Sambíu til þess að leita upp-
runans og hitta ömmu sína. Þannig
að það er svo sannarlega ömmu-
þema í ár í bland við byltinguna en
það ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi.“
Það virðist vera umtalsverð aukn-
ing í áhuga almennings á heimildar-
myndum og eflaust má að einhverju
leyti rekja það til efnisveitunnar
Netflix. Helga Rakel segir að það
sé vissulega rétt en bendir á að það
þurfi líka að hafa í huga að Netflix
sé greinilega með ákveðna stefnu
í þessum efnum. „Það er ákveðin
tegund af heimildarmyndum sem
er orðin ríkjandi einmitt vegna
Netflix og þess vegna eru hátíðir
eins og Skjaldborg svo mikilvægar.
Þar gefst fólki tækifæri til þess að sjá
eitthvað sem Netflix myndi aldrei
sýna og varla RÚV. En hátíð á borð
við Skjaldborg vinnur gegn þessari
einsleitni og við þurfum öll að vera
meðvituð um það.“
Ömmuþema í bland við byltingar og margt fleira
Helga Rakel Rafnsdóttir og Kristín Andrea Þórðardóttir hafa haft í mörgu að snúast í aðdraganda hátíðarinnar. FRéttAblAðið/SteFán
Skjaldborgar-
hátíðin fer fram á
Patreksfirði um
hvítasunnuhelgina
og Helga Rakel
Rafnsdóttir, önnur
af stjórnendum há-
tíðarinnar ásamt
Kristínu Andreu
Þórðardóttur, segir
að þar verði að
vanda mikið fjör og
frábærar heimildar-
myndir sem sjást
jafnvel ekki annars
staðar.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
ÞAð eR áKveðin
tegund Af Heim-
ildARmyndum Sem eR oRðin
RíKjAndi einmitt vegnA
netflix og ÞeSS vegnA eRu
HátíðiR einS og SKjAldboRg
Svo miKilvægAR.
1 7 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R32 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð
menning
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
D
-4
E
4
C
1
F
C
D
-4
D
1
0
1
F
C
D
-4
B
D
4
1
F
C
D
-4
A
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K