Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 10
Nýr Subaru XV
Kraftur og margverðlaunað öryggi mætast í hinum nýja Subaru XV. Hvert sem leiðin liggur ert þú og fjölskylda þín öruggari
á Subaru XV með sítengdu fjórhjóladrifi m/tölvustýrðri stöðugleikastýringu, hinni rómuðu EyeSight öryggistækni, sjálfvirkri
árekstrarvörn, hraðastilli með fjarlægðarskynjun og akreinavara.
Komdu og upplifðu Subaru öryggi!
EyeSight er hjálparbúnaður fyrir ökumann sem virkar e.t.v. ekki fullkomlega við allar akstursaðstæður. Ökumaður þarf alltaf að sýna ábyrgð og vera með fulla athygli við
aksturinn. Virkni búnaðarins er m.a. háð reglulegu viðhaldi bílsins, veðri og akstursaðstæðum. Nánari um virkni og takmarkanir búnaðarins í eigandahandbók eða á vefsíðu.
Í GEGNUM KRAFTINN
FINNUR ÞÚ ÖRYGGI.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
3
2
3
S
u
b
a
ru
X
V
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
m
a
í
Bandaríkin Alls hafa 22 ákærur verið
gefnar út og fimm hafa játað sekt sína
í tengslum við rannsókn Roberts
Mueller, sérstaks saksóknara dóms-
málaráðuneytisins, sem varð eins árs
í gær. Mueller var skipaður til þess að
rannsaka meint afskipti rússneskra
yfirvalda af bandarísku forsetakosn-
ingunum sem fram fóru 2016 og meint
samráð framboðs Donalds Trump, nú
forseta, við Rússa. Þá er honum heim-
ilt að rannsaka hverja þá glæpi sem
uppgötvast í millitíðinni.
Þrýstingur Trump-liða á Mueller
um að ljúka rannsókn sinni eykst dag
frá degi. „Til hamingju Bandaríkin. Við
erum nú á öðru ári mestu nornaveiða
Bandaríkjasögunnar. Enn hefur ekkert
bent til samráðs og ekkert til þess að
nokkur hafi hindrað framgang rétt-
vísinnar. Eina samráðið var hjá Demó-
krötum sem gátu ekki tryggt sér kosn-
ingasigur þrátt fyrir að hafa eytt miklu
meiri peningum,“ tísti Trump í gær.
Samkvæmt nýlegri könnun CNN
eru 44 prósent samþykk rannsókn
Muellers, 38 ósamþykk. Þrýstingurinn
virðist þó hafa einhver áhrif þar sem
stuðningur við rannsóknina hefur
minnkað undanfarið.
Rudy Giuliani, einn lögmanna
forsetans, fullyrti svo í gær að
Mueller myndi ekki ákæra
Trump, jafnvel þótt hann kæmist
að því að Trump hefði gerst brot-
legur við lög. Sagði hann að rann-
sakendateymi Muellers hefði tjáð
lögfræðingateymi Trumps að Mueller
myndi halda sig við þá túlkun dóms-
málaráðuneytisins á stjórnarskránni
að ekki væri hægt að ákæra sitjandi
forseta. Mueller vildi ekki svara fyrir-
spurnum fjölmiðla um orð Giulianis.
En þótt ekki hafi enn verið ákært
fyrir samráð hefur Mueller afhjúpað
fjölda glæpa. Ákærði hann meðal
annars Paul Manafort, áður kosn-
ingastjóra Trumps, fyrir að hafa unnið
fyrir stjórnmálaafl, hliðhollt Rússum,
í Úkraínu. Þeir meintu glæpir eru
ótengdir framboði Trumps að því er
best er vitað. Fyrrverandi starfsmenn
framboðs forsetans hafa svo játað að
meðal annars hafa logið um samskipti
við rússneska embættismenn og rúss-
neska starfsmenn þrýstihópa. Mike
Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps
til skamms tíma, játaði til að mynda að
hafa logið um samskipti sín við Sergei
Kisljak, sendiherra Rússa.
Þá hefur Mueller jafnframt rannsak-
að hvort Trump sjálfur hafi hindrað
framgang réttvísinnar með því að hafa
rekið James Comey alríkislögreglu-
stjóra úr starfi eftir að Comey neitaði
að hætta að rannsaka mál Flynns.
Trump hefur ekki sest niður með
Mueller og svarað spurningum hans.
Giuliani hefur sagt að Trump muni
mögulega gera það af fúsum og
frjálsum vilja, mögulega ekki. Robert
Ray, saksóknari í Whitewater-máli
Clintons, sagði við Washington Post í
gær að forsetinn ætti að skilja að hann
þurfi að svara spurningum Muellers,
vilji hann að rannsóknin taki enda.
thorgnyr@frettabladid.is
Hefur ákært 22 á fyrsta ári rannsóknar
Sérstakur saksóknari hefur rannsakað meint samráð forsetaframboðs Donalds Trump við Rússa. Rannsóknin leitt af sér ákærur á hendur
nítján einstaklingum og þremur fyrirtækjum. Stóru spurningunni enn ósvarað og þrátt fyrir þrýsting Trump-liða heldur rannsókn áfram.
Robert Mueller hefur rannsakað Rússamálið undanfarið ár. NoRdicphotos/AFp
Hin 22 ákærðu
George papadopoulos, utan-
ríkismálaráðgjafi trumps
Ákærður 3. október 2017 fyrir að
ljúga að rannsakendum. Játaði
5. október 2017.
paul Manafort og
Rick Gates, kosninga-
stjóri trumps og
aðstoðarmaður hans
Ákærðir 27. október
2017, meðal annars
fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum
og vinnu fyrir Rússa í Úkraínu, og
22. febrúar 2018, meðal annars
fyrir skattsvik. Báðir neita sök,
ákærur frá 22. febrúar gegn
Rick Gates felldar niður
fimm dögum seinna.
Michael Flynn,
þjóðaröryggisráðgjafi
trumps
Ákærður 30. nóvem-
ber 2017 fyrir að ljúga að rannsak-
endum. Játaði 1. desember 2017.
Richard pinedo, sölumaður
bankareikninga
Ákærður 2. febrúar 2018 fyrir
að villa á sér heimildir. Játaði
2. febrúar 2018.
Alex van der Zwaan, hol-
lenskur lögfræðingur
Ákærður 16. febrúar 2018
fyrir að ljúga að rannsakendum.
Dæmdur í þrjátíu daga fangelsi
3. apríl 2018.
Þrettán rússneskir einstaklingar
og þrjú rússnesk fyrirtæki
Ákærð 16. febrúar 2018, öll fyrir
samsæri gegn Bandaríkjunum. Öll
utan bandarískrar lögsögu nema
fyrirtækið Concord Management
and Consulting sem neitaði sök
þann 10. maí 2018.
paul Manafort. Michael Flynn.
1 8 . m a í 2 0 1 8 F Ö S T U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
5
-8
B
D
8
1
F
D
5
-8
A
9
C
1
F
D
5
-8
9
6
0
1
F
D
5
-8
8
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K