Fréttablaðið - 18.05.2018, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 6 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 1 8 . M a Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
skoðun Þórlindur Kjartansson
skrifar um tilhæfulausan ótta
við Íran. 15
sport Sandra María Jessen er
komin heim frá Tékklandi og
raðar inn mörkum í Pepsi-deild-
inni. 18
Menning Fjölmenningarstarf
Borgarbókasafnsins fagnar tíu
ára starfsafmæli. 40
lÍFið Sápuóperan í kringum
brúðkaup Harrys og Meghan
nær nýjum hæðum. 34
plús 2 sérblöð l Fólk
l saFnadagurinn
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Veldu um að sækja eða fá sent frá
Nettó Mjódd eða Nettó Granda*
*Gildir innan höfuðborgarsvæðisins
heia norge!
tilboðsdagar 14 – 27 maí
allt að 75%
afsláttur
VelFerðarMál Frá ársbyrjun 2014
hefur öldruðum á biðlista eftir
hjúkrunarrýmum fjölgað um sextíu
prósent en þá voru 226 einstakling-
ar á biðlista eftir varanlegri búsetu í
hjúkrunarrými. Í upphafi þessa árs
var talan komin upp í 362.
Meðalbiðtími hefur einnig lengst
samhliða lengri biðlistum. Árið
2014 var meðalbiðtíminn eftir
úthlutun 74 dagar. Þeir einstakling-
ar sem fengu rými úthlutað á fyrsta
ársfjórðungi 2018 biðu hins vegar
að meðaltali í 126 daga. Helmingur
þeirra fékk hjúkrunarrými innan
níutíu daga.
„Þetta kemur ekki á óvart, enda
hefur hjúkrunarrýmum ekki fjölgað
um langt skeið og á sama tíma lifir
fólk lengur og árgangar eldra fólks
eru stækkandi,“ segir Pálmi V. Jóns-
son, yfirlæknir öldrunarlækninga á
Landspítala.
„Það hefur verið ótrúleg tregða í
útfærslu á hugmyndum að úrbótum.
Allt sem fer úrskeiðis í þeim ein-
földu útfærslum sem við erum með
í dag stuðlar að því að fólk endi á
hæsta þjónustustigi, það er í hjúkr-
unarrými.“
Pálmi segir mikla þörf fyrir fleiri
hjúkrunarrými nú, en það eitt leysi
ekki viðfangsefnið vel til lengri
tíma. Stórbæta þurfi heimaþjónustu
eldra fólks, með aðkomu heimilis-
lækna og öldrunarlækna og grein-
ingu, meðferð og endurhæfingu er
byggi á heildrænu öldrunarmati.
Þá finnist enn fyrir áhrifum lok-
unar líknardeildar fyrir eldra fólk,
sem lengdi biðlistann sem því nam
og jók dánartíðni þeirra sem bíða.
Auk þess hafi áætlanir um öldrunar-
geðlækningar horfið með hruninu.
Með breyttu verklagi í þessum og
fleiri atriðum sé líklegra að fólk fái
rétt úrræði á réttum tíma og stað,
sem bæti lífsgæði og sé til þess fallið
að fækka þeim sem hafna á hæsta og
dýrasta þjónustustigi.
„Tíminn til að gera breytingar af
alvöru er núna. Ef við beitum ekki
nýsköpun byggðri á þekkingu í
þjónustu við eldra fólk nú þurfum
við einfaldlega að mæta fólksfjölgun-
inni með hlutfallslega auknum fjölda
hjúkrunarrýma, og það er ekki gott
mál til lengra tíma litið, ekki það sem
fólk vill og mjög kostnaðarsamt,“
segir Pálmi. – jóe, khn
Þörf á nýrri nálgun á dvalarmál aldraðra
Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala segir tíma núna til að gera breytingar á dvalarmálum aldraðra. Biðlistar eftir hjúkrunarrými
hafa lengst verulega. Fjölgun þeirra skammgóður vermir og tekur ekki á undirliggjandi vanda. Meðalbiðtími 2018 er 126 dagar.
60%
nemur fjölgunin á biðlista
eftir hjúkrunarrými milli
áranna 2014 og 2016.
kóngaFólk Það verður mikið um
dýrðir í Lundúnum á morgun þegar
Harry Bretaprins gengur að eiga
bandarísku leikkonuna Meghan
Markle við hátíðlega athöfn.
Gríðarleg eftirvænting er fyrir
brúðkaupinu og munu þúsundir
safnast saman við Buckingham-höll
á morgun til að berja nýju brúð-
hjónin augum en milljónir munu
fylgjast með brúðkaupinu um allan
heim.
Fréttablaðið gerir upp nokkuð
dramatískan, og oft undarlegan,
aðdraganda brúðkaupsins. Frétta-
blaðið rifjar um leið upp fyrri
hjónavígslur í bresku konungsfjöl-
skyldunni en á seinni árum hafa
hjónabönd kóngafólksins oft haft
mótandi áhrif á breskt samfélag
og sett sitt mark á samtímann.
– khn / sjá síður 44 og 46
Styttist í stóru
stundina
Heimsmet í handstöðu var slegið í Laugardalshöll í gær þegar 607 manns á öllum aldri stóðu á höndum á sama tíma. Uppákoman var liður í afmælisfögnuði Fimleikasambands Íslands en
það fagnaði hálfrar aldar afmæli í gær. Heimsmetið var slegið með glæsibrag en fyrra met var 399 manna handstaða. Vonast er til að Guinness staðfesti heimsmetið. Fréttablaðið/Sigtryggur ari 1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
5
-7
8
1
8
1
F
D
5
-7
6
D
C
1
F
D
5
-7
5
A
0
1
F
D
5
-7
4
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K