Fréttablaðið - 28.05.2018, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Starfa þau til
vinstri og gefa
Sjálfstæðis-
flokknum
eftir allan
hægri væng-
inn? Eða
ganga þau í
eina sæng
með gamla
móðurskip-
inu og hætta á
að verða
gleypt í
einum
munnbita?
Það er enn
alvarlegra
þegar það er
gert á
forsendum
sem beinlíns
eru rangar
og stjórnar-
menn
þannig
blekktir
með ósann-
indum.
Það er alvarlegt þegar stærsta aðildarfélag Alþýðusam-bands Íslands lýsir vantrausti á forseta samtakanna. Það er enn alvarlegra þegar það er gert á forsendum
sem beinlínis eru rangar og stjórnarmenn þannig blekktir
með ósannindum. Um það gerði formaður VR sig sekan
þegar hann fékk stjórn sína til að samþykkja tillögu um
vantraust á forseta ASÍ.
Í tölvupósti formannsins til stjórnarinnar sagði m.a.: „Nú
hefur forseti ASÍ sent tölvupóst á miðstjórn og samninga-
nefnd ASÍ um að hann muni leiða viðræður við stjórnvöld í
gegnum þjóðhagsráð án sérstaks umboðs frá félögunum.“
Þarna vísar hann til tölvupósts sem ég sendi miðstjórn
ASÍ nýlega um fyrirhugaðan fund með ríkisstjórninni þar
sem ég hugðist kynna stjórnvöldum viðhorf ASÍ til fyrir-
liggjandi skattahugmynda. Þar sagði ég m.a.: „Þar sem ekki
hefur verið tekin nein ákvörðun um samstarf landssam-
banda og stærstu félaga á grundvelli samstarfssamningsins
varðandi næstu samningalotu, er ljóst að Samninga-
nefndin hefur ekkert umboð á hendi og þar af leiðandi
ekki viðræðunefndin heldur. Samskipti við stjórnvöld
eru hins vegar almennt á borði miðstjórnar ASÍ skv. bæði
samþykktum ASÍ og þeirri verkaskiptingu sem er milli ASÍ
og aðildarfélaganna. Ég mun því mæta á fyrrgreindan fund
með forsætisráðherra ásamt framkvæmdastjóra ASÍ og
gera grein fyrir niðurstöðum hagdeildar ASÍ á þróun skatt-
kerfisins m.t.t. mismunandi tekjuhópa. ... Ég treysti því að
um þessa skipan mála geti verið sátt og mun ég gera nánari
grein fyrir fundinum á næsta miðstjórnarfundi.“
Mér er fyrirmunað að skilja hvernig hægt er að lesa út
úr þessum texta að ég hafi ákveðið að fara gegn ákvörðun
miðstjórnar ASÍ, sem að minni tillögu samþykkti fyrir
nokkru síðan að setjast ekki í Þjóðhagsráð. Blekkingar-
leikur formanns VR, í þeim tilgangi að fá stjórn stærsta
aðildarfélags ASÍ til að samþykkja vantraust á forseta ASÍ,
er grafalvarlegur og gróf aðför að þeirri samstöðu sem verið
hefur helsti styrkur verkalýðshreyfingarinnar í meira en
hundrað ár. Tölvupóst minn til miðstjórnar ASÍ hef ég sent
í fullri lengd til stjórnarmanna VR og birt sömuleiðis á vef
ASÍ.
Blekkingarleikur
formanns VR
Gylfi
Arnbjörnsson
forseti ASÍ
Reyndu við ráðherrann
Fyrir kosningarnar beittu fram-
bjóðendur ýmsum leiðum til að
koma boðskap sínum á framfæri.
Frambjóðendur Frelsisflokksins
óku meðal annars um bæinn og
spiluðu lagið Vorkvöld í Reykja-
vík með Gildrunni. Heimildar-
maður Fréttablaðsins sá síðan
hvar bílnum, sem skreyttur var
íslenska fánanum, var lagt fyrir
framan fjölbýlishús í Dunhag-
anum. Það fylgdi svo sögunni að
á meðal íbúanna í fjölbýlishúsinu
væri Katrín Jakobsdóttir, for-
sætisráðherra og formaður VG.
Jafnvel þótt VG hafi ekki riðið
feitum hesti frá kosningunum má
líklegast fullyrða að það hafi verið
ómögulegt fyrir frambjóðendur
Frelsisflokkinn að reyna við ráð-
herrann.
