Fréttablaðið - 25.05.2018, Side 29

Fréttablaðið - 25.05.2018, Side 29
Dökkt súkkulaði er enn betra fyrir mannfólk en áður var talið. Hver vill ekki afsökun til að borða meira af dökku súkkulaði? Nýjustu rann- sóknir benda til þess að það sé enn meiri heilsufarslegur ávinningur af því að innbyrða kakó en áður var talið. Rannsóknir sem kynntar voru á ráðstefnunni Experimental Biology 2018 í San Diego á dög- unum sýna að súkkulaði með að lágmarki 70% kakóinnihaldi hefur jákvæð áhrif á streitu, bólgur, skapsveiflur, minni og ónæmis- kerfið. Þetta er fyrsta rannsókn sinnar tegundar sem gerð er á mönnum til að athuga áhrif kakós á vitsmunalega líðan, hjartaheilsu og hormónabúskap en fram að þessu hafa rannsóknir einkum beinst að áhrifum sykurinnihalds súkkulaðis á þessa þætti. Rannsóknirnar sýna að því meira kakó sem er í súkkulaðinu því jákvæðari eru áhrifin á þætti eins og skilning, minni og and- lega líðan. Fleiri rannsóknir eru í bígerð til að kanna áhrif kakós á andlega og líkamlega vellíðan og velferð en ljóst má þykja að rann- sóknir þessar styðja mjög við þá eindregnu ákvörðun sumra að inn- byrða dökkt súkkulaði að minnsta kosti daglega. Dökkt súkkulaði allra meina bót Þetta er ferskt og sumarlegt salat sem er ótrúlega gott með kjúklingaréttum. Það er sólskin í þessu salati og fullt af hollum og góðum vítamínum. 3 appelsínur 2 blóðappelsínur 1 grape 1 granatepli Fersk minta Klettasalat 2 msk. pistasíur, smátt skornar 2 msk. valhnetur, smátt skornar 2 msk. hunang Takið börkinn af appelsínum og grape-ávextinum. Skerið í sneiðar og raðið fallega á stóran disk. Bætið klettasalati og mintu yfir. Dreifið hnetunum og granatepla- kjörnum yfir salatið. Setjið hunang yfir ef þið viljið en má sleppa. Appelsínusalat með hnetum Hvernig væri að hvíla hveitið og búa til pitsubotn úr grænkáli? Grænkálið er hitaeiningasnautt og afar góð upp- spretta A-, B- og C-vítamína auk þess sem slíkur pitsubotn fer betur í maga flestra en hveitibotninn. Um 9 tommu pitsa 110 g grænkál, skolið og skerið stilk frá 2 egg ⅔ bolli gott brauðrasp 1 bolli rifinn ostur Salt og pipar Hitið ofninn á 180 gráður. Setjið grænkálið í matvinnsluvél í smá stund. Bætið út í eggjum, osti brauðraspi og salti og pipar. Vinnið þar til þetta líkist pitsudeigi. Setið deigið á bökunarpappír og notið lófa og fingur til að fletja út deigið þar til það er um 20 cm breitt. Bakið í 15-20 mín. eða þar til botninn er stökkur. Takið út og setjið pitsusósu, pitsuost og það álegg sem hver vill. Setjið aftur í ofn og bakið þar til pitsan er tilbúin. Berið fram heita með t.d. grænu salati, parmesan-osti og hvítlauks- olíu. Hollur og góður grænkálsbotn Frábært salat með kjúklingi. NETVERSLUN HEILSUHUSID.IS Madara húðvörurnar eru margverðlaunaðar og einstakar í sinni röð! Þær ná enn lengra en húðlögin, láta okkur líta betur út að innan sem utan. DEEPER THAN SKIN – HÚÐVÖRUR SEM NÁ LENGRA! MADARA FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 5 . m a í 2 0 1 8 2 5 -0 5 -2 0 1 8 0 5 :1 7 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K N Ý. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 6 -B 2 8 4 1 F E 6 -B 1 4 8 1 F E 6 -B 0 0 C 1 F E 6 -A E D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.