Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Þar vilja
áhrifaöfl í
verkalýðs-
hreyfing-
unni, stýrt af
byltingar-
fólki með
takmarkað
umboð á
bak við sig,
efna til átaka
við allt og
alla og tefla
á tæpasta
vað.
Núverandi
stefna í
húsnæðis-
málum hefur
beðið skip-
brot. Það er
kominn tími
til að leysa
húsnæðis-
vandann, það
er kominn
tími til að
breyta.
Á síðustu fjórum árum hefur húsnæði í Reykja-vík hækkað um 50% í verði. Leiguverð fylgir kaupverði. Þrjú þúsund leiguíbúðum var
lofað fyrir fjórum árum, íbúðum fyrir „venjulegt
fólk“. Í dag eru 50 m2 íbúðir leigðar á 200 þúsund
krónur. Og þakíbúð í fjölbýli er til sölu fyrir 400
milljónir króna. Já, 400 milljónir. Hvernig eiga þeir
sem enga íbúð eiga að komast inn á markaðinn?
Hvernig eiga kjósendur að treysta núverandi meiri-
hluta fyrir því að vinda ofan af þeim vanda sem
hefur orðið á þeirra vakt.
Ungt fólk á betra skilið
Það er aðeins ein leið til að sporna við þess-
ari þróun sem heldur áfram ef ekkert breytist
í kosningunum eftir rúma viku. Það er að auka
framboð á lóðum borgarinnar til bygginga. Undan-
farið hefur aðallega verið byggt á lóðum sem voru
í eigu bankanna. Reykjavíkurborg úthlutaði afar
litlu. Við munum breyta þessu. Bjóða fram spenn-
andi búsetukosti í Örfirisey, BSÍ, og á Keldum. Þá
munum við jafnframt klára hverfin. Þannig verður
aftur hægt að líta á Reykjavík sem raunhæfan val-
kost fyrir fyrstu kaup.
Búa hjá foreldrum
Ungt fólk í Reykjavík býr í vaxandi mæli í foreldra-
húsum. Þannig er því farið með tvo frambjóð-
endur okkar sem skipa 4. og 9. sæti lista Sjálfstæðis-
flokksins. Þessir verðandi borgarfulltrúar eru báðir
háskólamenntaðir en hafa þurft að búa hjá for-
eldrum sínum lengur þar sem húsnæðiskostnaður
er of hár.
Núverandi borgarstjóri hefur ráðið ríkjum síðustu
átta ár. Raunar er hann búinn að vera borgarfulltrúi
í 16 ár. Núverandi stefna í húsnæðismálum hefur
beðið skipbrot. Það er kominn tími til að leysa hús-
næðisvandann, það er kominn tími til að breyta.
Borgarbúar eiga betra skilið.
Tími til að leysa
húsnæðisvandann
Eyþór Arnalds
skipar 1. sæti á
lista Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík
Aðalfundur ÍFR 2018
Aðalfundur Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík
verður haldinn laugardaginn 2.júní. 2018 kl. 14.00
í íþróttahúsi félagsins að Hátúni 14.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórnin
Sprungin blaðara?
Vonbrigðastuna hægrisinnaðra
smáborgara bergmálaði um
internetið í gær. Spenntir höfðu
þeir beðið komu Tommy Robin-
sons sem ætlaði að messa yfir
þeim um skaðsemi fjölmenn-
ingar í gærkvöld. Hann mætti
þó ekki til leiks. Fyrst að sögn
vegna þess að sprungið dekk
kostaði hann flugfarið. Síðar
vegna andláts í fjölskyldunni.
Tæpum sólarhring áður en ráð-
stefnuhaldið rann út í sandinn
hafði hlakkað í væntanlegum
gestgjöfum hans þar sem fyrir-
hugaðar pallborðsumræður féllu
niður þar sem enginn fjölmenn-
ingarsinni „treysti“ sér til að
mæta Robinson. Allt féll þetta
um sjálft sig og að lokum hló
„góða fólkið“ hæst.
Appelsínugul Stormviðvörun
Veðurfréttamaðurinn ástsæli
Siggi stormur leiðir lista Mið-
flokksins í Hafnarfirði hvar illar
tungur eru komnar á kreik og
segja Sigga hafa verið í dular-
fullu veikindaleyfi frá kennslu í
Víðistaðaskóla í allan vetur en sé
furðubrattur í kosningabarátt-
unni í vor. Segja má að fokið hafi
í Storminn sem sagði við Frétta-
blaðið.is í gær að þetta væru
dylgjur örfárra andstæðinga
hans. „Það er verið að gera lítið
úr og draga í efa að ég hafi veikst í
baki í haust. Mér finnst þetta svo
mikil lágkúra að ég á ekki orð,“
sagði Siggi stormur í gær.
