Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 108

Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 108
KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Í borgarstjórnarkosningunum í dag geta Reykvíkingar valið milli sextán framboða. Sumum þykir nóg um og kvarta undan þessu fargani, sem geri það ómögulegt að kynna sér til hlítar það sem í boði er. Aðrir fagna fjölbreytninni og tala um lýðræðisveislu. Hvað sem því líður er hér ekki um met að ræða. Einu sinni höfðu Reykvíkingar milli átján fram- boðslista að velja og það þrátt fyrir að íbúar bæjarins hafi verið innan við tíundi hluti af því sem nú er. Það var árið 1908. Kosningarnar, sem fram fóru í lok janúar 1908, voru um margt skringi- legar, en þær mörkuðu þó tímamót og höfðu talsverð áhrif á þróun íslenskra stjórnmála. Í þeim reyndi í fyrsta sinn á nýleg lög um kosningar til sveitarstjórna sem fólu í sér ýmis nýmæli. Kjósendum á kjörskrá fjölg- aði mjög frá því sem verið hafði og munaði þar mestu um að konur öðl- uðust kosningarétt. Jafnframt voru leynilegar kosningar innleiddar, með kjörseðlum, kjörklefum og kjörköss- um, en fram að því höfðu kosningar farið fram í heyranda hljóði. Báðar þessar breytingar mæltust prýðilega fyrir. Flestir skildu rökin fyrir leynilegum kosningum og þótt skiptar skoðanir væru á ágæti þess að leyfa konum að taka þátt í þing- kosningum, voru sveitarstjórnarmál almennt talin annars eðlis. Þriðja stóra breytingin vafðist hins vegar fyrir mörgum: listakosningin. Í fyrri kosningum höfðu kjósendur einfaldlega mætt á kjörstað og gefið upp nöfn þeirra karla sem þeir vildu sjá í bæjarstjórn. Allir kosningabærir menn voru jafnframt í framboði og litið var svo á að óheimilt væri að biðjast undan kosningu nema mjög ríkar ástæður væru fyrir hendi. Dæmi voru því um að menn þyrftu að heyja harða „kosningabaráttu“ til að tryggja að þeir næðu ekki kjöri og gengu jafnvel sögur af einstaklingum sem gengu svo langt að múta kjós- endum til að kjósa sig ekki! Listakjörið var Reykvíkingum framandi og flestir áttu erfitt með að átta sig á hinu nýja fyrirkomulagi. Örlítill vísir að stjórnmálaflokkum var farinn að myndast á Alþingi, en eiginlegar stjórnmálahreyfingar voru vart komnar til sögunnar. Félagasamtökin í bænum, svo sem stéttarfélög og góðtemplarar, reyndu þó yfirleitt að tryggja sér rödd í bæjar stjórninni með því að fylkja sér á bak við einstaka frambjóðendur. Gamla kerfið hafði gefið þokkalega raun á meðan bærinn var minni og kjósendur enn færri. Fólksfjölgun aldamótaáranna gerði hins vegar kerfisbreytinguna óumflýjanlega. Margir kallaðir … Furðulítil umræða var um hið nýja kosningakerfi í Reykjavíkurblöð- unum, þar til rétt áður en gengið var að kjörborðinu. Kosningabaráttan mátti líka heita ósýnileg í blöðunum og kosningafundir voru engir haldn- ir. Almennt séð virtust Reykvíkingar ætla að nálgast kosningarnar eins og enn væri um óhlutbundnar kosning- ar að ræða, þrátt fyrir nýju kosninga- lögin. Þetta var meginástæðan fyrir þess- um ógnarfjölda framboða: frambjóð- endurnir skildu sjálfir ekki kerfið. Félagasamtökum sem hefði verið í lófa lagið að sameinast um fram- boðslista til að nýta styrk atkvæða sinna, kom slíkt varla til hugar. Til marks um þetta buðu sjó- mannafélögin í Reykjavík fram einn lista, Verkamannafélagið Dagsbrún annan og annar hópur verkamanna stillti upp þriðja listanum. Niður- staða