Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 100
Mér þykir mjög vænt um þetta, því a ð h é r fannst mér ég aldrei velkom-inn,“ segir Kon-
ráð Ragnarsson sem heldur sína
fyrstu ljósmyndasýningu í heimabæ
sínum, Hafnarfirði. Boð um að
halda sýninguna kom honum þægi-
lega á óvart og einnig sá velvilji sem
bæjaryfirvöld sýndu honum. Kon-
ráð fékk styrk frá bænum. Sýningin
verður opnuð í Bæjarbíói þann
30. maí næstkomandi og myndir
Konráðs munu prýða búðarglugga
í Strandgötunni. „Ég er mjög þakk-
látur, þetta er góður áfangi.“
Gerir grimmt grín
Konráð hittir blaðamann á Súfist-
anum við Strandgötu. Hann gengur
fimlega um. Hann er nýkominn úr
heimsókn í fyrirtækið Össur sem
smíðar á hann nýjan gervifót. Hann
er fremur hraustlegur á að líta. Hann
býr í Svíþjóð þar sem hefur notið
sólar í sumarbyrjun ólíkt því veður-
fari sem hefur ríkt á Íslandi síðustu
vikur.
Hann er þekktur háðfugl og sýnir
blaðamanni myndir af sér í karate-
æfingum sem byrja glæstar og
yfirvegaðar en enda á því að gervi-
fóturinn flýgur af honum. „Það er
nú ekki annað hægt en að gera bara
grimmt grín að þessu öllu saman,“
segir hann.
Myndefni Konráðs er margvíslegt.
„Ég held að það sé mikill húmor í
mínum myndum, þær eru líka dökk-
ar. Inni á milli eru fallegar landslags-
myndir. Ég hef notað myndavélina
mikið til að tjá tilfinningar mínar frá
degi til dags. Og er alveg óhræddur
við það. Myndirnar geta verið mjög
persónulegar,“ segir Konráð og telur
að það hafi reynst honum nauðsyn-
legt að nýta sköpunarkraftinn til að
glíma við sársauka sem hann hefur
búið við nærri alla sína ævi.
„Ég leik mér með myndefnið.
Mörgum myndanna breyti ég í
myndvinnslu, ég er rosalega mikið
fyrir liti og ýki þá gjarnan,“ segir
hann frá.
Eru myndirnar tæki til sjálfstján-
ingar?
„Já, mér finnst það. Ég var gríðar-
lega heftur eftir vistina á Breiðavík
og það var erfitt að koma heim,“
segir Konráð.
Sendur á Breiðavík fyrir hnupl
Hann er alinn upp í fátækt en á
reglusömu heimili. Faðir Konráðs,
Ragnar Konráðsson heitinn, var
togarasjómaður og mikið í burtu.
Móðir hans, Ása Hjálmarsdóttir,
skildi við hann og sá eftir það ein
um heimilið og vann mikið. Kon-
ráð var eitt sex systkina. Tvö þeirra
eru fallin frá.
Árið 1968, þegar Konráð var um
tíu ára gamall, var hann staðinn að
hnupli. Barnaverndarvernd Hafnar-
fjarðar tók þá afdrifaríku ákvörðun
að senda hann á Breiðavík. Þar beið
hans helvíti. Hann var beittur and-
legu, líkamlegu og kynferðislegu
ofbeldi.
Einu og hálfu ári síðar fékk hann
að fara aftur heim. Og var þá niður-
brotinn og skemmdur á sálinni.
„Þegar ég kom aftur þá var ég bara
stimplaður. Ég naut engrar virðing-
ar og sjálfsvirðing mín var engin.
Skólagangan ónýt. Það var ekkert
unnið úr þessu. Maður átti ekki að
tjá tilfinningar sínar og kunni það
heldur ekki. Þetta er svo allt öðruvísi
í dag, sem betur fer,“ segir Konráð.
Hann þáði sálræna aðstoð sem
yfirvöld buðu fyrir nokkrum árum.
Þrátt fyrir það fann hann ekki
almennilegan frið. „Þegar ég fór að
taka myndir færðist yfir mig meiri
friður en áður. Ég geng um skógana
í Svíþjóð og tek myndir. Fer þar um
á gervifætinum, ekkert mál,“ segir
hann og brosir.
Brotinn til baka
Kvikmyndaáhuginn kviknaði í
æsku. „Ég og mínir bræður áttum
8 mm súper filmuvél og vorum alltaf
að búa til bíó. Brotin sem við tókum
upp voru seinna notuð í heimildar-
myndina Syndir feðranna. Hefði ég
ekki farið á Breiðavík þá hefðu list-
rænir hæfileikar mínir og sköpunar-
þörf notið sín fyrr. Ég var glaðlynt
barn og alltaf að skemmta öðrum.
Ég var oft stokkinn upp á svið þegar
færi gafst. Óhræddur og glaður.
En svo var ég bara brotinn niður á
Breiðavík. Ég kom rétt áður en ég
varð tólf ára gamall.“
Unglingsárin einkenndust af heift
þótt hann hefði ekki alveg tapað
lífsgleðinni. „Ég eyddi þessum árum
í skemmtanir og slagsmál. Kannski
var ég að deyfa mig, ég veit það
Læt engan ræna mig
ævintýrunum
Konráð Ragnarsson sem dvaldi um tveggja ára bil á Breiðavík heldur sína fyrstu ljósmyndasýningu í heimabæn-
um Hafnarfirði. Það er merkilegur áfangi því örlög Konráðs réðust af valdníðslu og afskiptum bæjaryfirvalda. Sárin
gróa aldrei þótt Konráð hafi nýtt erfiða lífsreynslu til góðs. Hann býr yfir fádæma seiglu og er ævintýragjarn.
Konráð Ragnarsson er þakklátur bæjaryfirvöldum fyrir að bjóða sér að halda viðamikla ljósmyndasýningu í bænum. Lengi þótti honum erfitt að koma í Hafnarfjörð. FRéttaBLaðið/EyþóR
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
ÞegaR ég Kom aftuR,
Þá vaR ég baRa stimpl-
aðuR. ég naut engRaR
viRðingaR og sjálfs-
viRðing mín vaR engin.
sKólagangan ónýt.
Það vaR eKKeRt unnið
úR Þessu.
↣
2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R48 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
A
-6
D
E
C
1
F
E
A
-6
C
B
0
1
F
E
A
-6
B
7
4
1
F
E
A
-6
A
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K