thorarinn@frettabladid.is
Þetta var aðeins spurning um tíma. Hinn gríðarmikli uppgangur í ferðaþjónustu, þar sem ferðamönnum fjölgaði um tugi prósenta ár frá ári, var ósjálfbær og
hlaut að taka enda fyrr en síðar. Það sem kemur hins vegar
kannski á óvart, þvert á spár flestra greinenda, er hversu
hratt vöxturinn er núna farinn að hægja á sér á skömmum
tíma. Þótt það eigi að fara varlega í að draga of víðtækar
ályktanir þá er hægur leikur að teikna upp mynd sem gefur
til kynna að það séu blikur á lofti í atvinnugreininni – og þá
um leið í íslensku efnahagslífi. Hagtölur sem birst hafa sýna
meðal annars að ferðamönnum fækkaði í apríl frá fyrra
ári í fyrsta sinn í átta ár, þeir dvelja skemur og eyða minna,
gistinóttum á hótelum fer lítillega fækkandi, fyrirtæki eru
að draga saman seglin með færri ráðningum á starfsfólki
og þá er einnig uppi óvissa með framgang sumra stórra
hótelverkefna.
Nánast ekkert ríki á jafn mikið undir ferðaþjónustu
og Ísland. Greinin skapar orðið meira en 40 prósent af
útflutningstekjum þjóðarbúsins og liðlega helming af
heildarhagvexti frá árinu 2010 má skýra beint og óbeint
með auknum umsvifum í ferðaþjónustu. Ef ekki hefði verið
fyrir vaxandi útflutningsverðmæti þessarar nýju gjaldeyris-
skapandi atvinnugreinar væri búinn að vera talsverður
halli á viðskiptum við útlönd síðustu ár. Það er því ekki að
ástæðulausu að sumir eru farnir að óttast þau neikvæðu
efnahagslegu áhrif sem mögulegur samdráttur í ferða-
þjónustu kann að hafa, einkum á fasteignamarkaðinn með
tilheyrandi verðlækkunum, í ljósi mikilvægis hennar fyrir
þjóðarbúið.
Er því ástæða til að örvænta? Tæplega. Það er ekkert
kerfishrun í vændum. Ólíkt árunum í aðdraganda falls
fjármálakerfisins 2008 eru stoðir hagkerfisins í dag mun
traustari. Ísland er með jákvæða eignastöðu við útlönd,
gjaldeyrisforði Seðlabankans nemur um 700 milljörðum og
fjárhagsstaða heimila og fyrirtækja hefur sjaldan verið betri.
Þótt bankarnir yrðu fyrir miklum útlánatöpum við alvar-
legt bakslag í ferðaþjónustu þá er eigið fé þeirra nægjanlegt
til að standa af sér meiriháttar efnahagsáfall. Þá er rétt að
hafa það í huga að ferðaþjónustan er ung atvinnugrein,
með of mikið af litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem
eru rekin af reynslulitlum stjórnendum sem hafa aðeins
upplifað góðæristíma. Greinin mun á næstu árum aðlaga
sig breyttum aðstæðum – og þó fyrr hefði verið. Gengis-
styrking krónunnar, sem hefur unnið sitt verk við að koma í
veg fyrir meira ójafnvægi í þjóðarbúskapnum en ella, þýðir
að ferðaþjónustan hefur engan annan valkost en að leita
leiða til hagræðingar, einkum með sameiningum fyrirtækja
í miklu stærri einingar. Sú þróun er þegar hafin.
Staðan í þjóðarbúskapnum er samt um margt brot-
hætt um þessar mundir. Ísland er líklega orðið dýrasta
land í heimi. Þar spilar ekki síst inn í sú staðreynd að
launakostnaður fyrirtækja, mældur í erlendri mynt, hefur
hækkað margfalt meira en í öðrum OECD-ríkjum frá 2010.
Afleiðingin er sú að samkeppnisstaða útflutningsgreina,
meðal annars ferðaþjónustunnar, hefur rýrnað stórkost-
lega. Niðurstaða komandi kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði mun ráða miklu um hvort framhald verði
á þessari ískyggilegu þróun. Þar vilja áhrifaöfl í verkalýðs-
hreyfingunni, stýrt af byltingarfólki með takmarkað umboð
á bak við sig, efna til átaka við allt og alla og tefla á tæpasta
vað. Nái þau sínu fram þarf ekki að spyrja að leikslokum.
Afsakið hlé
1 8 . m a í 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U R14 S k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
5
-8
6
E
8
1
F
D
5
-8
5
A
C
1
F
D
5
-8
4
7
0
1
F
D
5
-8
3
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K