þessa klofnings varð sú að ein- ungis Dagsbrún fékk fulltrúa kjörinn, Þórð Thoroddsen bankagjaldkera, sem fremur taldist til embættis- stéttarinnar en alþýðufólks. Varð sú uppskera að teljast ansi rýr í fimmtán manna bæjarstjórn, en ýmsir brodd- borgarar Reykjavíkur höfðu haft af því áhyggjur að verkafólk og sjómenn kynnu að ná meirihluta í bæjarstjórn- inni í krafti atkvæðafjölda síns. Iðnaðarmannafélagið var öflugt í bæjarlífinu og náði tveimur full- trúum kjörnum af sínum lista. Annar þeirra var verkfræðingurinn Knud Zimsen, sem átti eftir að setja ræki- lega svip sinn á bæjarmálin, meðal annars sem borgarstjóri um átján ára skeið. Ekki tókst framboðslista kaup- manna eins vel upp, fékk rétt um 4% atkvæða og engan mann kjörinn. Þótti kaupmannastéttinni afar súrt í broti að enda fulltrúalaus, þrátt fyrir að kaupmenn væru einhverjir hæstu greiðendur opinberra gjalda. Templarar voru langöflugasta félagshreyfingin í landinu um þess- ar mundir og hlaut listi þeirra 10% atkvæða, litlu minna en Iðnaðar- mannafélagið og tvo menn. Voru þessir flokkar í þriðja og fjórða sæti í atkvæðafjölda. Máttu bindindis- menn ágætlega við una, því auk fulltrúanna tveggja var talið að um helmingur bæjarfulltrúanna væru félagar í reglunni eða styddu mál- stað hennar. Næstflest atkvæði fékk listi Heimastjórnarfélagsins Fram, 14,5% og þrjá fulltrúa. Fram-félagið var stofnað af stuðningsmönnum ráðherrans Hannesar Hafstein og Heimastjórnarflokks hans. Með stofnun félagsins komust Heima- stjórnarmenn nærri því að verða eiginlegur stjórnmálaflokkur, með almennum flokksfélögum og stjórn- skipulagi utan sala þingsins. Í landsmálunum fór vegur and- stæðinga Heimastjórnarmanna vax- andi undir forystu Björns Jónssonar og missti Hannes meirihluta sinn í þingkosningum síðar á þessu sama ári. Þar buðu Björn og félagar fram undir merkjum Sjálfstæðisflokksins (eldri), en í bæjarstjórnarkosning- unum voru þeir lítt skipulagðir og fengu fá atkvæði. Heimastjórnar- menn höfðu þó ekki mikla ástæðu til að fagna, því glöggum mönnum reiknaðist til að stuðningsmenn Hannesar væru í minnihluta meðal hinna nýkjörnu bæjarfulltrúa. … en fáir útvaldir Í raun var bara hægt að tala um einn sigurvegara kosninganna: Kvenna- listann. Kvenfélög Reykjavíkur höfðu ákveðið að sameinast um einn fram- boðslista og var þeim mikið í mun að tryggja að konur myndu nýta hinn nýfengna kosningarétt, til að efla kröfuna um að fá að kjósa til Alþingis. Að sumu leyti má segja að kon- urnar í Reykjavík hafi verið þær einu sem skildu hið nýja kosninga- kerfi til hlítar. Þær stóðu saman að einum lista, sem skipaður var fjórum konum. Jafnframt voru þær eina stjórnmálaaflið sem skipulagði eiginlega kosningabaráttu, ekki með opnum fundum eða greinaskrifum heldur með því að senda stuðnings- konur framboðsins með skipulögð- um hætti í hús í bænum til að hvetja konur til að kjósa listann. Árangurinn var góður. Kvenna- listinn fékk 345 atkvæði eða 21,3% og fjóra fulltrúa kjörna. Þessi stuðn- ingur var meiri en konurnar höfðu látið sig dreyma um, sem sést á því að einungis fjórar konur skipuðu framboðslistann. Næsti borgarfull- trúi inn hefði verið fimmti Kvenna- listafulltrúinn og ekki gott að sjá hvernig kjörstjórn hefði leyst úr þeirri klemmu. Það markmið Kvennalistans að fá konur á kjörstað tókst bærilega. Ekki nema um helmingur kosningabærra Reykvíkinga tók þátt í kosningunum, sem