Fréttablaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 40
Í ár er haldið upp á tíu ára afmæli fjölmenningarstarfs Borgarbókasafnsins. Sér-stök dagskrá verður í Veröld – Húsi Vigdísar Finnboga-dóttur þann 24. og 25. maí en þar verður farið yfir fjölmenn- ingarstarf safnsins síðastliðin tíu ár, fjölbreytt verkefni verða kynnt og rætt um mikilvægi menningar og listar í fjölmenningarlegu samfélagi. Yfirskrift ráðstefnunnar er Rætur og vængir og meðal fyrirlesara eru Vigdís Finnbogadóttir, Eliza Reid, Mazen Maarouf og Sjón. Starf sem opnar heiminn Allt frá upphafi hefur Kristín R. Vil- hjálmsdóttir verið verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafninu. „Samstarf mitt og Borgarbókasafns- ins hófst á því að ég var beðin um að halda fyrirlestur fyrir allt starfsfólk Borgarbókasafnsins og tengja hug- myndir Menningarmótsverkefnisins, sem ég hafði þróað í kennarastarfi mínu við grunnskóla í Silkeborg, við bókasöfn,“ segir Kristín. „Þetta var í lok janúar 2008 en á þeim tíma var íslenskukunnátta mín ekki mjög góð þar sem ég var nýkomin til Íslands eftir að hafa búið í Danmörku í 29 ár án tengingar við íslenskuna. Erindið fór fram á íslensku jafnt sem dönsku og glærurnar voru allar á dönsku. Hugmyndirnar féllu í góðan jarðveg og í kjölfarið var ég ráðin til að móta þetta nýja starf út frá þeim; að tengja fólk í gegnum fjölbreytt tungumál, menningu og listir. Ég ætlaði ein- ungis að vera á Íslandi í hálft ár, en árin eru orðin tíu. Þetta starf hefur opnað heiminn fyrir mér á margvís- legan hátt – og vonandi fyrir mörgum öðrum líka.“ Flestir fara á Borgarbókasafnið til að velja sér bækur, en starfsemin er miklu meira en bara það. „Við erum að hýsa uppákomur og sýningar og atburði þar sem fólk kemur saman, þar á meðal innflytjendur,“ segir Kristín. „Við veitum aðgang að hús- unum okkar þannig að þar er lifandi starfsemi sem skiptir fólk máli. Við viljum að næstu kynslóðir noti húsin okkar undir nám og áframhaldandi menntun og sem menningarmiðju en líka sem þátttökuvettvang.“ Fulltrúar eigin lífs og reynslu Spurð um hlutverk sitt segir hún: „Hlutverk mitt í uppbyggingu fjöl- menningarstarfs Borgarbókasafnsins hefur fyrst og fremst falist í því að koma á samstarfi milli einstaklinga, samtaka og stofnana með það að leiðar ljósi að virkja börn og fullorðna til samfélagslegrar þátttöku og stuðla að gagnvirkri menningar- og tungu- málamiðlun. Þróun fjölmenningar- starfsins hefur litast af persónulegri reynslu minni af því að vera af erlend- um uppruna, en einnig af reynslu minni sem tungumálakennari.“ Kristín leggur mikla áherslu á að fjölmenningarstarfið sé hugsað fyrir alla en sé ekki sérverkefni fyrir fólk af erlendum uppruna. „Fjölmenning tengist öllum borgarbúum og sam- spil milli fjölbreyttra menningar- heima og tungumála auðgar mannlíf borgarinnar. Það skiptir líka máli að einstaklingar séu ekki álitnir full- trúar ákveðinna þjóða, heldur full- trúar eigin lífs og reynslu. Með því að gera hlutina saman sameinumst við um samfélag okkar og virkjum fólk til þátttöku í menningarlífinu. Það er mikilvægt að fólk fái að skilgreina sig út frá lífi sínu og lífsreynslu en sé ekki alltaf flokkað út frá þjóðerni. Grund- vallaratriði í þessari starfsemi er að allir fái að njóta sín. Þegar einstakling- ur blómstrar eru enn meiri líkur á að hópur og samfélagið blómstri einnig.