Vafasöm tilraun
Fróðlegt væri að vita hvort Frelsis-
flokkurinn hafi fengið leyfi fyrir
notkun á laginu í pólitískum
tilgangi en eins og margir vita
hefur trommari Gildrunnar
pólitískar tengingar við VG. Þekkt
er að stjórnmálahreyfingar í
Skandinavíu hafa komist í hann
krappan með því að nota tón-
list í flokkspólitískum tilgangi
án heimildar. Einhvern tímann
hótuðu til dæmis félagarnir úr
Abba, Benny og Björn, Danska
þjóðarflokknum lögsókn þegar
þeir komust að því að verið var
að nota tónlist þeirra í pólitískum
tilgangi. jonhakon@frettabladid.is
Helstu tíðindin úr kosningum helgarinnar voru þau, að þeir sem vilja efna til úlfúðar á grundvelli kynþátta eða trúarbragða urðu undir í kosningunum. Íslenska þjóðfylkingin, sem hafði að sínu helsta baráttumáli að draga til baka lóð undir
mosku, og Frelsisflokkurinn, sem einnig er á móti mosku
í Reykjavík og vill aðhald í málum hælisleitenda, urðu
undir. Samanlagt tóku einungis 0,4 prósent kjósenda
í Reykjavík undir þessi sjónarmið – hjáróma raddir
hreinna sérvitringa.
Ánægjulegt er að þessi málflutningur hafi ekki fengið
meiri undirtektir hjá Reykvíkingum en raunin varð, því
svona málflutningur á víða upp á pallborðið í lönd-
unum í kringum okkur með 15 til 20 prósenta fylgi og
jafnvel meira. Í sveitarstjórnarkosningunum 2014 varð
andstaðan við mosku einnig hitamál hjá Framsókn og
flugvallarvinum. Helstu kosningamálin voru flugvöllinn
áfram í Vatnsmýrinni og að draga til baka ákvörðun um
lóð undir mosku. Flokkurinn fékk þá rúm 10 prósent
atkvæða. Það er ánægjuleg þróun að fjórum árum síðar
er slíkum málflutningi hafnað.
Þetta sýnir að fólk almennt á Íslandi hefur ærlegar
taugar. Það er vitnisburður um þroskað samfélag. Ísland
er því að mörgu leyti gott samfélag; samfélag sem er opið
fyrir nýjungum og því sem er öðruvísi og fljótt að taka
hlutina í sátt í fámenninu. Fleiri kynnast fólki af erlendu
bergi, fólki með aðra trú og siði og kemst að því á eigin
skinni að flest er þetta ágætisfólk og það spyrst út í litlu
samfélagi. Það vinnur bug á fordómum.
Pólitíkin á Íslandi hefur tekið miklum framförum
síðustu ár. Hún er miklu betri og miklu þroskaðri en fyrir
20 eða 30 árum. Sem dæmi má nefna að í kosningunum
1982 náðu Sjálfstæðismenn aftur meirihluta í Reykjavík
eftir fjögurra ára valdatíð vinstri manna. Helsta ágrein-
ingsmálið í þeim kosningum var hvort reisa ætti nýja
íbúabyggð við Rauðavatn. Sjálfstæðismönnum tókst
ásamt sterku málgagni sínu, sem á þeim tíma fór inn á 80
prósent heimila í landinu, að telja kjósendum trú um að
stórhættulegt væri að byggja á þekktu sprungusvæði.
Núna hafa allir rödd, auðvelt er að leita sér upplýsinga
og hægt að sannreyna allar upplýsingar sem koma fram.
En þá að risunum tveim í reykvískri pólitík, Sjálfstæð-
isflokknum og Samfylkingunni. Hvorugur fékk hreinan
meirihluta í kosningunum og þarf því að reiða sig á aðra
flokka til samstarfs. Staðan er nokkuð flókin og þrátt fyrir
fylgistap Samfylkingarinnar telja margir, og þar á meðal
borgarstjóri sjálfur, að sjálfgefið sé að hann láti fyrst á
það reyna hvort hann geti haldið meirihlutanum með
því að fá fleiri til samstarfs í stað þess að stærsti flokkur-
inn reyni fyrst.
Viðreisn er í lykilstöðu og getur hallað sér á hvora
hliðina sem er. Staða Viðreisnar er þó ekki blátt áfram og
einföld. Starfa þau til vinstri og gefa Sjálfstæðisflokknum
eftir allan hægri vænginn? Eða ganga þau í eina sæng
með gamla móðurskipinu og hætta á að verða gleypt í
einum munnbita?
Vegurinn er vandrataður og sem fyrr á sá kvölina sem
á völina.
Sá á kvölina
sem á völina
2 8 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
B
-F
B
6
4
1
F
E
B
-F
A
2
8
1
F
E
B
-F
8
E
C
1
F
E
B
-F
7
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K