Fréttablaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 2
Veður
Útlit fyrir suðvestanátt með skúrum
en bjartviðri á norðaustanverðu
landinu með morgninum. Það
styttir þó upp víðast hvar fyrir
hádegi. Síðdegis snýst smám saman
í vaxandi suðaustanátt og fer að
rigna, en áfram er þó þurrkur norð-
austan til. SJÁ SÍÐU 32
Alþjóðlegi rathlaupsdagurinn haldinn í gær
Alþjóðlegi rathlaupsdagurinn var haldinn við Snælandsskóla í gær. Þá var vígð ný föst braut í Fossvogsdal sem var kosin í Okkar Kópavogur. Brautin
inniheldur 20 pósta og þátttakendur reyna að finna sem flesta þeirra. Ekki var annað að sjá en að krakkarnir hefðu skemmt sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
• 4 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveikja í öllum tökkum
• Tvöfalt einangrað lok
• Stór posulínshúðuð efri grind
• Gashella - Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Fáanlegt með niðurfellanlegum
hliðarborðum - Nr. 12952 - Svart
• Grillflötur 65 x 44 cm
89.900 • Afl 14,8 KW
Frá Þýskalandi
Opið skírdag 12-16
Laugardag 11-16
Fáanlegt með
niðurfellanlegum
hliðarborðum
Nr. 12952 - Án gashellu - Svart
Þýsk
gæði í
50 ár
ÁRNESHREPPUR Þjóðskrá hefur lokið
við að yfirfara lögheimilisskráning-
ar átján einstaklinga í Árneshreppi
sem þóttu vafasamar. Skráningar
þeirra þriggja einstaklinga sem eftir
stóðu voru allar felldar niður í gær.
„Við höfum lokið okkar athug-
un á þessum málum átján ein-
staklinga sem voru til skoðunar,“
segir Ástríður Jóhannesdóttir,
sviðsstjóri á stjórnsýslusviði Þjóð-
skrár. „Þessar þrjár síðustu tilkynn-
ingar um skráningu lögheimilis í
Árneshreppi voru felldar niður í
dag,“ segir Ástríður og viðkomandi
hafa því aftur verið skráðir á fyrra
heimilisfang.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að Hrafn Jökulsson, einn þessara
átján, hafi fengið bréflega staðfest-
ingu þess að rétt lögheimili hans
væri í Árneshreppi.
„Nú get ég loksins sungið glaður
ég er kominn heim,“ sagði Hrafn í
samtali við Fréttablaðið í gær. „Og
ég er glaður og þakklátur yfir að
réttlætið skyldi ná
fram að ganga.“
– þþ
Þrír gerðir
afturreka en
Hrafn fær að
halda heimili
Hrafn
Jökulsson
rithöfundur.
LÖGREGLUMÁL Ógreiddar sektir
vegna umferðarlagabrota frá árinu
2008 nema rúmum 633 milljónum
króna. Þar af eru rúmar 418 millj-
ónir til komnar vegna áranna 2015-
2017.
Þetta kemur fram í svari Sigríðar
Andersen dómsmálaráðherra við
fyrirspurn Miðflokksmannsins
Birgis Þórarinssonar. Fyrirspurnin
sneri að því hve stór hluti sektanna
ætti rætur sínar að rekja til erlendra
ferðamanna en ekki var unnt að
svara því hve há sú upphæð var þar
sem sektir eru ekki flokkaðar eftir
þjóðerni.
Í frétt Fréttablaðsins í nóvember
í fyrra kom fram að varlega áætlað
næmi upphæð ógreiddra sekta fyrir
árið 2016 um 180 milljónum. Upp-
hæð fyrir það ár stendur nú í tæpum
134 milljónum. – jóe
Hálfs milljarðs
umferðarsektir
óinnheimtar
UTANRÍKISMÁL „Sendiherra Ísraels
gagnvart Íslandi bað um fund vegna
undirskriftasöfnunarinnar og þess-
arar pressu hér á landi um að Ísland
taki ekki þátt í Eurovision-keppn-
inni í Ísrael á næsta ári og eins og
kurteisra manna er siður þá urðum
við við því,“ segir Felix Bergsson,
fararstjóri íslenskra Eurovision-fara.
Felix sat fundinn í fjarveru Skarp-
héðins Guðmundssonar, dagskrár-
stjóra RÚV, sem er erlendis, en fund-
inn sat einnig framkvæmdastjórn
Eurovision-keppninnar á Íslandi.
Um 25 þúsund manns hafa skrifað
undir áskorun þess efnis að Ísland
taki ekki þátt í Eurovison í Ísrael á
næsta ári.
„Okkar hlutverk á þessum fundi
var nú fyrst og fremst að hlusta á og
heyra hans sjónarmið í málinu en
svo höldum við bara áfram að vinna
að málinu hér innanhúss eins og
áður,“ segir Felix. Hann segir að ef
ákveðið yrði að Ísland taki ekki þátt
í keppninni yrði sú ákvörðun ekki
tekin fyrr en í haust. „Við munum
taka okkur þann tíma sem við
þurfum til að fara í gegnum málið
og hlusta á þá sem vilja við okkur
tala,“ segir Felix.
„Þetta var afslappaður og ágætur
fundur. Þau hlustuðu á mín sjónar-
mið og gerðu mér grein fyrir því
að formlegur ferill við ákvörðun
um þátttöku í keppninni væri ekki
hafinn en gáfu mér engin fyrirheit
um ákvörðun í því, hvorki jákvæð
né neikvæð,“ segir Raphael Schutz,
sendiherra Ísraels, og bætir við: „En
það var mikilvægt fyrir mig að koma
því á framfæri að Ísrael myndi bíða
þeirra án tillits til þess í hvaða borg
keppnin fer fram.
Sendiherrann boðaði til blaða-
mannafundar í Reykjavík í gær þar
sem hann fór yfir stöðuna á Gasa frá
sjónarhorni Ísraelsmanna. Í yfirlýs-
ingu hans á fundinum kom fram að,
eins og umræðan hér á landi blasti
við honum virtust íslenskir fjöl-
miðlar hafa þau viðhorf til átakanna
á Gasa að Ísraelar hefðu viljandi og
af blóðþorsta drepið fjölda frið-
samra mótmælenda fyrr í mánuð-
inum. Hann sagði þetta eins langt
frá sannleikanum og hugsast gæti.
adalheidur@frettabladid.is
Segir fréttaflutning frá
Gasa mjög villandi
Sendiherra Ísraela gagnvart Íslandi fundaði með RÚV í gær vegna þrýstings á að
Íslendingar sitji heima þegar Eurovision fer fram á næsta ári. Hann segir Ísraela
ekki hafa viljandi drepið friðsama mótmælendur fyrr í mánuðinum.
Raphael Schutz, sendiherra Ísraels, boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem
hann fór yfir stöðuna á Gasa frá sjónarhóli Ísraelsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Okkar hlutverk á
þessum fundi var nú
fyrst og fremst að hlusta á og
heyra hans sjónarmið í
málinu.
Felix Bergsson,
farastjóri íslenskra
Eurovision-fara
2 5 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
6
-9
9
D
4
1
F
E
6
-9
8
9
8
1
F
E
6
-9
7
5
C
1
F
E
6
-9
6
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K