Fréttablaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Auglýsing
Tillaga að deiliskipulagi Votmúla 2 og
Austurkots í Sveitarfélaginu Árborg
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti 11. maí
2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Votmúla 2
og Austur kots samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
Um er að ræða deiliskipulag á um 20 ha landbúnaðarlandi
sem nær yfir Votmúla 2, landnr. 192087, sem er um 15 ha.
Um 3 ha spildu úr landi Austurkots, landnr. 166176, og
vegsvæði Votmúlavegar (310) sem er um 2 ha. Á deiliskipu
lagssvæðinu eru 6 lóðir undir íbúðarhúsnæði með bílskúr,
gestahús, hesthús og skemmu/geymslu tengda starfseminni,
2 spildur undir vegsvæði og 1 lóð fyrir beit. Gert er ráð fyrir
tveimur nýjum aðkomuvegum að lóðunum frá Votmúlavegi
(310) og Lækjamótsvegi (3175). Kvöð um aðkomuvegi verður
á lóðunum. Svæðið liggur að mörkum Nýju Jórvíkur (210194)
að vestanverðu, Jórvík landi 1 (210193) að norðvestan, Foss
múla (166216) og Lækjamóti 1 (166198) að norðan.
Svæðið liggur að Lækjarmótsvegi til austurs og Votmúlavegi
til suðurs.
Innan byggingarreita er heimilt að reisa íbúðarhús á tveimur
hæðum, allt að 350 m², 50 m² gestahús, 80 m² bílskúr og 800
m² hesthús/skemmu. Bílskúrar geta verið stakir eða sam
byggðir íbúðarhúsum. Hús verða staðsett innan byggingar
reita í samráði við byggingarfulltrúa. Byggingarreitir eru að
lágmarki 10 m frá lóðarmörkum, nema annað sé tekið fram á
uppdrætti.
Mesta leyfilega mænishæð er 7 m miðað við gólfplötu.
Þakform og byggingarefni er frjálst en mikilvægt er að húsin
falli sem best að umhverfi sínu og hafi sama yfirbragð og
megin form.
Lögð er áhersla á að útsýni sé sem mest til suðausturs og
skjólmyndun með skjólvegg eða gróðri frá norðri. Koma má
fyrir trépalli og heitum potti innan byggingarreita íbúðarhúsa.
Teikningar ásamt greinargerð og skilmálum, vegna tillögunn
ar munu liggja frammi á skrifstofu skipulags og byggingar
fulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi frá 17. maí til 28.júní 2018.
Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila athugasemdum rennur út fimmtudaginn
28.júní 2018 og skal þeim skilað skriflega til skipulags og
byggingarfulltrúa á skrifstofu hans að Austurvegi 67, 800
Selfossi.
Á sama tíma eru teikningar,greinargerð og skilmálar til
kynningar á heimasíðu Árborgar http://www.arborg.is þar
sem hægt er að skoða tillöguna og senda athugasemdir
Virðingarfyllst,
Bárður Guðmundsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Stendur undir nafni
Gunnsteinn Helgi og félagar hans, sem eiga og reka meðal annars Burro, stefna hátt með nýjustu viðbót sína í
skemmtanaflóru miðborgar Reykja-
víkur. Staðurinn er svokallaður lífs-
stílsbar og kallast Miami, til húsa í
gamla Framsóknarhúsinu á Hverfis-
götu. Staðurinn verður með sér-
hönnuð og sérsmíðuð húsgögn og
starfsfólkið verður í sérsaumuðum
jakkafötum.
Gestir geta svo keypt það sem
þeim líst á á heimasíðu staðarins,
hvort sem það er húsgagn eða fatn-
aður. „Við verðum með okkar eigin
Miami fata- og húsgagnalínu og
gestir geta keypt fötin og stólana og
borðin og það sem þeim líst á,“ segir
Gunnsteinn. Hann heldur að þetta
sé í fyrsta sinn í heiminum sem bar
er með sína eigin húsgagna- og fata-
línu.
„Niðri verða borðtennisborð, við
erum að láta gera sér spaða og kúlur
og fólk getur keypt sér borðtennis-
græjur á heimasíðunni.
Það sem við erum að gera hefur
aldrei sést áður í heiminum, því
hvert einasta húsgagn er sérhannað
og sérsmíðað. Það er ekkert sem við
höfum fundið sem er líkt þessum
stað.“
Gunnsteinn segir að Miami verði
ekki skemmtistaður enda ekkert
dansgólf, enginn trúbador og eng-
inn matur. Bara kokteilar og góða
skapið. „Þarna verður 80s og 90s
þema með smá áhrifum frá Miami.
Bleik og blá teppi á gólfunum og
þessa dagana erum við að vakta
uppboð til að kaupa hönnunar-
verk frá þessum tíma. Stefnan er að
staðurinn verði eitt stórt hönnunar-
listaverk.“
Til að fanga tímann var leitað til
stærstu stjörnu níunda áratugarins,
Dons Johnson, sem gerði garðinn
frægan í Miami Vice, til að koma
í opnunarpartíið. Því miður gekk
það ekki. „Við höfðum samband við
umboðsmanninn hans sem sagði
að hann væri alveg til í að koma en
einungis ef við borguðum honum
mikið fyrir. Það var aðeins of dýrt
fyrir okkur. En við hættum ekkert
við opnunarpartíið. Það verður alveg
þó að hann komist ekki,“ segir Gunn-
steinn. benediktboas@frettabladid.is
Hönnunarhúsið Döðlur hefur aðstoðað kappana við að gera húsið sem glæsilegast að innan. „Ég er ekki hlutlaus en
þetta verður fallegur bar og einn sá fallegasti í heiminum – kalt mat,“ segir Gunnsteinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRyGGUR ARI
Lífsstílsbarinn Miami
verður opnaður í
gamla Framsóknar-
húsinu á Hverfisgötu
innan tíðar. Þar verða
öll húsgögnin sér-
smíðuð og þjónar
verða í sérsaum-
uðum fötum. Don
John son átti að koma
í opnunar partíið en
vildi fá spikfeitan
tékka fyrir að koma.
Don Johnson vildi
of margar milljónir
Stórstjarna
sem Sonny
Don Johnson sló í gegn sem
James „Sonny“ Crockett í
Miami Vice frá 1984-1989.
Þar klæddist hann rándýrum
tískufötum og ók á flottustu
bílunum. Meðal annars á Ferr-
ari Testa rossa, þeim drauma-
bíl. Eftir að sú sería kláraðist
varð hann Nash Bridges, lög-
regluforingi frá San Francisco.
Síðan hefur hann sést hér og
þar í hinum ýmsu hlutverkum.
Johnson var og er trúlega enn
mikill kvennabósi en nú er
það dóttir hans og Melanie
Griffith, Dakota Johnson, sem
heldur nafninu á lofti.
1 7 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R40 l í F I ð ∙ F R É T T a B l a ð I ð
1
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:0
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
D
-5
D
1
C
1
F
C
D
-5
B
E
0
1
F
C
D
-5
A
A
4
1
F
C
D
-5
9
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K