“ Heimanám á bókasafninu Sem dæmi um að fjölmenningarstarf Borgarbókasafnsins hafi ratað inn í kerfið nefnir Kristín að ný fjölmenn- ingarstefna menningar- og ferða- málasviðs, Rætur og vængir, byggi á fjölmenningarreynslu safnsins en hún var formaður starfshópsins sem að henni stóð. Hún nefnir einnig verkefnið Café Lingua, þar sem fólk með íslensku sem annað mál fær tækifæri til að tjá sig á íslensku og að kynna móðurmál sitt fyrir öðrum, og Menningarmót – fljúgandi teppi þar sem nemendur, foreldrar og starfs- fólk hittist og kynnir persónulega menningu sína. Heilahristingur er síðan enn eitt af verkefnum fjölmenningarstarfs safnsins en það byggir á aðstoð við heimanám og er í samstarfi við Rauða krossinn og skóla og frí- stundasvið. „Þetta er eitt af þeim verkefnum sem fór af stað á fyrsta árinu, það er nú á þremur bóka- söfnum okkar og við viljum endi- lega að það fari á fleiri söfn,“ segir Kristín. „Verkefnið er bæði fyrir börn með íslenskar og erlendar rætur, það eru um 70 börn og ungmenni sem fá þessa þjónustu. Brottfall meðal erlendra nemenda er mjög hátt og að mínu mati er þetta verkefni sem getur snúið þeirri þróun við. Til að geta lært verður fólki að líða vel, eiga góð félagsleg tengsl og vera með jákvæða sjálfsmynd. Börnin eru ekki að fara í sér- kennslu heldur að fara á bókasafnið með vinum sínum að hitta sjálfboða- liða Rauða krossins og vinna heima- vinnuna. Það er ekki hægt að þakka sjálfboðaliðunum nógsamlega. Þetta eru bæði kennarar á eftirlaunum og fólk í háskólanámi og framlag þeirra er ómetanlegt. Stundum koma krakkarnir með foreldra sína og sýna þeim bókasafnið og aðstöðuna með stolti. Þannig erum við að fá nýja hópa inn í söfnin okkar. Svo fara þessir krakkar í framhaldsskóla og nota þá bókasafnið.“ Tákn og persónulegar sögur Söguhringur kvenna er annað verk- efni sem hófst árið 2008 í samstarfi við Samtök kvenna af erlendum uppruna, en þar hittast íslenskar og erlendar konur á bókasafninu. „Við höfum verið að þróa þetta verkefni í öll þessi tíu ár. Þarna ræða konurnar saman og nota sköpun og listir fyrir þessi mikilvægu samtöl og tenging- ar,“ segir Kristín. „Við erum búnar að búa til fjögur listaverk á þessum tíu árum. Fyrst gerðum við verkefni með tölum sem heitir Tölum saman. Síðan var búið til kort af Reykjavík, þar eru útlínur Reykjavíkurborgar og tákn kvennanna, gert úr punkt- um. Svo gerðum við Íslandskort þar sem hver og ein kona setti persónu- legt tákn á kortið og úr varð mjög fallegt heildarverk sem Kaffitár notar sem kynningarefni. Nú erum við að gera heimskort með löndum kvennanna. Konurnar hafa verið að hittast tvisvar í mánuði og hver og ein gerir sitt persónulega tákn á plexígler. Það er mjög persónuleg saga á bak við hvert tákn. Á Lista- hátíð 10. júní verður dagskrá í nor- ræna húsinu þar sem konurnar segja frá þessum táknum sínum. Verkið verður síðan til sýnis í Gerðubergi.“ Fjölmenningarstarf Borgar- bókasafnsins hefur vakið athygli utan landsteinanna og hefur verið kynnt víða, eins og til dæmis í Kan- ada, Belgíu, Tékklandi og á hinum Norðurlöndunum. Verkefnið hefur hlotið viðurkenningar eins og til dæmis tvær tilnefningar til Sam- félagsverðlauna Fréttablaðsins og nú í lok ársins 2017 hlaut Menn- ingarmót – fljúgandi teppi hina evrópsku viðurkenningu, Evrópu- merkið fyrir nýsköpun innan tungu- málakennslu. Það er grundvallaratriði að allir fá að njóta sín „Grundvallaratriði í þessari starfsemi er að allir fái að njóta sín,“ segir Kristín. FréTTablaðið/STeFán Heimskortið sem íslenskar og erlendar konur vinna að. Mynd/Karen THor Tíu ára afmæli fjölmenningar- starfs Borgarbóka- safnsins. Lifandi starfsemi sem skiptir fólk máli, segir verkefna- stjórinn Kristín R. Vilhjálmsdóttir. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÞegaR einsTaKLing- uR BLómsTRaR eRu enn meiRi LíKuR á að hópuR og samféLagið BLómsTRi einnig. 1 8 . m a í 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U R24 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð menning 1 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D 5 -9 0 C 8 1 F D 5 -8 F 8 C 1 F D 5 -8 E 5 0 1 F D 5 -8 D 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.