Fréttablaðið - 25.05.2018, Side 17
Næsta skref er að fulltrúar
tannlækna og sjúkratrygg-
inga setjist að samninga-
borði. Drífum þann hluta
endilega af með bros á vör.
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
Gæddu þér á ljúffengum
kosningadagsbollum
og settu X við Björnsbakarí
VELDU GÆÐI!
Að mæta hverjum degi með bros á vör er hverjum manni hollt. Nýverið sat undir-
ritaður fyrir hönd ÖBÍ í starfshópi
sem heilbrigðisráðherra fól að fjalla
um greiðsluþátttöku ríkisins í tann-
lækningum aldraðra og öryrkja. Því
miður er löngu ljóst að hér er pottur
illa brotinn.
Gildandi lög kveða á um 75%-
100% kostnaðarþátttöku sjúkra-
trygginga vegna tannlæknaþjónustu
fyrir þennan hóp. En í hálfan annan
áratug hefur verið notast við úrelta
aðgerðaskrá auk einhliða gjaldskrár
sem vart hefur hækkað. Allt umfram
greiðir einstaklingurinn, óháð efna-
hag og aðstæðum viðkomandi.
Fæstir gera sér grein fyrir mikil-
vægi tannheilsu í almennu heilsu-
fari, enda heimsókn í tannlækna-
stólinn oft fyrsta fórnarlambið þá
skórinn kreppir. Þegar ofan á bætist
aldur eða örorka virðist brekkan
fljótt ókleif. Sömu hópar þurfa jafn-
framt ýmis lyf, sem mörg hver geta
ýtt undir frekari skemmdir. Þá er
stutt í að ástandið dragi sálartetrið
niður. Brosið hverfur. Þetta er ekki
langsótt myndlíking, heldur lýsing
á því sem gerist.
Einstaklingi sem vegna fötlunar
er félagslega einangraður getur
hrakað hratt ef lundin þyngist. Hvað
heldri borgara varðar gildir það
sama, í ofanálag bætist að samhliða
hækkandi lífaldri heldur fólk eigin
tönnum mun lengur en áður var.
Meðan lögfest greiðsluþátttaka
hins opinbera gengur út frá úreltri
gjaldskrá og aðgerðaskrá sem ekki
stenst nútíma vinnubrögð versnar
ástandið hratt. Þessu þarf að kippa
í liðinn sem fyrst. Jafnframt er ósk
mín að hugað verði sérstaklega að
forvörnum, sem líklega munu skila
hinu opinbera sparnaði er fram í
sækir.
Heilbrigðisráðherra lýsti ánægju
sinni yfir niðurstöðu nefndarinnar
en til að taka málið lengra þarf raun-
verulegt kostnaðarmat að liggja
fyrir. Næsta skref er að fulltrúar
tannlækna og sjúkratrygginga setj-
ist að samningaborði. Drífum þann
hluta endilega af með bros á vör.
Fyrirsögnin er fengin að láni hjá
Sigmund.
„Það þarf ekkert að bora,
það var engin tönn“
Vilhjálmur
Hjálmarsson
fulltrúi í mál-
efnahópi ÖBÍ
um heilbrigðis-
mál
Save the Children á Íslandi
Í síðustu viku varð ég fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að um það bil hálf heimsbyggðin stóð
að umfangsmiklu og illgjörnu
samsæri gegn mér. Ég veit ekki
hvað varð til þess að allur þessi
fjöldi fólks ákvað upp úr þurru að
leggja á sig sérstakt ómak til þess að
skaprauna mér, og enn síður skil ég
hvernig tókst að skipuleggja svona
umfangsmikið samsæri á ótrúlega
stuttum tíma. Enn sem komið er hef
ég heldur ekki hugmynd um hverjir
eru forsprakkar samsærisins, en ég
hef einsett mér að komast til botns
í því með öllum tiltækum ráðum og
ná fram hefndum.
Það er reyndar huggun harmi
gegn að samsærið, sem ég hélt í
fyrstu að beindist að mér einum,
virðist hafa beinst að öllum þeim
helmingi mannkyns sem er saklaus
af þátttöku í því. Engu að síður var
reynslan óskemmtileg.
„Laurel og Yanni“
Þetta byrjaði allt á því að ég sá fólk
hrópa rafrænt upp orðið „Laurel“
eða „Yanni“ á Instagram, Snap-
chat, Facebook og Twitter—öllum
helstu götuhornum internetsins.
Ég komst svo fljótlega að því að
þetta tengdist allt einhverri hljóð-
klippu sem ég fann á netinu og
spilaði. Hljóðklippan sagði skýrt
og greinilega „Yanni,“ þannig að
ég fór næst að leita að hljóðklippu
sem sagði „Laurel“ til þess að hafa
heyrt þær báðar. En þá upptöku
fann ég hvergi.
Svo komst ég að því að stór hluti
netverja þóttist hafa hlustað á
nákvæmlega sömu klippu og ég,
en ekki heyrt „Yanni“ heldur orðið
„Laurel“. Voða fyndið, hugsaði ég,
og athugaði hvort þessar hljóð-
klippur ættu uppruna sinn þann
1. apríl. En nei, það var víst ekki.
