Fréttablaðið - 25.05.2018, Síða 28
Svefnherbergið þarf
að vera hljóðlátt,
þægilega svalt og dimmt.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Um 85% af nýrri eyðslu Netflix fer nú í að framleiða nýtt efni fyrir streymisveituna,
segir yfirumsjónarmaður efnis á
Netflix, Ted Sarandos.
Á þessu ári stendur til að setja
alls átta milljarða dollara í nýtt
efni. Ekki var gefið upp hvernig
sá kostnaður skiptist á milli efnis
sem Netflix kaupir sýningarrétt að
og þess sem veitan framleiðir sjálf,
en meirihlutinn fer í eigin fram
leiðslu.
Í lok ársins verður Netflix með
um eitt þúsund titla sem koma
frá veitunni sjálfri, en tæpur
helmingur af þeim titlum verður
frumsýndur fram að áramótum,
samkvæmt Sarandos. Hann sagði
líka að meira en 90 prósent við
skiptavina Netflix horfi reglulega á
efni sem veitan framleiðir sjálf.
Margt spennandi á leiðinni
Netflix hefur tilkynnt ýmislegt
spennandi upp á síðkastið. Nýlega
var gerður samningur við Óskars
verðlaunahafann Guillermo del
Toro sem ætlar að búa til hryll
ingsþáttaröð, Barack og Michelle
Obama, fyrrverandi forsetahjón
Bandaríkjanna, eru að framleiða
efni fyrir veituna, Matt Groening,
höfundur The Simpsons og
Futurama, er að fara að byrja með
nýjan þátt á Netflix og Michael
Bay, Ryan Reynolds og handrits
höfundar Deadpool eru að gera
kvikmynd saman fyrir Netflix,
svo fátt eitt sé nefnt. Þannig að
það eru mörg spennandi verkefni
fram undan, bæði stór og lítil, sem
áskrifendur geta hlakkað til.
„Höfundarnir sem við erum að
tala við horfa á Netflix og vilja vera
á stöðinni okkar,“ segir Sarandos.
„Við tryggjum okkur þetta efni
með því að hafa gott orðspor
meðal listamanna, vera með vöru
merki sem fólk vill vera tengt við
og skila reglulega góðu efni.“
Netflix hefur gert stóra samn
inga við afkastamikla höfunda
sjónvarpsþátta, eins og Ryan
Murphy, sem er á bak við Amer
ican Crime Story, American Horror
Story og Nip/Tuck og Shona
Rhimes, sem er á bak við Grey’s
Anatomy og Scandal. Það sem
dregur slíka höfunda að Netflix
er að þeir geta prófað sig áfram
í ólíkum verkefnum án þess að
þurfa að hafa áhyggjur af áhorfs
tölum.
Sarandos segir að fleiri slíkir
höfundar gætu gengið til liðs við
veituna og fyrirtækið sé að leita að
fólki sem vill búa til hágæða efni
sem hefur menningarlega skír
skotun.
Alls ætlar Netflix að gefa út 80
kvikmyndir í ár, af mismunandi
stærðargráðum. Þó sumar þeirri
fái kannski takmarkaða athygli
horfa samt sem áður milljónir á
þær, þannig að lítil verkefni finna
stóran áhorfendahóp inni á Net
flix.
Græða mest á eigin efni
Netflix leggur mesta áherslu á að
framleiða sitt eigið efni því það
skilar meiri gróða en að kaupa
sýningarrétt á efni frá sjónvarps
stöðvum og kvikmyndafyrir
tækjum og af því að það er gert ráð
fyrir að önnur stór fjölmiðlafyrir
tæki setji á endanum aukinn kraft í
sínar eigin streymisveitur.
Sarandos sagði einmitt að hann
væri hissa á hvað það hefur tekið
Disney langan tíma að koma sinni
eigin streymisveitu í gang, en hún
fer í gang á næsta ári og þá hætta
Disney kvikmyndir að fara inn á
Netflix.
Netflix framleiðir af krafti
Streymisveitan Netflix ætlar að eyða átta milljörðum dollara í nýtt efni á árinu og gefa út hundruð
titla. Um 85% af eyðslu fyrirtækisins fer í framleiðslu á eigin efni, sem mesta áherslan er lögð á.
Ted Sarandos
með aðalleikur-
unum í The
Crown, Claire
Foy og Matt
Smith. Netflix
framleiðir The
Crown, sem eru
mjög vinsælir
þættir.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Matt Groening skapaði The Simp-
sons og Futurama og er að gera nýjan
þátt, Disenchantment, fyrir Netflix.
NORDICPHOTOS/GETTY Barack og Michelle Obama eru að gera efni fyrir Netflix. NORDICPHOTOS/GETTY
Sumir glíma við þann vanda að geta ekki sofið, bæði í skemmri og lengri tíma. Hér
eru nokkur ráð sem gætu hjálpað.
l Svefnherbergið þarf að vera
hljóðlátt, þægilega svalt og
dimmt og rúmið ætti bara að
vera notað til að sofa í (eða
stunda kynlíf ). Ekki fara í bólið
fyrr en syfjan kemur og geymdu
tölvur og snjallsíma í öðru her
bergi.
l Ef þú liggur andvaka í hálftíma
geturðu prófað að standa upp
og gera eitthvað rólegt sem þarf
ekki sterka birtu í 40 mínútur.
Þá skaltu aftur reyna að sofna
og ef það virkar ekki endur
tekurðu leikinn. Farðu á fætur á
venjulegum tíma og endurtaktu
þetta næstu nótt. Flestir finna
svefninn skána á 7 til 10 dögum.
l Reyndu að halda þig frá koffíni,
nikótíni og áfengi á kvöldin.
Þetta truflar svefninn og
minnkar gæði hans.
l Magnesíum getur hjálpað, því
það vinnur gegn streituhorm
ónum, hjálpar við vöðvaslökun
og binst við boðefnið GABA, rétt
eins og svefnlyf.
l Um það bil tvær og hálf klukku
stund af hreyfingu á viku ætti að
bæta svefninn, en gefðu líkam
anum 34 klukkustundir til að
jafna sig eftir æfingu áður en þú
reynir að sofna.
l Svefnlyf geta svo gagnast þeim
sem glíma við langvarandi
svefnleysi, en þau geta verið
ávanabindandi og valdið auka
verkunum, svo það ætti að nota
þau varlega.
Ráð gegn svefnleysi
Svefnleysi getur skert lífsgæði verulega og valdið ýmsum kvillum. En það eru
til ráð sem geta hjálpað. NORDICPHOTOS/GETTY
NÝTT Í TÍSKUNNI
Mikið úrval af vönduðum bómullar skyrtum
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . M A í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
6
-B
2
8
4
1
F
E
6
-B
1
4
8
1
F
E
6
-B
0
0
C
1
F
E
6
-A
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K