Fréttablaðið - 18.05.2018, Blaðsíða 41
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
18. maí 2018
Tónlist
Hvað? Prins Póló
Hvenær? 21.00
Hvar? Bæjarbíó, Hafnarfirði
Á tónleikunum kemur Prinsinn
fram einn og óstuddur með
gítarinn að vopni. Hann leikur
lög héðan og þaðan af ferlinum,
sem bráðum spannar 10 ár, auk
þess sem hann leikur lög af sinni
ný útkomnu breiðskífu, Þriðja
kryddið, sem hefur hlotið fanta-
góðar viðtökur víðast hvar. Jafn-
framt svarar Prinsinn flestum
spurningum úr sal sem og öllum
viðeigandi frammíköllum.
Hvað? BP – 14 útgáfa
Hvenær? 20.00
Hvar? Vínyl, Hverfisgötu
Bónus plötur útgáfa númer 14
kemur í hús. Tvö yndisleg hliðar-
verkefni heiðra okkur. Það eru
meðlimir úr böndum eins og
Singapore Sling, Skröttum og
Pink street boys svo einhverjir séu
nefndir sem setja saman þessi lög.
Allir velkomnir.
Hvað? Plútó á Húrra
Hvenær? 23.00
Hvar? Húrra, Tryggvagötu
Plútó mætir á Húrra í kvöld
og má búast við bassamiklum
b2b2b2b2b2b2b2b skífuþeyting-
um fram undir morgun.
Hvað? Dísa með tónleika á Hverfis-
barnum
Hvenær? 22.00
Hvar? Hverfisbarinn
Dísa Jakobs tekur lagið.
Hvað? Live Jazz Friday
Hvenær? 17.00
Hvar? Klaustur, Kirkjutorgi
Jazz tríó Klaustursins fagnar viku-
lokunum með okkur alla föstu-
daga milli kl. 19-21. Tilvalið að
kíkja með vinnufélögum eftir góða
vinnuviku, eða áður en farið er út
að borða eða út á lífið.
Hvað? Logi Pedro / Litlir svartir strákar
/ Útgáfufagnaður á Prikinu
Hvenær? 21.00
Hvar? Prikið, Bankastræti
Í dag kemur út nýjasta afurð Loga
Pedro, Litlir svartir strákar. Útgáfu-
fagnaður í tilefni þess verður
haldinn á Prikinu frá 21.00 og fram
eftir nóttu.
Dísa skemmtir gestum og gangandi á Hverfisbarnum.
Prins Póló spilar í Bæjarbíói í Hafnar-
firði í kvöld. fréttaBlaðið/ernir
Viðburðir
Hvað? Listamannaspjall #29
Hvenær? 16.00
Hvar? Öldugata, Seyðisfirði
Í maí dvelja fimm listamenn, sem
koma víðsvegar að, í gestavinnu-
stofum Skaftfells. Þau Elena Mazzi,
Hannimari Jokinen, Joe Sam-Ess-
andoh, Jemila MacEwan og Pierre
Tremblay munu í dag kynna verk sín.
Hvað? New Orleans Pop Up Dinner
Hvenær? 18.30
Hvar? The Coocoo’s Nest, Grandagarði
4ra rétta Soul Food seðill að hætti
Friðgeirs Trausta Helgasonar.
Borðpantanir í síma 552-5454.
Sýningar
Hvað? Loji Höskuldsson – Garður
meðalmennskunnar
Hvenær? 13.00
Hvar? Gallery Port, Laugavegi
Garðar við heimili eru staðir þar
sem náttúran er tamin í borginni.
Óreglu náttúrunnar er komið í
fastar skorður þar sem röð og
reglur fara allt í einu að ráða
ferðinni. Í því regluverki athafnar
maðurinn sig svo. Sumir koma
fyrir heitum pottum, sumir elda
sér mat á góðviðrisdögum. Aðrir
gróðursetja matjurtir á meðan
enn aðrir sinna garðinum sínum
bara ekki neitt.
www.heimavellir.is
Mál sem ekki hafa verið greind í dagskrá hluthafafundar, er ekki unnt að taka til endanlegrar
úrlausnar á fundinum nema með samþykki allra hluthafa félagsins en gera má um þau ályktun til
leiðbeiningar fyrir félagsstjórn.
Ofangreind dagskrá verður afgreidd í þeirri röð sem að ofan greinir nema annað verði ákveðið af
fundarmönnum. Endanlegar tillögur og dagskrá munu liggja á skrifstofu félagsins þremur vikum
fyrir fund og er einnig að finna á heimasíðu Heimavalla hf. www.heimavellir.is/fjarfestar
Aðrar upplýsingar
Hluthafar, umboðsmenn og ráðgjafar þeirra hafa rétt til að sækja hluthafafundi í samræmi
við reglur hlutafélagalaga. Umboðsmönnum ber að framvísa skriflegu og dagsettu umboði frá
hluthafa. Slíkt umboð getur lengst gilt í eitt ár frá dagsetningu þess.
Atkvæðagreiðslur um þau mál sem eru á dagskrá hluthafafundar verða einungis skriflegar á
fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Þó skal stjórnarkjör jafnan vera
skriflegt ef tillögur koma fram um fleiri stjórnarmenn en kjósa skal. Vakin er athygli á ákvæðum
18. gr. samþykkta félagsins um stjórn, þar sem fjallað er um kynjahlutföll innan stjórnar.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir
því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist á skrifstofu félagsins,
Lágmúla 6, 108, Reykjavík, a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan hluthafafund.
Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á hluthafafundinn á fundarstað frá kl. 08:30 á
fundardegi.
Tilkynningar um framboð til stjórnar skal senda á fjárfestatengil Heimavalla,
erlendur@heimavellir.is, og lýkur tilkynningarfrestinum fimm sólarhringum fyrir
hluthafafundinn, nánar tiltekið sunnudaginn 3. júní kl. 09:00. Framboðseyðublað má finna á
vefsíðu félagsins www.heimavellir.is/fjarfestar. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða
lagðar fram hluthöfum til sýnis í höfuðstöðvum eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund auk
þess sem þær verða aðgengilegar á vefsíðu félagsins www.heimavellir.is/fjarfestar
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 18. maí 2018
Stjórn Heimavalla hf.
Dagskrá
1. Setning fundarins, kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Stjórnarkjör í stjórn Heimavalla hf.
3. Önnur mál löglega fram borin.
Hluthafafundur
Heimavalla hf.
Stjórn Heimavalla hf. boðar til hluthafafundar félagsins
þann 8. júní 2018 kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík í fundarsal H
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 25F Ö S T U D A g U R 1 8 . m A í 2 0 1 8
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
5
-9
F
9
8
1
F
D
5
-9
E
5
C
1
F
D
5
-9
D
2
0
1
F
D
5
-9
B
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K