þótti þokkalegt á þeim tíma. Þar af var kosningaþátttaka kvenna örlít- ið betri en karla. Til þess var þó tekið að kvenkyns kjósendur voru um tvö- falt fleiri en atkvæði Kvennalistans og því ljóst að reykvískar konur kusu í stórum stíl aðra lista sem nær ein- vörðungu voru skipaðir körlum. Nokkur framboð fengu óverulegt fylgi í kosningunum. Minnst allra, fjögur atkvæði, kom í hlut O-lista sem þó hafði fimm frambjóðendum á að skipa. Skýringin á þessu var sú að öllum var heimilt að bjóða fram lista skipaðan fólki að því for- spurðu. Á O-listanum voru því kon- urnar fjórar af Kvennalistanum auk Tryggva Gunnarssonar bankastjóra. Tryggvi hafði með afgerandi hætti færst undan kjöri í bæjarstjórn. Má velta því fyrir sér hvort O-listinn hafi verið boðinn fram af hvatvísum aðdáanda Tryggva sem hafi viljað nýta sér meðbyr kvennaframboðsins eða hvort listinn hafi beinlínis verið boðinn fram af pólitískum and- stæðingi í von um að ná að tæta fáein atkvæði af Kvennalistanum þar sem konur kysu framboðið í misgripum. Líklega voru fleiri listar lagðir fram af slíkum hvötum. Þessi sérkennilega staða, að sami frambjóðandinn gæti átt sæti á fleiri en einum lista, olli því að ýmsum þóttu úrslitin óréttlát eftir á. Bæjar- búar áttu bágt með að skilja það hvers vegna einn frambjóðandi gæti náð kjöri út á tiltölulega fá atkvæði, á meðan annar sem setið hefði neðar- lega á nokkrum listum kæmist ekki inn þótt sameiginlegur atkvæða- fjöldi hans væri hærri. Töldu ýmsir að þessar gloppur í reglunum hlytu að grafa undan áhuga kjósenda og minnka kjörsókn í framtíðinni. Raunin varð önnur. Það tók Reyk- víkinga ekki langan tíma að laga sig að nýju kosningalögunum. Kosið var ört í Reykjavík þessi árin, þar sem gerð var tilraun með að hafa sex ára kjörtímabil, en kjósa um þriðjung bæjarfulltrúa á tveggja ára fresti. Þá voru haldnar aukakosningar ef bæjarfulltrúasæti losnaði af öðrum ástæðum. Í öllu þessu kosningafargani tóku stjórnmálin á sig skipulagðari mynd. Framboðslistunum fækkaði og að baki þeim stóðu formlegar stjórn- málahreyfingar eða -flokkar. Dag- blöð tóku afstöðu með einstökum framboðum og kosningafundir urðu eðlilegur hluti af baráttunni. Kvenna- listar voru áfram boðnir fram, en nutu þess ekki lengur að vera eina skipulagða framboðið. Fylgið smá- minnkaði og árið 1916 fékk Kvenna- listinn ekki nema 10% atkvæða, sem dugði ekki fyrir fulltrúa. Skipti þar vafalítið máli að Bríet Bjarnhéðins- dóttir, ein upphafskvennanna, var gengin til liðs við Heimastjórnar- menn og studdi ekki framboðið. Eftir á að hyggja reyndust bæjar- stjórnarkosningarnar 1908 afdrifa- ríkar fyrir þróun lýðræðis á Íslandi, þótt fæstir gerðu sér grein fyrir mikil- vægi þeirra á sínum tíma. Þær voru mikilvægur þáttur í þróun stjórn- málanna í átt til flokkakerfis og síðar stéttastjórnmála og því ágætt dæmi um það hvernig kosningakerfi getur mótað stjórnmálin og beint þeim í tilteknar áttir. Þegar pólitíkin kom til Reykjavíkur Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um merkilegar kosn- ingar. 2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R56 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 2 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 4 4 s _ P 1 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E A -0 6 3 C 1 F E A -0 5 0 0 1 F E A -0 3 C 4 1 F E A -0 2 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.