Ég hugsaði til þess fyrir
nokkrum árum þegar útbúið var
sérstakt samskiptaforrit á netinu
sem gerði fólki kleift að senda
milli sín skilaboðin „Yo“—og
ekkert annað. Þegar fólk heyrði
fyrst um þetta smáforrit þá trúði
í raun enginn því að útbúið hefði
verið forrit með eins fáránlega
takmörkuðum notkunarmögu-
leikum; en þetta var víst raunin.
Voða fyndið. Þetta „app“ var bara
eitt stórt djók og allir sem notuðu
það tóku þátt í því þangað til allir
fengu leiða á því.
En þetta var eitthvað allt annað.
Þeir sem þóttust heyra „Laurel“
virtust allir ætla að taka djókið
með sér í gröfina—og ekki bara
það, heldur ætluðu þeir líka að
reyna að láta okkur hin fara smám
saman að efast um geðheilbrigði
okkar.
Ég hlustaði aftur og aftur á
klippuna, í mismunandi tölvum,
hátölurum og heyrnartólum og
alltaf heyrði ég röddina segja
skýrt og greinilega nákvæmlega
það sama: „Yanni, Yanni, Yanni.“
Þegar ég talaði við fólk sem
þóttist heyra „Laurel“ tók ég því
þannig að fólk væri bara að djóka
aðeins í mér. „Einmitt, já já, þú
heyrir semsagt bara alls ekki
Yanni?“ spurði ég.
– Hvað meinarðu? Röddin segir
Laurel.
– Einmitt, já. Aha. Í alvörunni,
hættu þessu rugli. Ég nenni þessi
ekki.
– Nennirðu ekki hverju, mann-
eskjan er að segja Laurel. Hvaða
Yanni rugl er þetta?
- Yanni rugl? Er ekki í lagi með
þig. Hættu þessum stælum og
segðu mér bara satt. Við erum
að hlusta á nákvæmlega sömu
klippuna, röddin segir skýrt og
greinilega Yanni.
– Á ég að skalla þig?
Heilagur sannleikur
En það var bara enginn til í að gefa
sig. Fólk skiptist algjörlega í tvær
fylkingar sem heyrðu úr sömu
hljóðklippunni tvo gjörsamlega
ólíka hluti. Allir gátu verið jafn-
sannfærðir um að hinir væru
annaðhvort ruglaðir eða hluti af
einhverjum hryllilega leiðinlegum
og þreytandi gjörningi.
Á endanum komst ég að því að
hljóðklippan innihélt bæði orðin,
en það fór alveg eftir því hvernig
móttökustöðvarnar í eyrum og
heila voru stilltar hvort hlustandinn
heyrði orðið „Yanni“ eða „Laurel“.
Semsagt—það var enginn að ljúga
eða grínast heldur var það hundrað
prósent háheilagur sannleikur að
fólk sem hlustaði á nákvæmlega
sömu upptökuna heyrði gjörólíka
hluti.
Í grein á netinu var þetta útskýrt
og þar að auki var sett upp tól sem
gerði fólki mögulegt að stilla hvaða
tíðnisvið í upptökunni heyrðust
best—þau lágu eða háu. Og viti
menn, með því að stilla þetta örlítið
til þá fór ég allt í einu að heyra
„Laurel“ í staðinn fyrir „Yanni“ og
heimurinn hætti skyndilega í sam-
særinu gegn mér. Það eina sem ég
þurfti að gera var að gefa mér tíma
til þess að rannsaka þetta fyrirbæri
örlítið. Það þurfti ekkert að rífast,
það þurfti enginn að skalla neinn,
bara gefa sér tíma til að hlusta betur.
Vitringur eða vitleysingur
Að allt öðru. Hingað til Íslands er
væntanlegur kanadískur sálfræð-
ingur, Jordan Peterson, sem hyggst
flytja sjálfshjálpar- og sjálfsstyrk-
ingarboðskap sinn í Hörpu í næstu
viku. Eins og annars staðar þar sem
sá maður ferðast er byrjað hér á
landi rifrildi milli þeirra sem sjá í
honum vitring og hinna sem telja
hann vitleysing. Það er einkenni á
umræðum um Peterson að heiftin
gegn honum er einna mest meðal
þeirra sem minnst hafa kynnt sér
málflutning hans, og dýrkunin á
honum er mest meðal þeirra sem
minnst hafa kynnt sér hugmyndir
annarra hugsuða.
Það er vissulega seinvirkt að
kynna sér almennilega þau mál sem
maður vill hafa skoðun á, en áður
en maður fer að skalla fólk eða kalla
það öllum illum nöfnum er ágætt
að ganga úr skugga um að maður
hafi stillt móttökustöðvarnar í
eyrum og heila þannig að maður
heyri raunverulega það sem verið
er að segja.
Á ég að skalla þig?
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F Ö S T U D A G U R 2 5 . M A Í 2 0 1 8
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
6
-B
2
8
4
1
F
E
6
-B
1
4
8
1
F
E
6
-B
0
0
C
1
F
E
6
-A
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K