Fréttablaðið - 18.05.2018, Side 30

Fréttablaðið - 18.05.2018, Side 30
Ég hef alltaf verið trúuð á Guð, allt frá því að ég var lítið barn, en guðfræðinámið dýpkaði vitund mína um Guð,“ segir Áslaug Helga Hálfdánardóttir, söngkona, tónskáld og djákni við Lindakirkju. Áslaug er líka grunnskólakennari og hafði kennt í fimmtán ár þegar hún ákvað fyrir þremur árum að læra til djákna við guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands. „Ég fór í djáknanám því mig lang- aði að vita meira. Ég hef stundum grínast með að ég vildi ekki vera sú vitlausasta í Lindakirkju því allir hinir vissu svo mikið, en í raun þyrsti mig í meiri og dýpri þekkingu á trú- málum. Námið dýpkaði þekkingu mína á Guði og trúarbrögðum sem flest okkar hafa aðeins yfirborðs- þekkingu á en mikil saga býr undir. Svo skemmdi ekki fyrir að Biblían er stórskemmtileg aflestrar,“ segir Áslaug og hlær. Var í Klamedíu X Áslaug var söngelskt barn og farin að semja lög á unglingsaldri. Hún lauk burtfararprófi í klassískum söng frá Söngskólanum og einnig söngkenn- aranámi. „En ég hef líka daðrað við poppaðri tónlist og var í hljómsveitunum Kalki og Klamedíu X. Nafn hljómsveitar- innar er mörgum eftirminnilegt en þar sem Þráinn og Jón Geir fóru síðan í Skálmöld, Bragi í Baggalút, Örlygur varð tónskáld og Snorri Hergill rithöf- undur vil ég helst ekki að Klamedían festist við mig,“ segir Áslaug og skellir upp úr. Hún gerðist kórfélagi í Kór Linda- kirkju í mars 2010 en í janúar sama ár tók Óskar Einarsson, sem er einnig stjórnandi Gospelkórs Fíladelfíu, við sem tónlistarstjóri Lindakirkju. „Óskar er meistari á sínu sviði og fullur eldmóðs þegar kemur að tón- list,“ segir Áslaug sem á fyrsta ári sínu í kórnum var farin að semja gospellög fyrir kórinn í útsetningum Óskars. „Gospel er trúarleg tónlist og ég sem mest af henni nú. Ég er aldrei lengi að semja. Lögin bara streyma til mín og yfirleitt þegar ég hef engan tíma í lagasmíðar. Ég sest sjaldnast niður í þeim tilgangi að semja lag því þá gerist yfirleitt ekki neitt.“ Gott fyrir sálina að syngja Á annan í hvítasunnu er hefð fyrir því að Kór Lindakirkju haldi stórtónleika og á því verður engin breyting í ár. Kirkjan er fólkið Kór Lindakirkju heldur stórtónleika á annan í hvítasunnu þar sem frægir gospelsálmar verða fluttir í bland við nýja íslenska gospeltónlist. Áslaug Helga Hálfdánardóttir lofar himneskri upplifun. Kór Lindakirkju varð í 2. sæti í sjónvarps- þáttunum Kórar Íslands og eiga sér marga aðdá- endur enda fádæma góður sönghópur sem syngur undir styrkri stjórn Óskars Einars- sonar. „Þetta verða stórkostlegir tón- leikar þar sem öflugar raddir syngja kröftuga gospeltónlist í bland við mýkri tónsmíðar. Á söngskránni verða fræg gospellög eftir Kirk Franklin og fleiri gospelstjörnur en líka frumflutningur á lagi eftir Sigurð Ingimarsson kórfélaga og majór í Hjálpræðishernum. Sérstakur gestur verður Arnar Dór Hannesson sem lenti í öðru sæti í The Voice 2017 og sjálf syng ég einsöng ásamt fleirum úr kórnum,“ segir Áslaug og lofar stórkostlegri skemmtun með frábærri hljómsveit og einstökum söngröddum. „Fólk dregst að gospeli því það fyllir kirkjuna lífi og dillandi tónum og það er svo nærandi fyrir sálina að syngja og hlusta á tónlist. Það er líka frábært að blanda saman gospeli og hefðbundnum sálmum. Allar stíltegundir tónlistar eiga rétt á sér innan kirkjunnar og það þarf ekki að vera ein stefna í boði alls staðar. Þeir sem vilja hlusta á klassíska kirkjutónlist eiga að geta sótt hana í kirkjur þar sem hún er virkilega vel flutt og þeir sem vilja heyra gospel geta komið til okkar.“ Kór Lindakirkju lenti í öðru sæti í sjónvarpsþáttunum Kórar Íslands og hefur undanfarna páska sungið í söngleiknum Jesus Christ Superstar í Hörpu og Hofi. Hann stefnir að upp- töku á frumsömdu efni í haust. „Við tökum okkur ýmislegt fyrir hendur utan hefðbundins messu- söngs, sem er auðvitað alltaf á okkar höndum. Flestir sem koma til messu í Lindakirkju verða hissa þegar þeir heyra í kórnum syngja fallega sálma í bland við hressandi gospel. Í kórnum eru fimmtíu söngvarar og færri komast að en vilja. Óskari berast vikulega óskir um að komast í kórinn en á haustin eru inntöku- próf ef losnar um og þá gerðar miklar kröfur til söngvaranna, enda samanstendur kórinn af mjög flottum söngvurum, bæði lærðum og ólærðum,“ upplýsir Áslaug. Öll reynsla þroskar mann Hvítasunna er stór hátíð kristinna manna og þess minnst þegar heil- agur andi kom yfir lærisveina Jesú sem stofnuðu kristna kirkju. „Sannarlega verða trúarleg stef í tónlistinni enda er gospel trúartón- list, en fyrst og fremst eru tónleik- arnir skemmtun og hefð kórsins á hvítasunnu,“ segir Áslaug sem nýtur sín vel í starfi djáknans. „Ég hlakka alltaf til að mæta til vinnu í kirkjunni, hér er góður mórall og vinnan er skemmtileg og fjölbreytt. Ég sakna þess ekki að kenna en er þó alltaf að kenna hér í kirkjunni, í fermingarfræðslunni, með unglingagospelkórnum, á foreldramorgnum og fleiru. Kenn- aranámið hefur því nýst mér vel í kirkjunni. Sálgæsla getur svo verið erfið og auðvitað kemur fullt af sorg- legum hlutum inn á borð manns í kirkju, en maður reynir að taka það ekki með sér heim og öll reynsla þroskar mann.“ Tónleikarnir hefjast í Lindakirkju klukkan 20, 21. maí. Mikil aðsókn er á tónleika Kórs Lindakirkju og hægt að nálgast miða fyrir fram í Linda- kirkju en miðar verða líka seldir við innganginn. Aðgangseyrir er 2.000 krónur en frítt fyrir tólf ára og yngri. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Áslaug Helga Hálfdánardóttir er söngkona, tónskáld og djákni við Lindakirkju. Kirkjan er vel sótt og vinsæl, kór hennar rómaður, og Áslaug segir mikilvægt að kirkjan komi til móts við fólkið því kirkjan sé fólkið. MYND/ANTON BRINK mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns PREN TU N .IS 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 1 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D 5 -A E 6 8 1 F D 5 -A D 2 C 1 F D 5 -A B F 0 1 F D 5 -A A B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.