Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 24

Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 24
Mörg bjóða til að mynda upp á hljóðleiðsögn á fleiri tungumálum, skýringar­ myndir, bæði ljósmyndir og teikn­ ingar og texta. Með því leggja söfnin sig fram um að ná til fleiri gesta og mæta ólíkum þörfum þeirra,“ útskýrir Helga. „Þá eru sum íslensk söfn að ganga í gegnum breytingar og sem dæmi má nefna að Sjó­ minjasafnið í Reykjavík, Byggða­ safnið að Görðum á Akranesi og Listasafnið á Akureyri eru öll að vinna að nýjum grunnsýningum. Ofurtenging nauðsyn í nútímanum Helga segir þema Safnadagsins; Ofurtengd söfn: Ný nálgun, nýir gestir, lýsandi fyrir þær áskoranir sem söfn standi frammi fyrir í dag. Samfélagsmiðlar leiki stórt hlutverk í kynningarstarfi og íslensk söfn nýti þá vel. „Söfnin eru á Facebook, Insta­ gram, Twitter og Snapchat. Í breyttum heimi tækninnar eru einnig vefsíður eins og til dæmis Trip Advisor helsta hjálpar­ tæki erlendra ferðamanna þegar ákveða skal hvað á að skoða. Það er gaman að segja frá því að íslensk söfn hafa almennt fengið góðar umsagnir á Trip Advisor,“ segir Helga og Guðný bætir við að með samfélagsmiðlum nái söfnin til breiðari hóps. „Instagram og Twitter er ný leið til þess að laða þá að sem annars kæmu ekki. Þá fer einnig fram heilmikil miðlun á efni á heima­ síðum safnanna. Grunnþáttur í starfsemi safna er í raun eins. Það er að varðveita og passa upp á safnkostinn. Þegar kemur að miðlunar­ og fræðsluþættinum fara söfnin ólíkar leiðir að því að koma sínu á framfæri,“ segir Guðný. Tilnefning til safnaverðlauna heiður Íslensku safnaverðlaunin hafa verið veitt annað hvert ár við hátíðlega athöfn á Bessastöðum frá árinu 2000. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi starf og metnað og nýstárlegar leiðir til miðlunar. Bæði ICOM og FÍSOS eiga fulltrúa í valnefnd og segir Guðný ávallt mikla spennu skapast kringum verðlaunin. „Það er heiður að hljóta þessi verðlaun en ekki síður að fá til­ nefningu,“ segir Guðný. „Síðast hlaut Byggðasafn Skagfirðinga safnaverðlaunin, safn sem á sér langa sögu og er fyrirmynd annarra safna hvað varðar rannsóknarstarf, miðlun og fleira. Síldarminjasafnið á Siglufirði varð fyrsta safnið sem hlaut verðlaunin og er gott dæmi um safn sem setur sterkan svip á bæjarfélagið,“ segir Guðný. Þrjú söfn eru tilnefnd í ár og þann 5. júní mun forseti Íslands veita viðurkenninguna á Bessa­ stöðum. Vissir þú að …Nýlistasafnið, eða Nýló, er eitt elsta safn og sýningar­ rými í Evrópu í umsjón listamanna, stofnað árið 1978 og fagnar því 40 ára afmæli í ár. Sérstaða Nýló er að vera listamannarekinn vettvangur, samhliða því að vera viðurkennt safn með safneign en slíkt þekkist varla í alþjóðlegu samhengi. Auk þess að varðveita safneign sem telur yfir 2.000 verk, heldur Nýló einnig utan um heimildir um gjörninga og arkíf um listamanna­ rekin rými. Í safneigninni má meðal annars finna verkið Rigning eða Andlit í rigningu frá 1972 eftir Jón Gunn­ ar Árnason (1931­1989), en það er þekkt sem eitt af fyrstu hugmynda­ fræðilegum verkum listamannsins. Rigning býður áhorfendum að verða þátttakendur í verkinu með því að skoða sína eigin spegilmynd í fallandi rigningu. Verkið verður hluti af 40 ára afmælissýningu safnsins sem verður opnuð í byrjun júní og stendur til 12. ágúst 2018. Nýló fagnar fjörutíu árum Guðný Dóra og Helga Maureen hvetja landsmenn til þess að kíkja á söfn á Alþjóðlega safnadaginn sem og aðra daga. Í maímánuði á ári hverju fær Byggðasafnið í Görðum marga hópa úr leikskólum og skólum í heimsókn og fylgir því forvitni og fjör. Krakkarnir fá að heyra ýmislegt frá fyrri tíð. Meðal þess sem kemur krökkum á óvart er að „óþekkir“ hafi verið settir í gapa­ stokk og að tveir hafi sofið í hverju litlu rúmi baðstofunnar. Í bak­ grunni má sjá Garðahús, steypt hús, sem var byggt á árunum 1876­1882. Óþekkir settir í gapastokkinn  Ég nota módel til að gera til­raunir, ég geri tilraunir til að skilja“ (Einar Þorsteinn). Árið 2014 færði arkitektinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942­ 2015) Hönnunarsafni Íslands allt innvols vinnustofu sinnar að gjöf. Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, líklega um 1.500 munir. Einar Þorsteinn var braut­ ryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálf­ bærni og er best lýst sem sann­ kölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elías­ syni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónleikahússins Hörpu. Næstu mánuði mun starfsfólk Hönnunarsafns Íslands ásamt ýmsum góðum gestum skrásetja þessa muni í sýningarsal safnsins. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, þeir ljósmyndaðir og skráðir í Sarp sem er safnmunaskrá og loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Safnið á röngunni með Einari Þorsteini Ásgeirssyni arkitekt Áhorfendur verða þátttakendur í verkinu með því að skoða sína eigin spegil- mynd í fallandi rigningu. Framhald af forsíðu ➛ Leik- og grunnskólabörn heimsækja Byggðasafnið í Görðum. Komdu á safn er yfirskriftin á myndbandi sem fer í loftið á Safnadaginn 18. maí. Mynd­ bandið verður sýnilegt á sam­ félagsmiðlum og heimasíðu FÍSOS, safnmenn.is, og dreift sem víðast. Það er kvikmyndateymið MASH sem á heiðurinn af þessari kynn­ ingu á söfnum á Íslandi. Komdu á safn fer í loftið í dag„Okkur langar að bjóða gestum að njóta þess sem safnið hefur upp á bjóða og kynnast sýningum þess hverju sinni,“ segir Margrét Hallgríms- dóttir þjóðminjavörður. MYND/ERNIR Gestum býðst að skoða grunn­sýningu Þjóðminjasafnsins með því að fara í ratleik um safnið, gestir fá tvo miða á verði eins og frítt er inn á safnið fyrir börn yngri en 18 ára. Fjölmargar sýningar eru í boði og notalegt kaffihús fyrir alla fjölskylduna í safninu „Heimsókn á safn snýst um að njóta stundarinnar, fræðast og fá innblástur, hitta vini og fjölskyldu, fá sér gott kaffi og einfaldlega vera til. Á Þjóðminjasafninu er alltaf eitthvað nýtt að skoða og það er engin ástæða til að setja sig í þær stellingar að maður þurfi að læra alla Íslandssöguna á einu bretti, heldur einfaldlega skoða það sem vekur áhuga hverju sinni,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóð­ minjavörður og minnir á að börn séu ávallt velkomin á safnið. Grunnsýningin í forgrunni Margrét segir að í tilefni af alþjóðlega safnadeginum verði grunnsýning Þjóðminjasafnsins í forgrunni en auk hennar verði sérsýningarnar Prýðileg reið­ tygi, Dysnes: Heiðnar grafir í nýju ljósi og ljósmyndasýningin Langa blokkin í Efra­Breiðholti í aðal­ hlutverki. „Okkur langar að bjóða gestum að njóta þess sem safnið Njóta, fræðast og fá innblástur Alþjóðlegi safnadagurinn verður spennandi á Þjóðminja- safni Íslands. Fjölskyldufólk er sérstaklega velkomið. hefur upp á bjóða og kynnast sýn­ ingum safnsins hverju sinni. Þar er eitthvað við allra hæfi, s.s. allt frá jarðfundnum minjum á land­ námstíma, til áhugaverðrar sam­ tímarýni. Allt eru þetta sýningar sem einkennast af fjölbreytileika mannlífs í gegnum aldirnar og litríkum menningararfi almennt. Sýningin Prýðileg reiðtygi hefur vakið mikla athygli og aðdáun en þar má sjá söðla, fagurlega glitofin og saumuð söðuláklæði og fallegt handverk sem endurspeglar list­ fengi og handverk fyrr á tímum. Á Dysnessýningunni fær fólk góða innsýn í fornleifarannsókn sem nú stendur yfir en í fyrra fundust sex kuml á Dysnesi við Eyjafjörð sem varpa nýju ljósi á forna greftrunar­ siði. Í þessum heiðnu gröfum fund­ ust m.a. sverð, skjaldbólur, nælur, silfurhringur og perlur sem eru til sýnis á safninu. Á ljósmynda­ sýningunni Langa blokkin í Efra­ Breiðholti fá gestir að sjá líf íbúa og umhverfi þeirra í 320 metra blokk í Reykjavík en íbúarnir koma frá öllum heimsins hornum, en hér hafa sest að innflytjendur allt frá landnámi sem okkur finnst vert að vekja athygli á í sýningum okkar,“ upplýsir Margrét. Starfsfólk Þjóðminjasafnsins tekur vel á móti gestum og Mar­ grét á von á mikilli stemningu á morgun. „Við vonumst til að sem flestir gefi sér tíma til að koma á Þjóðminjasafnið og njóti stundar­ innar með okkur,“ segir hún að lokum. Aðgöngumiði að Þjóðminjasafninu gildir einnig í Safnahúsið við Hverfisgötu sem tilheyrir Þjóð- minjasafni Íslands. Allar nánari upplýsingar má fá á vefnum www. thjodminjasafn.is. Gestir geta fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmyndaðir og skráðir í safnmunaskrána Sarp. Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 2 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RSAfNADAGuRINN 1 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D 5 -8 1 F 8 1 F D 5 -8 0 B C 1 F D 5 -7 F 8 0 1 F D 5 -7 E 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.