Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 28
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Konunglegt brúðkaup kallar á athygli heimsins. Flestum finnst áhugavert að horfa
á fræga fólkið koma prúðbúið
til kirkju en gefnar hafa verið út
mikilvægar leiðbeiningar fyrir
þá sem ætla að standa fyrir utan
kapelluna á laugardag. Fólk þarf
að vera vel klætt, myndavélar
og stórar töskur eru bannaðar í
nærliggjandi umhverfi. Búist er
við miklum mannfjölda fyrir utan
Windsor á laugardaginn og mikil
öryggisgæsla er á svæðinu. Sýnt
verður beint frá brúðkaupinu á
RÚV og hefst dagskráin kl. 10.10.
Margir bíða spenntir eftir að sjá
brúðarkjól Meghan en ekki er
vitað hvernig hann mun líta út.
Konunglegir brúðarkjólar eru
eftirsótt umfjöllunarefni fjölmiðla
um allan heim.
Líklegast er það mörgum
enn í fersku minni þegar Díana
prinsessa gekk að eiga Karl Breta-
prins 29. júlí 1981. Heimsbyggðin
fylgdist með í beinni útsendingu
þegar Díana gekk inn kirkju-
gólfið í gríðarlega skreyttum og
miklum brúðarkjól. Sjaldan hefur
brúðkaup vakið jafnmikla athygli.
Díana er móðir Vilhjálms og
Harry, sem nú stendur í sporum
föður síns þá. Díana lést í bílslysi
31. ágúst 1997. Karl prins kvæntist
aftur Camillu Rosemary Shand í
Windsor 9. apríl 2005.
Bróðir Harrys, Vilhjálmur,
kvæntist Katrínu Middleton
29. apríl 2011 í Westminster
Abbey. Þá var mikið um dýrðir í
Lundúnum og heimurinn allur
fylgdist með í beinni útsendingu.
Brúðkaup þeirra Vilhjálms og
Katrínar þótti afar glæsilegt. Þau
hjónin eiga nú þrjú börn.
Það eru þó ekki bara konungleg
brúðkaup í Bretlandi. Hákon,
krónprins Noregs, gekk að eiga
Mette-Marit 25. ágúst 2001. Þá var
kátt í norsku höllinni í Ósló og
fjöldi gesta fylgdist með. Mette-
Marit var einstæð móðir þegar
þau Hákon kynntust og voru
margir Norðmenn á móti þessum
ráðahag. Þau eiga tvö börn saman.
Friðrik, krónprins Danmerkur,
gekk í heilagt hjónaband með
Mary Elízabeth Donaldson þann
14. maí 2004 í dómkirkjunni í
Kaupmannahöfn. Þar með fékk
hún nafnbótina krónprinsessa en
hún verður drottning Danmerkur
þegar Friðrik tekur við af móður
sinni. Mary er frá Tasmaníu þar
sem hún var alin upp á borgara-
legan hátt. Danir hafa ávallt verið
ánægðir með val Friðriks en þau
Mary eiga fjögur börn.
Viktoría krónprinsessa í Svíþjóð
giftist Daniel Westling 19. júní
2010. Þau kynntust þegar hann
var einkaþjálfari hennar. Daniel
fékk nafnbótina prins þegar hann
kvæntist Viktoríu og var gerður að
hertoga af Vestur-Gautlandi. Þau
hjónin eiga tvö börn.
Það voru margir farnir að efast
um að Albert, prins af Mónakó,
myndi ganga út. Það kom því
mörgum skemmtilega á óvart
þegar hann trúlofaði sig í júní 2010
og bauð síðan í brúðkaupsveislu
Heimurinn horfir til Bretlands
Það verður stór dagur í Bretlandi á morgun þegar Harry prins og Meghan Markle ganga í hjóna-
band í St George’s kapellu í Windsor kastala. Athöfnin hefst kl. 11 að íslenskum tíma.
1. Karl prins og Díana giftu sig 29. júlí
1981.
Karl prins og Camilla Parker Bowles
giftu sig 9. apríl 2005.
Katrín og Vilhjálmur prins giftu sig 29. apríl 2011. MynDir/nOrDiCPHOTOS/GETTy
Friðrik krónprins og Mary Donald-
son giftu sig 14. maí 2004.
Hákon, krónprins noregs, og Mette-
Marit giftu sig í Ósló 25. ágúst 2001.
2. Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar,
og Daníel giftu sig í Stokkhólmi
19. júní 2010.
3. Charlene og Albert ii, prins af
Mónakó, giftu sig 2. júlí 2011.
sína og Charlene Wittstock í júlí
2011. Það var tveggja daga veisla í
höllinni og sjaldan verið jafnmikið
tilstand í Mónakó eða frá því að
móðir hans, Hollywood-stjarnan
Grace Kelly, gekk að eiga föður
Alberts, Rainier prins. Þau hjónin
eignuðust tvíbura í desember 2014.
1
2
3
Þann 14. júní n.k. mun stórglæsilegt sérblað um HM í knattspyrnu fylgja Fréttablaðinu.
Áfram Ísland
Blaðið kemur út sama dag og flautað er til leiks á mótinu.
Fyrsti leikur Íslands er tveim dögum síðar, gegn ljón sterku liði Argentínu.
Í blaðinu er að finna eitthvað fyrir alla. Gallharðir fótboltaáhugamenn fá sinn
skammt af áhugaverðum viðtölum og fróðleik. Auk þess er slegið á léttari strengi
fyrir þá sem hafa almennt minni áhuga á boltanum en eru að sjálfsögðu gallharðir
stuðningsmenn íslenska liðsins. Í blaðinu verður einnig að finna stórt leikjadagatal
sem auðvelt er að kippa út úr blaðinu og færa inn úrslit leikja jafnóðum á meðan á
mótinu stendur.
Áhugasamir auglýsendur geta fengið
nánari upplýsingar í síma 512 5402
eða með því að senda póst á netfangið
serblod@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
8 KynninGArBLAÐ FÓLK 1 8 . M A í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
5
-9
A
A
8
1
F
D
5
-9
9
6
C
1
F
D
5
-9
8
3
0
1
F
D
5
-9
6
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K