Fréttablaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 8
TA K M A R K A Ð M AG N B Í L A Á T I L B O Ð S V E R Ð I
HVERN KÝST ÞÚ?
Jeep
®
is a registered trademark of FCA US LLC.
jeep.is
CHEROKEE
FRÁ KR. 6.390.000
TILBOÐ FRÁ: KR. 5.690.000
GRAND CHEROKEE
FRÁ KR. 8.690.000
TILBOÐ FRÁ: KR. 7.690.000
RENEGADE
FRÁ KR. 4.390.000
TILBOÐ FRÁ: KR. 3.790.000
WRANGLER
NÝR BÍLL VÆNTANLEGUR
COMPASS
FRÁ KR. 5.490.000
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF · UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI · WWW.JEEP.IS
ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS · OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 · LAUGARDAGA 12-16
SAMFÉLAG Myndbandaveitunni
YouTube má líkja við frumskóg.
Notendur eru 1.300.000.000 tals-
ins og allt að 300 klukkustundum
af myndbandsefni er hlaðið inn á
síðuna á hverri mínútu. Myndbönd
af ýmsum toga er þar að finna en
einnig teiknimyndir og efni sem
ætlað er börnum. Sumt er óvið-
eigandi efni með afbrigðilegum og
kynferðislegum undirtóni sem og
ofbeldisfullt efni. Foreldrar hafa
sérstaklega orðið varir við mynd-
bönd sem sýna ofurhetjuna Spi-
derman og Elsu, úr Disney-teikni-
myndinni vinsælu Frozen, eiga
samskipti og hegða sér á vægast
sagt undarlegan hátt. Þá hefur
hin geysivinsæla Peppa pig verið
endurgerð í óþægilegri útgáfu og
önnur ofbeldisfull myndbönd, sem
virðast sakleysisleg í fyrstu, leggjast
þungt á ungar sálir.
Hrefna Sigurjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heimilis og skóla
sem stýrir SAFT netöryggisverk-
efninu, segir YouTube hafa verið til
umræðu meðal foreldra. „Foreldrar
kvarta yfir því að þar séu óviðeig-
andi myndbönd og efni á rásum
fyrir börn sem þau eru þá að rekast
óvænt á. Foreldrar halda að barnið
sé að horfa á barnaefni en bregður
þegar raunin er önnur,“ segir
Hrefna. „Það sem foreldrar geta
gert er að sýna ábyrgð og fylgjast
með hvað börnin þeirra eru að gera
á netinu.“ Hægt er að sía út óæski-
legt efni með því að haka við „rest-
ricted mode“ eða „safety mode“.
Um er að ræða flipa sem takmarkar
aðgang að efni sem aðrir notendur
eða YouTube sjálft hefur merkt við.“
YouTube er aðeins ætlað börnum
13 ára og eldri en fyrirtækið viður-
kenndi hins vegar þennan vanda og
stofnaði fyrir ári YouTube Kids. Sú
rás átti eingöngu að innihalda efni
sem væri við hæfi barna og færi í
gegnum síu. Raunin varð hins vegar
sú að bíræfnir notendur á YouTube
náðu sínum myndböndum í gegn-
um síuna á YouTube Kids.
Hrefna segir að hagsmunasamtök
til verndar börnum víða um heim
láti reglulega til sín taka. „Við erum
í stöðugu sambandi við forsvars-
menn stærstu samfélagsmiðlanna,
þ. á m. YouTube. Þau hafa gert ráð-
stafanir og vinna hörðum höndum
að því að gera síðuna öruggari. Nú
þegar er búið að gera einhverjar
breytingar, þar sem foreldrar geta
handvalið stöðvar sem börnin
þeirra eru að horfa á.
En þetta verður aldrei fullkomið.
Netið er umfangsmikið og erfitt
að sía burt allt óviðeigandi efni.
Foreldrar verða að vera vakandi
fyrir þessu. Sérstaklega hjá yngri
börnum. Við myndum ekki skilja
litla barnið okkar eftir á einhverj-
um leikvelli, þetta er eins. For-
eldrar þurfa að fylgjast með hvað
börnin eru að gera í snjalltækjum
og tölvum og hafa umsjón með því.
Þetta er líka spurning um tíma, að
láta þau ekki hanga þarna tímunum
saman. Við þurfum í rauninni öll
að vinna saman að þessu; hið opin-
bera, skólakerfið, iðnaðurinn og
fjölskyldur,“ segir Hrefna. „Til þess
að þau geti lært að forðast hætturn-
ar og umgangast þessa helstu miðla
þurfa þau að vera meðvituð og öðl-
ast gagnrýna hugsun. Við þurfum
að kenna þeim hvernig þau eiga að
haga sér á netinu og í samskiptum.
Þetta er orðið hluti af uppeldinu í
dag.“ gunnthorunn@frettabladid.is
Klámfengnu efni sérstaklega
beint að börnum á YouTube
Ofbeldisfullt og klámfengið myndefni sem ætlað er börnum finnst víða á YouTube. Fyrirtækið hefur einsett
sér að taka veituna í gegn en það hefur reynst þrautin þyngri. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla segir að
foreldrar þurfi að kynna sér málið enda sé fræðsla um internetið orðin hluti af uppeldi barna í dag.
Á þetta myndband með Elsu og Spiderman hefur verið horft oftar en fjórum
milljón sinnum. SKJÁSKOT/YOUTUBE
STJÓRNMÁL Stuðningur við ríkis-
stjórnina mælist 49,8 prósent í nýrri
könnun MMR sem birt var í gær. Í
síðustu könnun var stuðningur við
ríkisstjórnina um 52,8 prósent. Þá
er Sjálfstæðisflokkurinn stærsti
flokkurinn á Alþingi, þó fylgi
flokksins dragist saman um tæpt
prósentustig milli kannana. Fylgi
Vinstri grænna mælist 12 prósent
en var 13,7 prósent síðast. Fram-
sóknarflokkurinn mælist með 10,1
prósent en hafði áður 8,2 prósent.
Samfylkingin er næststærsti flokk-
urinn á Alþingi með 14,6 prósenta
fylgi sem er jafn mikið og flokkurinn
fékk í síðustu könnun.
Stuðningur við Pírata mælist rúm
14 prósent og flokkurinn bætir við
sig rúmu prósentustigi. Þá styðja 9,8
prósent Miðflokk.
Alls sagðist 7,1 prósent styðja Við-
reisn og 5,6 prósent Flokk fólksins.
Aðrir flokkar mældust með þrjú
prósent samanlagt.
Könnunin var gerð dagana 16.
til 22. maí en 929 einstaklingar, 18
ára og eldri, voru valdir handahófs-
kennt úr hópi álitsgjafa MMR. – ósk
Stuðningur við
ríkisstjórnina
fer minnkandi
Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur á
Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 5 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
6
-D
5
1
4
1
F
E
6
-D
3
D
8
1
F
E
6
-D
2
9
C
1
F
E
6
-D
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K